Tíminn - 30.10.1977, Síða 5

Tíminn - 30.10.1977, Síða 5
Sunnudagur 30. oktdber 1977 5 Í'iiM'I' gagnfræðaskólana i þorpum og smærri kaupstöðum) virðast mér vera þessi: Með lengingu skólaskyldunnar tekst bekkur neðan af framhalds- skólunum, sem áöur hét 3. bekk- ur, gagnfræðabekkimir felldir niður og er þá ekkert eftir nema svo nefndar framhaldsdeildir, sem stofnað var til fyrir nokkrum árum, til þess að bjarga áfram þeimunglingum.sem þar kusu að vera og áttu ekki greiöa leiö i aðra skóla. Þessar deildir hafa átt erfitt uppdráttar vegna óljósrar skilgreiningar á stöðu þeirra I skólakerfinu og tregðu sumra framhaldsskóla aö viöur- kenna það nám er þar fer fram. Það blasirþvi viöuppdráttasýki iýmsum framhaldsskólum út um byggðir landsins, ef væntanleg lög um hinn samræmda fram- haldsskóla taka ekki tillit til sér- stööu dreifbýlisins og gæti það oröið háttvirtum alþingismönn- um umhugsunarefni fyrir næstu kosningar hvar helzteigi að skilja eftir auðn. Ég tel, að framhaldsskólafrum- varpiö hefði áttað vera fyrr á ferð- inni og framhaldsskólinn hefði þurft að mótast nokkuð jafnhliöa grunnskólanum, þvl að sýnt er, að grunnskólinn sækir hraðar á en tekst að byggja upp I það skarð, ergagnfræða- og héraðsskólarnir I dreifbýlinu skilja eftir sig og framhaldsskólinn tekur við nægi- lega mótaður. óviðkunnanlegt er einnig aö þurfa aö st jórna meira og minna með tilskipunum þang- að til framhaldsskólaögin taka gildi 1980. Meginatriði frum- varpsins virðast mér vera þessi: Námsefni skal skipað niöur á námssvið er svo greinast i náms- brautir, en öll námssviðin eru tengd i' sameiginlegum kjama námsefnis. Greiðar leiðir eiga að vera milli námsbrauta á ýmsum stigum námsins. Þessum náms- brautum skal svo skipað niður á skólastofnanir með tilliti til að- stæðna. Menntamlaráðuneytið ákveður I samráði viö viökom- andi fræösluráð, hvar starfrækja skuli framhaldsskóla og hvaða brautir þar eigi að vera. Mennta- málaráöuneytið lætur gera áætl- un til 5 ára um framkvæmdir til að koma þessari skipan á. Heimilt á að vera að láta fræðslu- ráö kjörin samkvæmt grunn- skólalögum og fræðslustjóra fara með stjórnun framhaldsskóla- málefna I umdæminu. Skólahald samkvæmt frumvarpinu skal svo kostaö sameiginlega af rlki og sveitarfélögum skv. nánari ákvæðum I frumvarpinu. Allt þetta er ábyggilega I góðri tni gert og ætlað til að verða til hagsbóta fyrir land og lýð jafnvel fólkið I dreifbýlinu, þvl að I grein- argerðinni segir, aö leitast skuli viö aö hafa góöa menntunaraö- stöðu fyriralla, hvar sem þeireru á landinu og að I hverjum lands- hluta verði eins fjölbreytilegt val námsbrauta og við verður komiö. Nýtt verði sem bezt það skólahús- næði, sem fyrir er I landinu. En þetta frumvarp, ef aö lögum veröur.eraöeins rammi um hinn samræmda framhaldsskóla og um flest atriði þarf að setja reglu- geröir hversu framkvæma skuli hina ýmsu þætti. Gæti I þeim pappirum góö meining farið ‘for- görðum, ef ekki er aðgát höfð. Vafalaust má I þéttbýlinu viö Faxaflóa og fjölbyggöstu svæðum við Eyjafjörö skipa þessum málum á hinn hagkvæmasta hátt I samræmi við þaö sem I frum- varpinu stendur, þar er fjöl- menniö nægilegtog væntanlega fé fyrir hendi. En að þvl er varðar dreifbýlið hygg ég, að ýmis ljón veröi á veg- inum, því aö þar brestur þær for- sendur, sem ætlazt er til að séu fyrir hendi, ef á að framkvæma þá skólaskipan, sem frumvarpiö ætlast til. Fámennið I dreifbýlinu orsakar það, að einingarnar hljóta að verða smáar, þegar um svo sérgreint nám er að ræða og frumvarpið gerir ráð fyrir. Af þvi leiðir að tiltölulega mikill kostn- aður verður á hvern nemanda. Með einskonar arösemisútreikn- ingum má sjálfsagt sýna fram á að hagkvæmasta lausnin verði nokkrir fjölbrautarskólar I mesta þéttbýlinu með nemendaf jölda frá ca. 500 að óþekktum efri mörkum. Þar verður sjálfsagt hægt að beita fullkomnustu tækni I kennslu og uppeldi og er þaö fagnaðarefni þeim er löngum hafa búið við þröngan kost. Enda risnúupp hver f jölbrautarskólinn af öðrum i þéttbýlinu, þar sem fjármunir eru fyrir hendi og rikisvaldiö leggur fúslega fram fé að sinum hluta. Hins vegar blasir það við, að þeir, sem ennþá búa I sveitum og þorpum vlösvegar um land, verða að senda börn sin þegar að loknu grunnskólanámi aö heiman úr átthögunum tilfrek- ara náms og er það æriö spor aftur á bak frá þvl sem var fyrir aldamót og á bestu dögum gagn- fræðaskólanna og héraðsskól- anna fram á 8. áratuginn. Allt tal um jafnvægi I byggð landsins er hégóminn einn meðan ungmennum dreifbýlisins er ekki séð fyrir sambærilegum mögu- leikum til framhaldsnáms að þvl marki sem hægt er og jafnöldrum þeirra I þéttbýlinu. önnur megin- forsenda þess, að byggð haldist er sú, að sé fyrir góðri menntunar- aðstöðu ekki aöeins ungmenna heldur og fulloröinna, þvl að full- orðinsfræöslu er eigi slöur þörf I hinum dreifðu byggðum. Þaö er vanmatá dómgreind fólks Idreif- býlinu að halda, aö það sætti sig viö jafnvægistalið eitt meðan gengið er aftur á bak I skólamál- um þess miöað við þá þróun sem er aö verða I málum annars staðar. Forsendur þess, aö hægt sé að reka framhaldsskóla að marki i dreifbýli eru að mlnu mati þessar: 1. Almennt nám verði meginhluti námsefnis á 1. og 2. námsári. 2. Aö einingarnar megi veröa fá- mennar þegar út I sérnám er komið. 3. Aö markveröum áfanga verði náð á hverjum skólastað. 4. Að nokkur verkaskipting sé milli skóla á svæðinu en umfram allt samvinna. Skal þetta rökstutt nokkuð: í greinargerð frumvarps um framhaldsskóla er vfða vikiö að almennri menntun sem grund- vallaratriði, en þegar að þvi kemur að deila upp I ,,sviö” og „brautir” viröist annaö verða upp á teningnum, enda gætir nú þegar i' fyrirmælum stjórnvalda tilhneigingar til að auka aðgrein- inguna meira enáðurog stangast það á við þaö, sem virðist vera andi frumvarps að hlynna að al- mennri menntun. Þvíber.eins og áður er að vikiö, að hafa vakandi auga með reglugerðum sem kunna að verða settar til nánari skilgreiningar á ýmsum fram- ' kvæmdaatriðum. Um það munu svo vera deildar meiningar meöal þjóða, sem lengst hafa komist I sérhæfingu, hversu heppileg sú stefna hefur veriö, hvort sérhæf- ingin og hagvöxturinn hefur ekki orðiö á kostnaö hamingjunnar. Ekki virðist óskynsamlegt aö álykta, aö i okkar flókna sam- félagi sé þörf staðgóörar al- mennrar menntunar þó ekki sé til annars en fólk geti átt eðlileg samskipti, þótt úr ólikum at- vinnustéttum sé. Það er og vafa- mál, aö unglingar á þessum aldri séu almennt ráönir I, hvaöa leiö þeir vilja velja. Um stærö eininganna, eftir aö út i sérnám er komiö, er þaö að segja.að við vitum þaö kennarar, að séu einingarnar hæfilega smáar notast að öðru jöfnu betur aö kennslunniog hægt er að sinna hverjum einstakling betur. Mótbáran gegn smáum eining- um er, að þær séu of dýrar, og telja ýmsir auðvelt að sanna það meö einföldum reikningi. En inn i dæmið þarf að reikna ótalmarga þætti svo að hugtakið dýrt I þessu sambandihlýturað verða afstætt. Þá tel ég það megin atriöi, að markveröum áfanga verði náð á hverjum skólastað. Það er ekki hægt að búast við aö nemendur sækist eftir námi I skóla, sem ekki getur skilaö þeim aö tilteknu marki. Þaö er alltaf nokkur röskun hjá nemánda að flytjast milli skóla og aðlagast nýjum háttum og umhverfi. Þaö virðist gefa auga leiö, aö I dreifbýli verður að vera nokkur verkaskipting milli hinna ein- stöku skóla á svæðinu, aö einn skólinn hafi þetta námssvið og annar hitt, a.m.k. þegar út I sér- hæfingu kemur. En fyrst og fremst þarf að vera um góða samvinnu að ræöa og aö unnið sé að þessum málum með heill heildarinnar fyrir augum og tel ég I þvl sambandi að ákvæði 17. gr. frumvarpsins um, að heimilt sé að fela fræðslustjóra og fræðsluskrifstofu að hafa hönd I bagga með skipan framhalds- menntunar i umdæminu. Fram- haldsskólinn I dreifbýlinu stendur á tímamótum. t sumum héruöum hafa gagnfræöaskólarnir fallið inn i grunnskólann og þvl horfiö af framhaldsskólastiginu og grunnskólinn einnig tekið verk- efnið frá héraðsskólunum í mis- munandi mæli þó, áður en tekizt hefur að byggja upp nægilega traustar framhaldsdeildir við þá alla. Sýnterað við Faxaflóa risa upp nokkrir mjög fjölmennir fjöl- brautarskólar og væntanlega einn á norðurlandi. Fy rir dreifbýlisfólkiö er þvl um tvennt aö velja, aö senda ung- menni sin i f jölbrautarskóla þétt- býlisins, og afsala sér aöstöðu til framhaldsmenntunar heima I byggöunum og hverfa meö þvl rúml. 100 ár aftur í tímann miöaö viö þá þróun sem orðið hefur i' skólamálum. Hinn kostur- inn er að efla þá skóla, sem til eru I dreifbýlinu, héraðsskólana og gagnf ræðaskólana I hinum smærri kaupstööum. Ég er ekki I vafa um aö fólkiö út um byggðir landsins vill hafa slna framhalds- skóla jafnvel þótt þeir séu ekki fjölmennir né háreistir og þaö fylgist með hverja meðferö frum- varpið um framhaldsskóla fær á Alþingi og hvernig það verður framkvæmt, ef að lögum verður. Við bjoðum lika allttil I Húsbyggjendur! ^ Ávallt fyrirliggjandi: Norsk glerullareinangrun Amerisk J.M. glerullar- einangrun Steinull Glerullarhólkar Alpappir Spónaplotur og grindarefni Milliveggjaplótur Lægsta mögulegt verð v. magninnkaupa. Gerið verðsamanburð. Áratuga reynsla i influtningi byggingarvara tryggir góða vöru á lágu verði. Byggingavörudeild /A A A A A A r1" ” fl JIS Jón Loftsson hf. = cc “ J OU Jjj lqczi .jui'innu j E_ i_i __ _ I Lll M I I I i•. 'i „ juiiú-inja » ' »»'.... pípulagna í fyrsta lagi: JÁRNRÖR OG TENGI til vatnslagna, ásamt GLERULLARHÓLKUM og ööru tilheyrandi efni. í öðru lagi: HITAÞOLIN FRÁ- RENNSLISRÖRog tengi úr plasti. í þriðja lagi: PLASTRÖR OG TENGI til grunnlagna. f fjórða lagi: DRENLAGNIR OG TENGI úr plasti. f fimmta lagi: PLASTRÖR OG TENGI til kaldavatnslagna. í sjötta lagi: DANFOSS HITASTILLA f sjöunda lagi: ÞAKRENNUR ÚR PLASTI. Þar sem fagmennirnir verzla er yður óhætt. BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO KÓPAV0GS SF NÝBÝLAVEGI8 SÍMI:41000 Hringbraut 121 Sími 28604-10600

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.