Tíminn - 30.10.1977, Blaðsíða 36
36
Sunnudagur 30. október 1977
Finnbogi Arndal og Jón Þórisson viö nýja sjúkrabilinn.
Sjúkrabíll í
uppsveitum
Borgarfj arðar
Gjöf frá Kiwanismönnum
í héraðinu
SJ-Reykja vik. Siðastliöinn
laugardag afhenti Kiwanis-
klúbburinn Jöklar I Borgarfiröi
Björgunarsveitinni Oki sjúkrabif-
reiö aö andviröi tæpar 2 milljdnir
króna í félagsheimilinu Brún i
Bæjarsveit.
Félagar i Jöklum söfnuöu fé til
aö kaupa bilinn i sveitunum
noröan Skarðsheiöar og héldu
dansleiki I fjáröflunarskyni.
Klúbbfélagar unnu viö innrétt-
ingu, frágang og málningu á
bilnum i sumar.
Næsta verkefni Kiwanisklúbbs-
ins Jökla er söfnun fjár til kaupa
á snjóbfl eða snjófarartæki fyrir
Björgunarsveitina Heiöar i
Mýrarsýslu.
Jón Þórisson, formaöur Bjikg-
unarsveitarinnar Oks, tók viö
lyklum bifreiðarinnar og gjafa-
bréfi og sagöi viö þaö tilefni aö
fullbúin sjúkrabifreiö í uppsveit-
um Borgarfjaröar drægi nokkuð
úr áhyggjum fólks vegna brott-
flutnings héraöslæknis frá Klepp-
járnsreykjum til Borgarness.
Auk hans tóku til máls Finnbogi
Amdal, forseti Jökla. Hannes
Hafstein framkvæmdastjóri
SVFl, Bragi Nielsson læknir við
Heilsugæzlustööina i Borgarnesi,
Haukur Júlíussyni ritari Jökla og
Sigríöur Jónsdóttir formaöur
Slysavarnadeildarinnar Hrings-
ins.
SKIL hjólsögina er óþarfi að kynna náið, si/o þekkt
er hún orðin. Er frábærlega vel hönnuð og jafnvægi
vélarinnar gott. Þannig þarf ekki nein stórátök, þó
verið sé að saga þykkt efni. Auðvelt er að stilla dýpt
sagarblaðsins og ,,landið“. Fáanleg eru allar teg-
undir sagarblaða og fljótlegt er að skipta um þau.
Auk hjólsaga framleiöir SKIL afsömu alúð og vand-
virkni, stingsagir, stórviðarsagir, hefla, slípivélar og
fræsara. SKIL rafmagnshandverkfæri svara fyllstu
kröfum nútimans og henta jafnt leikmönnum sem
atvinnumönnum.
Póstsendum myndlista ef óskað er.
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI,VELJA SéC/i.
Einkaumboð á íslandi fyrir SKIL rafmagnshandverkfæri:
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Það er okkur mikil ánægja að geta nú boðið hin margreyndu og
viðfrægu SKIL rafmagnshandverkfæri. SKIL verksmiðjurnar
voru stofnaðar i Chicago i Bandarikjunum árið 1924
til framleiðslu á nýrri einkaleyfisuppfinningu,
rafknúinni hjólsög, hinni heimsfrægu
SKIL-sög, sem viðbrugðið var fyrir gæði.
Siðan hafa verið framleidd mörg verkfæri og
gerðar margar nýjar uppgötvanir
á rannsóknarstofu SKIL verksmiðjanna,
sem hafa gert SKIL handverkfærin
heimsfræg og eftirsótt.
RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI
M.s. Baldur
fer frá Reykjavik þriöjudag-
inn 1. nóvember til Breiða-
fjarðahafna.
Vörumóttaka
mánudag og til hádegis
þriðjudag.
M.s. Esja
fer frá Reykjavik laugar-
daginn 5. nóvember, vestur
um land I hringferö.
Vörumóttaka
mánudag, þriöjudag og miö-
vikudag til Vestfjarðahafna,
Siglufjarðar, Ólafsf jarðar,
Akureyrar, Húsavlkur,
Raufarhafnar, Þórshafnar
og Vopnaf jarðar.
A/lar
konur
fy/gjast
meö
Timanum