Tíminn - 01.12.1977, Page 2
2
Fimmtudagur 1. desember 1977
erlendar fréttir
Bandar í kj amenn
til fundar í Kairó
Fulltréar tiraeia a fundlnum I Kairó, Meir Rosenne og Eli Ben
Elissar.
Washington, New York,
Damascus, Kairó-Reuter. Carter
Bandarikjaforseti sagði i gær, að
viðræður milli israelsmanna og
Egypta væru mikilvægur þáttur i
átt til friðar i Mið-Austurlöndum.
Carter sagði, að Bandarikjamenn
myndu senda fulltrua á fundinn i
Kairó, en sendimaðurinn mun
vera Alfred Atherton, aðstoðar-
utanrikisráðherra. Nu hafa
Bandarikin, ísrael og Sameinuðu
Muzorewa fordæmir
árásirnar á Mósambík
Salisbury-Reuter. Árás
Rhódesiuhers inn í Mósambik,
sem fagnað var sem hernaöar-
sigri af hvita minnihiutanum i
Rhódesiu,virðist hafa varpab
skugga á fyrirhugaðar viðræöur
miili svartra og hvítra leiðtoga
um varanlega lausn deilumála.
Abel Muzorewa biskup, sem nýt-
ur stuðnings 90% svartra manna
sem eru 6,5 milljonir talsins i
Rhódesiu hefur farið hörðum orö-
um um árásirnar, og lýst yfir við-
bjóði og undrun á athæfi hersins.
Hann hefur einnig sagt að þær
hamli góðum árangri i viðræöun-
um.
I bréfi til Ian Smith, forsætis-
ráðherra Rhódesiu, sem birt var i
fjölmiölum i dag', bað Muzorewa
biskup um skýringu á árásunum,
en talið er áð 1.200 þjóðernis-
sinnaöir skæruliöar hafi fallið i
þeim. Hann mæltist einnig til þess
af stjórninni að fullvissa fengist
fyrir þvi að engin hliðstæð fjölda-
morö yröu framin i framtiðinni.
Hann sagði, aö fórnarlömbin
hefðu að meginhluta til verið sak-
lausir flóttamenn.
Talsmaður blökkumannasam-
takanna sagði, aö svar viö bréfinu
yrði aö berast áður en til funda
með Smith kæmi. „Svariö mun
gefa hugmynd um einlægni
Smiths þegar hann boðaöi til
þessara viöræðna” sagði tals-
maðurinn. „Við munum skoða
stöðu okkar i ljósi þess svars sem
við fáum.”
Muzorewa er einn hinna
þriggja leiðtoga blökkumanna,
sem Smith boðaði til fundar um
kosningarétt blökkumanna i
Rhódesiu. Muzorewa hefur boðað
til viku þjóðarsorgar vegna
morðanna i Mósambik, og hann
mun hugleiða fyrirhugaðar við-
ræður þessa viku. Biskupinn hef-
ur ásakað hermenn Rhódesiuhers
fyrir að drepa konur, börn og
karlmenn sem voru flóttamenn,
sem engan þátt hafa átt i bardög-
um.
Hitler,
„Sonur
Hitlers”
til Vínar
Loret
Vin-Reuter. Vestur-þýzki sagn-
fræðingurinn Werner Maser sagði
i dag, að liann mundi koma ntcð
manninn, sem hann telur vera
son Hitlers, til Vinar, þar sem
liann mun svara spurningum um
fortið sina. Maser sagði frétta-
mönnum, að hann vildi að Frakk-
inn Jean Loret héldi fyrsta blaða-
mannafund sinn í Vin i Austurriki
vegna þess að það er ættjörö
Hitlers.
Hitler var fæddur i austurriska
bænum Braunau, og eyddi nokkr-
um árum ævi sinnar i Vin. Maser
telur óyggjandi sannanir fyrir
þvi, að hinn fimmtiu og niu ára
gamli Loret sé óskilgetinn sonur
þýzka foringjans, ávöxtur ástar-
ævintýris Hitlers og franskrar
stúlku, Charlotte Lobjoie, á árum
fyrri heimstyrjaldarinnar.
Maser hefur ritað sjö bækur um
Hitler, og segist hafa komizt i
kynni við meira en tylft fólks,
sem telur sig vera afkomendur
Hitlers, en Loret hefur gefið ýms-
ar uppíýsingar, sem aðeins hafa
getað komið frá Lobjoie sem dó
1951.
Maser sagði, að hann heföi
fengið enn frekari sannanir eftir
að Loret gekk undir læknisfræði-
leg próf, sem gáfu til kynna að
honum svipaöi mjög til þýzka leið-
togans. Jean Loret hefur fram að
þessu neitað að tala við blaöa-
menn.
Þjóðirnar þegið boð Egypta um
að koma til fundar i Kairó til að
undirbúa friðarráðstefnuna i
Genf.
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna, framlengdi i dag varðstöðu
friðargæzlusveita S.Þ. sem skilja
sundur heri tsraelsmanna og Sýr-
lendinga um sex mánuði. 1.249
manna lið hefur haft aðsetur i
Gólanhæðum siðan 1974, en i lið-
inu eru Austurrikismenn, Kan-
adabúar, tranirog Pólverjar, auk
83 manna úr eftirlitssveitum S.Þ.
Foringjar Araba vinna að
skipulagningu Tripoli ráðstefn-
unnar, en Sýrlendingar, Alsirbú-
ar, Suður-Jemenbúar, framá-
menn PLO og aðrir foringjar
Palestinuaraba hafa tekið boði
Libýumanna um að koma til
Tripoli. Talið er að Jórdanir og
Saudi-Arabiumenn munu ekki
verða viðstaddir fundina i Tripoli
og Kairó. Talið er að enginn
þeirra Arabaþjóða, sem hlut eiga
að fyrirhugaðri Genfarráðstefnu,
hafi áhuga á boði Waldheims um
að koma til ráðstefnu i New York
innan tveggja vikna.
Dagblöð i Kairó hafa haldið
áfram að verja aðgerðir Sadats,
og hafa meðal annars sagt, að
undirbúningur Tripoliráðstefn-
unnar hafi mistekizt, en hún
átti að hefjast i dag. Undirbún-
ingur fundarins i Kairó er hins
vegar vel á veg kominn, og
lúxushótel með útsýni tii pýra-
midanna taka nú ekki við neinum
venjulegum gestum, og starfs-
liðið er þjálfað i gyðinglegri
matargerð.
Foringjar PLO fara til Tripoli.
Sovétmenn hafa hafnað boði
Sadats, og Jórdania og Libanon
munu ekki senda fulltrúa nema
allir, sem boðaðir voru komi til
fundar. Bandarik jam enn,
Israelsmenn og Egyptar verða
þvi liklega einir við umræðurnar,
auk fulltrúa S.Þ.
Verðbólgu-
ástandið stefnir
þj óðarbúskapn-
um í hreinan voða
A kaupfélagsstjórafundinum
sem haldinn var að Holtagörðum
25. og 26-þ.m. var eftirfarandi
áiyktun samþykkt: „Hinn árlegi
kaupfélagsstjórafundur haldinn 1
Reykjavík 25.og 26.nóvember 1977
tclur, aö þaö verðbólguástand
sem nú rfkir hér á iandi stefni
þjóöarbúskapnum I hreinan voða
Svo viröist sem kostnaðarliðir I
rekstri fyrirtækja þar á meöal
laun og vextir, hækki sjálfkrafa I
takt við verðbólguna án þess að
tekið sé tillit til möguleikanna á
þvi að fyrirtækin geti axlaö sivax-
andi útgjaldaliði".
SKORAÐ A STJORNVOLD
Hafið að engu sýnd-
arályktanir LÍÚ
GV — Blaðinu hefur borizt yfir-
lýsing frá skipstjórunum Guðjóni
Kristjánssyni og Brynjólfi Ilall-
dórssyni þar sem þeir lýsa furðu
sinni yfir yfirlýsingu þeirri, sem
aðalfundur Liú samþykkti og
sendi frá sér um að banna skyldi
flotvörpuveiöar næsta ár. Þeir
segja: Þvílik afturhalds-sjónar-
ntið, sem þar komu frant, ber
vitni um þann þekkingarskort
bæði á fiskveiðum og rekstri
fiskiskipa, sem þessir aðilar virð-
ast búa yfir, og séu þar sömu
sjónarntið á ferð og komið liafa
fram áður varðandi fiskvinnslu i
landinu, þar sent fyrst ér fjárfest
og siðan er barizt innbyrðis um
aflann, sem á land kemur, með
yfirborgunum og fjölgun vinnu-
stöðva, þar sem enginn rekstrar-
grundvöllur er fyrir hendi, — þá
er þrautalending þessara frarn-
sýnu manna, að fara i betli-
leiðangur i rikiskassann .
Þar segir einnig: Þessir menn
eru mjög fundvisir á leiðir, sem
auðvelda sjómönnum vinnuna, og
effara ættieftir þeirra stórsnjöllu
hugmyndum þá værum við sjó-
menn enn að fiska með gömlu
hampþorsknetunum, nótabátar
okkar væru kraftblakkarlausir,
og við værum að öðru leyti langt á
eftir okkar samtið.
St jórnvöld hafa valið þá leið, að
takmarka sókn með veiði-
stöðvunum, sem að okkar áliti er
rétt stefna til takmörkunar á
heildarafla — ef nauðsyn þykir.
Vinna til sjós er enginn grinleik-
ur, sem útgerðarmenn géta settá
svið með fölskum leiktjöldam til
að skapa sér leiðir að tjaldabaki i
sameiginlega fjárhirzlu lands-
manna. Við lýsum vantrausti
okkar á hugmyndir þeirra i þessu
máli, sem við héldum að hefðu
verið jarðsettar fyrir mörgum ár-
um, en birtast nú á útvegsheimil-
inu sem afturganga liðins tima
vinnuþrælkunar til sjós.
Við skorum á stjórnvöld að hafa
að engu sýndarúlyktanir sem for-
usta Llú hefur fengið samþykkt-
ar á aðalfundi sinum með naum-
um meirihluta.
Vegir og færð:
Ótrúlega gott ástand
miðað við árstíma
SSt —Að sögn vegaeftirlitsmanna
hjá Vegagerðinni er færð nú viða
greiðari eftir að hlánaði. Fært er
frá Reykjavik allt vestur i Gufu-
dalssveit, og átti að ryöja Klett-
háls i gær, en ekki hefur frétzt
hvernigþað hefur gengið. Fært er
um vegi i grennd við Patreks-
fjörö, og stórum bilum fært um
Dynjandi- og Hrafnseyrarheiðar
og raunar allt til ísaf jarða r. Fært
er til Súgandafjaröar og eins inn
Djúp frá ísafirði. Þorskafjarðar-
heiði er ófær.
Þá er greiðfært til Akureyrar
og fært er norður á Strandir allt i
Bjarnarfjörð. Einnig er fært til
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. —
Greiðfært er milli Akureyrar og'
Húsavikur um Dalsmynni. Frá
Húsavik er fært með ströndinni
allt til Vopnafjarðar. Nú er fært
um Mývatns- og Möðrudalsöræfi
—stórum bilum — til Austurlands
og er það óvenjulegt, þó er þess
að geta, að Jökulsá á Fjöllum
rennur yfir veginn vestan brúar
við Grimsstaði og þar er allnokk-
uð vatn á veginum og aðeins fært
störum bilum.
A Austfjörðum er greiðfært um
vegi nema Breiðdalsheiði. Fært
ersiðan suður með fjörðum fyrir
Hvalnes, og siðan sem leið liggur
til Reykjavikur.