Tíminn - 30.10.1977, Page 32

Tíminn - 30.10.1977, Page 32
32 Sunnudagur 23. október 1977 Anthon Mohr: Árni og Berit FERÐALOK barnatíminn Ævintýraför um Kyrrahafið og Suður-Ameríku Nokkrir dagar fóru i þennan margbrotna undirbúning. Þau lögðu ekki upp fyrr en 12. nóvember, nákvæmlega einu ári og einum degi betur, frá þvi að þau voru handtekin i Krasnojarsk. Alla leið til Tukolan voru þau samferða stór- um hópi sem lika var á leið frá fangabúðunum. 1 þeim hópi voru þau Nikolai, Tatjana, Maruschka og þeirra menn. Alls taldi hópur- inn um þrjátiu manns. Anna gat þvi miður ekki lagt upp með þeim, þvi að maðurinn hennar hafði meitt sig i annan fótinn nokkrum dögum áður, svo að þau voru neydd til að fresta för- inni. Berit þótti það sárt að skiljast við önnu. Hún hafði ætið verið henni svo góð. Siðast kvöddu þau fylkisstjór- ann og frú hans. Berit fann það á sér, þótt frúin, fölleit og grann- vaxin, segði ekki neitt, þá saknaði hún þess, að geta ekki lika yfirgefið þennan kalda frostbitna stað, og ferðast i suður- átt i sól og hlýju eins og hin. Og svo lagði hin langa lest upp. Auk þeirra 30 hreina, sem voru fyrir sleðum ferðafólksins, voru mörg hreindýr fyrir farangurssleðum og allmörg laus til vara. Það voru þvi nær 100 hreindýr i lestinni, sem lagði upp frá Verchojansk þennan frostkalda vetrarmorg- un. Átta hjarðmenn og konur þeirra bættust lika i hópinn til að stjórna hreindýrunum og sinna um þau i ferð- inni. Það þarf að annast hreindýrin vel i slikum ferðum, smala þeim á morgnana, spenna þau fyrir sleðana og gæta þess, að þau svelti ekki. Þetta gera ekki aðrir vel en vanir hjarðmenn. Hvorki Árni né Berit höfðu nokkru sinni stjórnað hreindýri fyrir sleða. Fyrir æfða öku- menn er þetta litill vandi, en góða æfingu þarf til þess. — öku- hreinninn er i eðli sinu stýggur og hálfvilltur. taminn. ökurmaðurinn verður að stjórna honum með lipru, öruggu taum- haldi, og kenna honum að hlýða og halda rettu striki. Fyrstu dagana gekk þeim Árna og systur hans illa að stilla hreinana. Þeir vildu þjóta út úr brautinni ýmis til hægri eða vinstri, en smátt og smátt fengu þau æfingu i taumhaldinu. En þetta voru allt smámunir. Nú voru þau frjáls og leið þeirra lá i suðurátt, i burtu frá „kuldavitinu” i norðri. Hvað gerði það til, þött þau kollsteyptust öðru hverju að sleðanum. Það var bara til gam- ans. Hjarðmenn i Siberiu nota ekki sleða, sem likjast hreindýrasleðum á Finnmörk, sem Lappar nota. Þama eru sleðarnir mjórri og grindin undir þeim hærri. Þar sem heið- amar eru ósléttar og grýttar, eins og viða er á þessum slóðum, vilja þvi sleðamir velta. Leiðin lá i suðurátt, upp með Jana-fljótinu. Þessi langa lest liðaðist upp með fljótinu, og hreindýrin fóm á hröðu brokki. Nú var annar blær yfir fólkinu, en þegar það var á norður- leið um þessar sömu slóðir. Nú var fólkið frjálst og þá gleymdist fljótt þrældómurinn i blýnámunum, kuldinn og hlekkirnir. Fylgdarmennirnir kunnu vel að fara með hreindýrin. Þeir létu dýrin skokka áfram með jöfnum hraða næstum hvildarlaust allan dag- inn. Ámi skemmti sér vel á morgnana, þegar hjarðmennirnir voru að handsama ökudýrin og spenna þau fyrir sleð- ana. Handtökin voru svo hröð og hnitmiðuð, að yndi var á að sjá. En erfiðlega gekk Árna að skilja þessa menn. Þeir voru af flökkuþjóð, sem lengi hefur dvalizt i þessum héruðum Siberiu, en um aldaraðir hafa þeir varðveitt móðurmál sitt i sambúð- inni við Rússa, og skilja yfirleitt ekki rússnesku. Sjötta ferðadaginn mættu ferðamennimir stórum hópi ferða- manna á norðurleið. Var paö kaupmannalest frá Verchojansk, sem hafði farið i söluferð til Jakutsk. Var það rikur kaupmaður frá Ver- chojansk, sem var for- ingi fararinnar. Hann hafði farið suður með loðskinn, filabein og mannútstennur (mannút= fomaldarfill. Leifar finnast i jarð- lögum i Siberiu), en keypti og flutti aftur norður kornvörur, sykur, nýlenduvömr, vefnaðarvörur o.fl. Slikar ferðir fór þessi kaupmaður árlega og var venjulega þrjá til fjóra mánuði i ferðinni. Alltaf fór hann þessar ferðir á veturna, þvi að þá voru allar mýrar, ár og vötn á haldi. 1 þessari löngu kaup- mannalest voru um 200 hestar undir böggum, sem allir voru i einni lest, eins og heylest á ís- landi. Á öllum viðkomu- stöðum átti kaupmaður- inn hey- og matarforða fyrir menn og skepnur. Fjöldi þjóna og hesta- manna var i ferðinni og leit svo út sem hér væri heilt sveitarfélag að flytja sig milli héraða. Fyrstu vikuna var veðrið stillt og bjart, en þegar lengra kom suður i fjallgarðinn, breyttist veðrið. Dimmir skýjabólstrar lágu yfir fjöllunum og jafnframt fór að hvessa. En þótt leiðin lægi nú yfir fjöll og fjallaskörð, þá lækkaði frostið. Niðri i Janadalnum hafði frostið jafnan verið um 50 stig, en upp i fjöll- unum var það aðeins 37 stig, en af þvi að hvass vindur var á, þá virtist þó enn kaldara en niðri i dalnum, þegar frostið var um 50 stig. Nú fannst engum of heitt á -sleðanum, og allir lofuðu guði fyrir að hafa birgt sig vel af fötum og loð- feldum, áður en lagt var upp i þessa löngu vetrarferð. Uppi i Tukolan-skarð- inu var öskurok. Til allrar hamingju var vindurinn á eftir, en þó

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.