Tíminn - 30.10.1977, Qupperneq 13
Sunnudagur 30. október 1977
13
Loftur Odds Björnssonar frumsýndur á Akureyri
SJ-Reykjavík — Fyrsta frum-
sýning vetrarins hjá Leikfélagi
Akureyrar verður næstkomandi
föstudaginn 4. nóvember á söng-
leiknum Lofti eftir Odd
Björnsson. Æfingar á leiknum
hafa staðið yfir i tvo mánuði og
Leifur Þórarinsson tónskáld
hefur dvalist á Akureyri þann
tima og samið tónlist við verkið.
Leikstjórar eru Brynja Bene-
diktsdóttir leikhússtjóri og
Erlingur Gislason. Sigurjón
Jóhannsson yfirleikmyndasmiður
Þjóðleikhússins hefur gert leik-
myndir. Frumsýningardaginn
kemur út kassetta með söngvum
úr Lofti og verður hún seld i leik-
húsinu. Kassettan er gerð á Akur-
eyri og fór upptakan fram i
stúdiói Pálma Stefánssonar.
Sigurveig Jónsdóttir leikur
móðurina, Gestur E. Jónasson
Loft, Saga Jónsdóttir Disu og
djöfsa leikur Aðalsteinn Bergdal.
Fréttamenn sjónvarps og blind-
varps leika Þórir Steingrimsson
og Arni V. Viggósson og blaða-
menn leika Björg Baldvinsdóttir
Jóhann Ogmundsson og Nanna
Jónsdóttir. Erlingur Gislason
leikur agentinn og Kristjana
Jónsdóttir aðstoðar leikstjóra.
Hljómlistarmenn eru Gunnar
Ringsted, Sævar Benediktsson,
örn Magnússon og Matthias
Henriksen. Auk þeirra leika og
syngja Barbara Harrington og
Katarina Rohneð, en þær eru
kennarar við Tónlistarskóla
Akureyrar. Jón H. Askelsson
stjórnar átta manna kór, sem
syngur ásamt leikurunum.
Loftur Odds Björnssonar fjallar
um svipað efni og Galdra Loftur.
Kristján Arnason og fleiri sömdu
söngtextana.
„Löng” fumsýningar
kvöld á Akureyri
Leikhúsgestir og
leikhúsfólkið hittast á
Hótel KEA að lokinni
sýningu
SJ-Reykjavik —Nær uppselt er á
frumsýningar Leikfélags Akur-
eyrar í vetur, en þar tfðkast eins
og hér syðra, að betri borgarar
kaupi sér fasta frumsýningar-
miða á leiksýningar vetrarins.
Gestir á frumsýningum snæða
gjarnan kvöldverð fyrir sýningu á
Hótel KEA. Nú hefur hótelið bætt
þjónustu sína með þeim hætti, að
nú geta leikhúsgestir haldið
borðum sinum á Hótel KEA eftir
leiksýninguna og komið þá aftur
og skeggrætt um leikritin við aðra
frumsýningargesti og leikhús-
fólkið, sem alla jafna fjölmennir
á Hótel KEA til að halda hátíðlegt
frumsýningarkvöldið. Dreifibréf
um þessa nýju þjónusiu var borið
i hús á Akureyri og eflaust fýsir
marga að eiga nokkur ánægjuleg
föstudagskvöld í vændum i
samkomuhúsinu og á Hótel KEA i
góðum félagsskap.
Miðasala er nú i fullum gangi
hjá Leikfélagi Akureyrar, en
áskriftarkort eru einnig seld á
aðrar sýningar en frumsýningar,
auk þess sem selt er á hverja
sýningu um sig.
Nýr umdæmisstjóri Kiwanis
Hér á landi eru nú starfandi 32
Kiwanisklúbbar og félagar i þeim
eru tæplega 1200. Kiwanishreyf-
inginhefurstarfað hér i 13 ár. Að-
almarkmið og starfssvið hreyf-
ingarinnar eru menningar- og
liknarmál. A sviði liknarmála
hefur starfssvið hreyfingarinnar
verið mjög víðtækt og árangurs
rikt bæði i einstökum sveitarfé-
lögum og á landinu i heild. A K-
daginn 1974 sameinuðust allir Ki-
wanisfélagar um að vinna I þágu
geðsjúkra. Þann dag var lykill-
inn, merki liknarstarfsins seld-
ur. Jafnframt voru málefni geð-
sjúkra kynnt.
A umdæmisþingi Kiwanis-
hreyfingarinnar i vor, var ákveð-
ið aðhalda K-dag 29. október n.k.
Sá dagur verður einnig helgaður
málefnum geðsjúkra. Hreyfingin
telur aö mikil þörf sé á aö vakning
verði meðal þjóðarinnar I mál-
efnum geðsjúkra og þess vegna er
áfram unnið aö málefnum þeirra.
Fleiri Kiwanismenn eru nú hlut-
fallslega hér á landi, en i nokkru
öðru landi.
Fulltrúar Islands hafa gegnt
æðstu embættum innan Evrópu-
hreyfingar Kiwanismanna. A þvi
starfsári sem er að ljúka hefur
Bjarni B. Ásgeirsson veriö
Evrópuforseti hreyfingarinnar.
30. september s.l. uröu stjórn-
arskipti i umdæmisstjórn Kiwan-
is á Islandi. Bjami Magnússon
útibússtjóri lét þá af störfum sem
umdæmisstjóri og við tók ólafur
Jensson framkvæmdastjóri.
Fulltrúar Islands I Evrópu-
stjórninni á næsta ári verða
Eyjólfur Sigurðsson, Bjarni
Magnússon og Ölafur Jensson.
Alyktanir á
landsþingi
Þroskahj álpar
Svofelldar áiyktanir voru gerð-
ar á landsþingi Þroskahjálpar
sem haldið var 15. og 16. okt. s.l.
og voru þær samþykktar sam-
hljóða.
1. Landsþingið bendir á nauðsyn
fyrstu þjónustu fyrir fweldra
þroskaheftra þ.e. upplýsinga-
starfsemi allt frá þvi að grein-
ing barnsins fer fyrst fram.
Þessa þjónustu gætu heilsu-
gærlustöövar veitt að nokkru
leyti.
2. 'Landsþingið bendir á að hinn
þroskahefti hafi jafnan rétt til
almennrar þjónustu, sem öör-
um borgurum er veitt t.d. i
leikskóla, á dagheimilum og
skóladagheimilum.
3. Landsþingið villskora á stjórn-
völd, að sjá svo um, að ekki
skorti fé til þess að framkvæma
reglugerð um sérkennslu sem
sett var 1. júni s.l.
4. Landsþingið leggur áherslu á
nauðsyn þess, að öll sú besta
þjónusta fyrir þroskahefta,
sem hægt er að veita i nútima
þjóðfélagi sé fyrir hendi i
hverjum landshluta. Lands-.
þingið minnir á nauðsyn skjótr-
ar uppbyggingar nauösynlegr-
ar þjónustu eins og vinnumiðl-
unar, verndaöra vinnustaða,
fjölskylduheimila og dvalar-
heimila fyrir alla þá, sem á
slilcri þjónustu þurfa að halda.
5. Nauðsynlegt er að daggjöld til
starfandi dvalarheimila séu
hækkuð til þess að þeim sé gert
kleift aö ná markmiöum sem
unnið er að, en ekki nást með
daggjöldum þeim, sem nú eru i
gildi.
6. Landsþingið bendir á nauðsyn
á auknu samstarfi foreldra og
starfsfólks og beinir þvi til
stofnana fyrir þroskahefta að
beita sér fyrir stórauknu sam-
starfi við foreldra.
7. Landsþingið vill beina þvi til
stjórnar Þroskahjálpar, og
allra aðildarfélaganna að stór-
auka alla fræðslu og umræðu
um málefniö og vinna að þvi, að
öll fræðsla um þroskahefta sé
aukin i skólakerfinu, meðal al-
mennings og fyrir foreldra.
8. Stofnþing landssamtakanna
Þroskahjálpar skorar á heil-
brigöisráðherra að beita sér
fyrir þvi aö tannlæknatki er
Lionshreyfingin gaf til þjónustu
við þroskahefta verði tekin i
notkun i samræmi við niður-
stöðu nefndar skipaðri af heil-
brigðisráðuneyti, Styrktarfél-
agi vangefinna I Reykjavik og
Tannlæknafélagi Islands.
Þar sem Skeifan hættir rekstri
verzlunar sinnar í Kjörgarði
31. október bjóðum við
20% STAÐGRE/ÐSLU-
AFSLÁTTÁ MORGUN,
MÁNUDAG
Athugið! - Aðeins þennan eina dag
l KJÖRGARÐI SÍMI16975
STÓRKOSTLEGT Athugið
úrval greiðsluskilmála
tUtínta
Gluggatjaldadeild
KJÖRGARÐI2T1-84-78