Tíminn - 15.10.1977, Side 1
f
V.
Fyrir
vörubíia
Sturiu-
grindur
Sturtu
dælur
Sturtu-
dri
i yfirstandandi verkfalli BSRB fara lögregluþjónar sér hægt
og sinna aðeins brýnustu verkefnum. Þetta ástand hefur leitt
til þess, að ýmsir ökumenn virða ekki grundvaliarreglur i
umferðinni og stöðvun ökutækja er með ýmsu móti, eins og
hér sést. Þá heyrir næstum til undantekninga, að borgaö sé I
stöðumæla, enda eftirlit ekkert f þeim efnum.
Tfmamynd: Gunnar.
Verkfall er
eina leiðin
til að fá endurskoðunarréttinn
segir Krisján Thorlacius
áþ-Rvik. — Þetta eru mjög óhag-
stæðir samningar og ekki mikið
betri en sáttatilboðið sem við
höfnuðum. 1 þessu samkomulagi
eru einstök atriði, sem eru betri
en þau, sem rikið bauö BSRB, en
munurinn er svo lítill, aö ég tel
fráleitt af borgarstarfsmönnum
að samþykkja þetta samkomu-
lag, sagði Kristján Thorlacius
formaður BSRB, um samning
þann er borgarstarfsmenn munu
greiöa atkvæði um yfir helgina.
Hitt er svo aftur annað mál að
Starfsmannafélag Reykjavfkur-
borgar hefur sjálfstæðan
samningsrétt og BSRB mun ekki
blanda sér I, hvernig menn koma
til með að greiöa atkvæði.
Kristján sagði það vera einkum
tvö atriði i samningi Reykja-
vikurborgar og starfsmanna
hennar, sem væru starfsmönnum
I óhag. 1 fyrsta lagi væri launa-
hækkunin sáralitil, munurinn
milli hennar og sáttatilboðsins
margumtalaða gengi of skammt.
1 öðru lagi væri það endurskoðun-
arrétturinn, en um hann gilda
Framhald á bls. 19.
Útifnndur
torgi
Á Kröflusvæðinu
gosið án vitundar
vísindamatina.___________
— Sambandslaust milli Eldfj allastöðvarinnar og Kröflu
SKJ-Reykjavik. — Nú getur gosið
noröur á Kröflusvæðinu án þess
að viö hér á Norrænu eldfjalla-
stöðinni vitum um það, sagði Ey-
steinn Tryggvason, jaröeðlis-
fræðingur, f samtali við Timann.
— Ekkert samband hefur verö
norður siðan á þriðjudag, en von
er á svipuöum viðburðum og 8.
september fyrir áramót. Land
heldur áfram að risa, en fáir
skjálftar eru nú fyrir noröan.
Vanalega verða jarðskjálftar á
undan gosi, svo hægt er að segja
fyrir um það með nokkrum fyrir-
vara, en I september varö ekki
vart við óróa fyrren tveim timum
fyrir gos.
Eysteinn sagði, að goshættan
væri mest i kringum Leirhnjúk,
en hugsanlegt gos f Bjarnarflagi
væri mun meira áhyggjuefni, þvi
mikiö tjón gæti hlotizt af hraun-
straumi þaðan. Þó svo að mikiö
hraun kæmi úr Leirhnjúk, þá væri
10 km þaðan niöur i byggð
— Menn binda nú miklar vonir
um varnargarða og eru bjartsýn-
ir, sagði Eysteinn. — Vitað er, að
hraunið sem upp kemur er þunn-
fljdtandi, en magn og hraði
straumsins er óviss. Garðurinn
verður að gagni I litlu gosi, en i
miklu gosi getur þungi hraunsins
ruttgörðunum á undan sér. Eins
geta garðarnir stöðvað fyrsta
gosið, en hraun runniö sfðan yfir
garðinn í þvi næsta.
Enginmerki eru um minnkandi
óróa á Kröflusvæðinu, ástandið
hefur haldizt svipað i tvö ár og
jarðhræringar gætu haldið áfram
iáratugi. Land er að rfsaaftur við
Kröflu en 8. sept seig það um 20
sm, um leið og land reis við
Námafjall. Landhæð viö Kröflu er
nú sú sama og fyrir gosið i sept-
emberen hallamunur er ekki orð-
inn sá sami og þá, vegna riss við
Námafjall. Hallabreytingar eru
mældar i stöðvarhúsinu við
Kröflu, en hallinn veröur sá sami
og 8. sept. eftir u.þ.b. fimm vikur.
Hvorki landhæð né hallamunur
segja þó nákvæmlega fyrir um,
hvenær goss er að vænta,
Eysteinn sagði, að á Eldfjalla-
stöðinni væri nú fylgzt nákvæm-
lega með Kröflusvæöinu, meö
Framhald á bls. 19.
BSRB efnir til útifundar á
Lækjartorgi f dag, og er mark-
miðið með honum að skýra mál-
stað samtakanna og stöðu þeirra i
verkfailinu. Frá þessu var skýrt I
gærkvöldi á biaðamannafundi,
sem fuiitrúar BSRB efndu til. Á
þessum fundi var einnig fjallað
um ýmis atriði sem ágreiningur
hefur orðið um á milli þeirra og
stjórnvalda, en frá þeim er sagt
annars staðar i blaðinu.
A útifundinum á Lækjartwgi,
sem hefst klukkan hálf-tvö
verður Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, fundarstjóri, en
ræðumenn veröa Haraldur Stein-
þórsson, Valgerður Jónsdóttir,
Valgeir Gestsson, Olafur S. Ólafs
son, Ágúst Geirsson og Einar
Ólafsson.
Formanni Starfsmannafélags
Reykjavfkur var boöið að flytja
ræðu á fundinum, en hann taldi
sig ekki hafa tima til þess og
myndi ekki heldur neinn frá þvi
félagi hafa aðstöðu til þess að
koma í hans stað.
Fleiri
bíðaí
hundruð
útlöndum
eftir fari heim
Kortið sem Eysteinn er með sýnir mælingastöðvar á Kröflusvæðinu, en
milli þeirra giiðnar landið ýmis sundur eða kitist saman.
GV-Reykjavik. Að sögn Sveins
Sæmundssonar, blaðafulitrúa
Flugleiða, munu 180 farþegar
bfða f Bretlandi eftir fari heim
meö vélum félagsins yfir helgina.
210 farþegar biða á Noröurlönd-
um og 50-60 biða i Luxemborg. i
gær kom þota Loftieiða til lands-
ins með 99 farþega og 10 manns
fóru með henni út, en eitthvað af
fólki varð eftir i New York, þvi að
vegna stutts fyrirvara reyndist
ekki unnt að ná i þaö allt. Á hverj-
um degi koma um 20-30 farþegar
frá New York, svo að alltaf bætist
viö töiuna yfir þá farþega, sem
biða þess að komast til islands.
Aö spuröur um það, hver
hefði ábyrgð á þessu fólki svaraði
Sveinn þvi til, að enginn væri orð-
inn farþegi fyrr en hann er skráð-
ur til flugs. Ef um verkföll eða
náttúruhamfarir væri að ræða
bæri flugfélagið enga ábyrgð.
Þetta væri nokkuö sem væri utan
þess sem mannlegur máttur
mættiviðgera.Fólkiö væri þarna
á eigin ábyrgð.
Margir feröahópar eru nú
staddir f útlöndum á vegum
feröaksirfstofanna og eru sumir
hverjir farnir að blða eftir aö
komast heim. Ferðaskrifstofurn-
ar reyna allar að greiða fyrir
þessum farþegum með þvi að út-
vega þeim áfram gistingu og
morgunmat og þeir, sem eru
orönir alveg peningalausir fá fullt
fæði. Ferðaskrifstofurnar ábyrgj-
ast það, að þessir farþegar muni
greiða allan kostnað er þeir snúa
aftur heim.
A Samvinnuferðum gaf Hrafn-
hildur Sigurðardóttir okkur þær
upplýsingar aö nú biðu á þeirra
vegum 52 manna hópur I London.
A vegum tJtsýnar og Orvals
kemur til London 50 manna hópur
á sunnudag. Steinn Lárusson,
framkvæmdastjóri Úrvals, gaf
blaðamanni þær upplýsingar, að
þeir reyndu að fá fólk, sem er i
sólarlöndum til að bíða þar en
ekki koma til borga eins og Lond-
on eöa Kaupmannahöfn, þar sem
mjög erfitt er að fá gistingu á
þessum stöðum. A sunnudag er
von á 90-100 manns til London og
verður erfitt aö fá gistingu fyrir
það fólk.
Viö getum ekki gert annaö en
aö reyna aö greiða um fyrir þessu
fólki með þvf að vera sá áöíli sem
ábyrgist aö þetta fólk greiði fyrir
sina gistingu er þaö kemur heim.
örn Steinsen, skrifstofustjóri á
Otsýn fékk undanþágu eftir 14
tlma bið til að hringja til London
og fá leyfi fyrir áframhaldandi
gistingu fólks sem er i London
með Otsýn.
— Við eigum gistingu þarna
vikulega svo aö ekki var erfitt að
fá gistingu fyrir þetta fólk. — Við
vorum að fá á telexi frá Frank-
furt, að ástandiö væri mjög alvar-
legt í Kaupmannahöfn og að það
séu margir þar sem bfða.
20 farþegar meö Landsýn biöa
Framhald á bls. 19.