Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 15
Sunnudagur 9. október 1977
15
ffeitiii
Húsfreyjan í Hellishólum, Heiöur Þorsteinsdóttir.
kannskigefinn fyrir búskap eins
og foreldrarnir?
— Égerekkertvissum aöþað
sé svo mjög mikill bóndi i hon-
um. Bróðir hans litur út fyrir að
vera miklu meira efni i bonda,
hann er þriggja ára, og alveg
hugfanginn af búskapnum!
— Og þú sjálf, sem fæddist og
ólst upp i kaupstað. Þykir þér
þetta gaman? . ,
— Já, mér íikar það ágætlega.
Störfin eru lifræn og fjölbreytt
en of bindandi. Mér finnst að
sveitafólk þyriti að eiga auö-
veldara með að taka sér fri en
nú er.
— Svo hafið þið auðvitað
mjaltavélar til þess að létta
ykkur fjósverkin?
— Já, en þó veitir ekkert af
þvi að tveir séu i f jósinu i hvert
skipti sem mjólkað er. Hér er
stór mjólkurgeymir, eins og
orðið er alsiða, og mjólkin er
sótt þrisvar i viku, á þriðjudög-
um, fimmtudögum og laugar-
dögum. Þessi geymir nægir
okkur ennþá, en ef mjólkurkúm
á eftir að fjölga hér mikið frá
þvisem nú er, kemur að þvi, að
hann verði of litill.
— Hann verður auðvitað ekki
fullnægjandi, þegar þið verðið
komin með hundrað mjólkurkýr
i fjösið?
— Nærri má geta! — En það
er nú ekki heldur orðið! Hér
hafa tuttugu kýr borið, núna á
einu ári, og svo eru kvfgur og
kálfar á ýmsum aldri i upp-
vexti.
— Þið hljótið að þurfa stór tún
og góðar vélar til þess að heyja
handa þessu búi?
Ekki veitir af vélunum ef
heyin eiga að nást góð, en til
þess þarf að vera hægt að heyja
sem allra mest á góðu dögun-
um, þeir hafa ekki verið svo
margir undan farin sumur.
Annars var sumarið i sumar
gott.
— En fannst þér þú ekki vera
komin i einhverja andstyggi-
lega vatnsveröld i fyrrasumar
og hitteðfyrra?
— Ég var svo heppin, að
fyrsta sumarið sem við vorum
hérna, var mjög þurrviðrasamt
og gott. Ég er stundum að segja
það núna, að ef við hefðum hitt á
annað eins rigningasumar og
1975 og ’76, þá hefðum við lik-
lega gefizt upp og farið héöan
strax. En fyrsta sumarið sann-
færði mig um, að eitthvað betra
væri til en þessi tvö miklu rign-
ingasumur. Það voru margir
orðnir svartsýnir i fyrrasumar,
enda held ég að það hafi verið
enn verra en sumarið á undan,
að minnsta kosti hér um slóðir.
En það er nú liðið, sem betur
fer, og vonandi kemur ekki i
bráð önnur eins ótið, allan hey-
skapartimann.
— Ykkur er auðvitað ekkert i
hug að hætta við hafið verk, þótt
á ýmsu hafi gengið með veður-
farið þessi f jögur ár, sem þið er-
uð búin að búa hér?
— Nei, við höfum ekki neinn
áhuga á þvi að skipta um og
flytja i þéttbýlið aftur. Við vilj-
um þvertá mótihalda áfram að
eiga hér heima og að láta bú-
skap okkar blómgast, eftir þvi
sem tök eru á. Ef heilsa og aðr-
ar ástæður leyfa, mun framtið
okkar verða hér.
—VS
Við hestasteininn.
GM- Vetrarþjónusta
^ÍL FlSpj
CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL
íl
1. Mótorþvottur
2. Hreinsun á rafgeyma-
samböndum
3. Mæling á rafgeymi
og hleðslu
4. Viftureim athuguð
5. Skipt um platínur
6. Skipt um kerti
7. Loftsía athuguð
8. Skipt um bensinsíu
i blöndungi
9. Mótorstilling
10. Kælikerfi þrýstiprófað
11. Mælt frostþol - °C
12. Stillt kúpling
13. Yfirfarin öll Ijós
14. Aðalljós stillt
15. Hemlar reyndir
16. Stýrisbúnaður skoðaður
17. Rúðuþurrkur athugaðar
18. Rúðusprautur athugaðar
og settur á frostvari
Efni, sem innifalið er í verði:
Kerti, platínur, frostvari og bensínsía.
Verð: 4 strokka vél kr. 10.932.-
6 strokka vél kr. 12.802.-
8 strokka vél kr. 14.673.-
**Ttík
Gildir 1/10 - 1/12
GM
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539 Verzb 84245-84710