Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 4
4 3. júní 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 2.6.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 71,53 71,87
Sterlingspund 133,5 134,14
Evra 91,62 92,14
Dönsk króna 12,282 12,354
Norsk króna 11,78 11,85
Sænsk króna 9,917 9,975
Japanskt jen 0,6339 0,6377
SDR 106,45 107,09
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
126,7556
ÍRAN, AP Talsmenn Íransstjórnar
ítrekuðu í gær að hún væri stað-
ráðin í að halda kjarnorkuáætlun
sinni til streitu. Þeir sögðu hins
vegar ekkert um sáttatilboðið sem
stórveldahópurinn, Bandaríkin,
Frakkland, Bretland, Þýskaland,
Rússland og Kína, hefur komið
sér saman um. Samkvæmt því
stendur Írönum ýmiss efnahags-
legur ávinningur til boða gegn því
að þeir hætti auðgun úrans.
Bandaríski utanríkisráðherr-
ann Condoleezza Rice sagði að
Íranar yrðu að gefa skjót svör við
tilboðinu. Að öðrum kosti ætti
Íran yfir höfði sér alþjóðlegar
þvingunaraðgerðir. -aa
Þrýst á Íransstjórn:
Tjáir sig ekki
um sáttatilboð
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur í Árborg hafa
náð samkomulagi um meirihluta-
samstarf í bæjarstjórn á næsta
kjörtímabili. Stefanía Katrín
Karlsdóttir, fyrrverandi rektor
Tækniháskóla Íslands, hefur verið
ráðin bæjarstjóri.
Þorvaldur Guðmundsson, efsti
maður á lista Framsóknarflokks í
Árborg, verður forseti bæjar-
stjórnar. Sjálfstæðisflokkur fer
með embætti formanns bæjarráðs
og mun Þórunn Jóna Hauksdóttir
gegna því starfi fyrsta starfsárið.
Eyþór Arnalds tekur við af henni
að loknu ársfríi sínu frá bæjar-
stjórn sem hann hyggst taka sér á
meðan hann vinnur í málum tengd-
um ölvunarakstri sínum um miðj-
an maí.
Frekari skipting embætta og
málefnasamningur flokkanna
tveggja verður kynntur í næstu
viku.
Stefanía Katrín Karlsdóttir er
42 ára viðskiptafræðingur sem
skipaði átjánda sæti á lista sjálf-
stæðismanna í Reykjavík í nýaf-
stöðnum borgarstjórnarkosning-
um. - sh
Fyrrverandi rektor Tækniháskólans hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Árborg:
Meirihlutasamstarf í Árborg
NÝR BÆJARSTJÓRI Stefanía Katrín Karls-
dóttir skipaði átjándi sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Hún hefur nú verið
ráðin bæjarstjóri í Árborg,.
STJÓRNMÁL Ákveðið var á fundi for-
seta Alþingis og formanna allra
þingflokka að taka frumvarp
menntamálaráðherra um Ríkisút-
varpið og frumvarp iðnðarráðherra
um nýsköpunarmiðstöð af dagskrá
sumarþingsins og fresta afgreiðslu
þeirra til haustsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráherra segir niður-
stöðuna vera vonbrigði, en bendir á
að mörg önnur frumvörp á hennar
snærum hafi verið afgreidd á sum-
arþinginu. Þar á meðal rammalög-
gjöf um háskóla og réttarstöðu
einkaskóla. „Ég undirstrika að
frumvarpið um Ríkisútvarpið verð-
ur rætt í upphafi haustþingsins og
þá ásamt fjölmiðlafrumvarpinu.“
Talið var að frumvarpið um Rík-
isútvarpið hafi átt skammt í land og
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er frestun þess sögð tengjast
aðstæðum og atburðarás sem farin
sé af stað innan Framsóknarflokks-
ins. Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra kveðst binda vonir við
að frumvarpið um stuðning við
tæknirannsóknir, nýsköpun og
byggðaþróun verði tekið upp í
haust. Lítið sé við því að segja þótt
málinu sé frestað nú.
Stjórnarliðar vilja ljúka þing-
störfum í dag, fyrir hvítasunnu-
helgina, en margir stjórnarand-
stæðingar vildu í gærkvöldi boða
eldhúsdagsumræður á þriðjudag.
Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir það nokkur vonbrigði að
hafa ekki náð að afgreiða frumvarp-
ið um Ríkisútvarpið.
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður vinstri grænna fagnar
því að frumvörpin um nýsköpunar-
miðstöð og RÚV skuli vera tekin út
úr þinginu. „Þetta er ánægjulegt
því þessi frumvörp voru umdeild
innan þings sem utan,“ segir
Ögmundur.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar, segir að með þessu verði unnt að
ljúka störfum þingsins í dag. „Þessi
niðurstaða er til komin vegna þess
að stjórnarflokkarnir geta ekki
komið sér saman um afgreiðslu
frumvarpanna um RÚV og nýsköp-
unarmiðstöðina,.“ segir Margrét.
johannh@frettabladid.is
Frumvarpi um RÚV frestað
Afgreiðslu frumvarpa um Ríkisútvarpið og nýsköpunarmiðstöð verður frestað til haustsins. Stjórnarand-
staðan segja þetta gert vegna ósamkomulags stjórnarflokkanna. Menntamálaráðherra lýsir vonbrigðum.
FORSETAR OG ÞINGFLOKKSFORMENN Frestun afgreiðslu á frumvarpinu um RÚV og nýsköpunarmiðstöðina var endanlega ákveðin á fundi þingflokksformanna undir kvöld í gær.
Steingrímur J. Sigfússon:
Sigur stjórnarandstöðu
„Við fögnum því ef tekst að koma vitinu fyrir ríkisstjórnina og hún hættir við
að afgreiða umdeildustu og verstu frumvörpin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður vinstri grænna. „Það er mikill árangur fyrir stjórnarandstöðuna ef
hún fær sitt fram í því að Ríkisútvarpinu verði ekki breytt í hlutafélag og þetta
stórgallaða nýsköpunarfrumvarp verður ekki afgreitt. Ef það verður niðurstaðan
þá er það auðvitað bara ánægjulegt. Þetta eru frumvörp sem stjórnarandstaðan
og fjölmargir aðrir í þjóðfélaginu eru mjög andvígir og við höfum bara náð þeim
árangri að ríkisstjórnin hefur fallið frá því að keyra þessi mál í gegn, það er mjög
ánægjulegt. Það hefur komið í ljós að nýsköpunarmiðstöðvarfrumvarpið er svo
meingallað að það er varla afgreiðsluhæft.“ - sh
„Það endurspeglar þá óstjórn sem er á málum ríkisstjórnarinnar sem síðan smitar
forystu þingsins,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, um að
þing skuli rofið án þess að frumvörp um Nýsköpunarmiðstöð og RÚV skildu vera
tekin til afgreiðslu. „Það var ákveðið að kalla til sumarþings til að klára þessi veiga-
miklu mál og svo verður ekkert af því svo þetta er hálfgert reiðileysi en það þurfti
svo sem að afgreiða fjölda annarra mála. Það er einnig mjög sérstakt að afgreiddir
séu tugir mála á þessum stutta tíma að sumri en það hefði mátt klára þau fyrir
sveitarstjórnarkosningar hefði ríkisstjórnin skipulagt vinnuna í tíma. Hins vegar tel
ég það ágætt að þessi tvö veigamiklu mál séu komin út úr þinginu en þau þurfa
mun meiri yfirlegu en þau eru vanbúin til afgreiðslu eins og þau eru.“ - jse
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Endurspeglar óstjórnina
TÉKKLAND, AP Tékkar gengu að
kjörborðinu í gær í þingkosning-
um sem ómögulegt var að segja
fyrir um hvernig færu þar sem
mjög mjótt var á munum milli
fylkinga í síðustu skoðanakönnun-
um.
Hart var tekist á í kosningabar-
áttunni; meðal annars var forsæt-
isráðherrann Jiri Paroubek, sem
er jafnaðarmaður, sakaður um
spillingu af mótherjum sínum í
Borgaralega lýðræðisflokknum,
flokki Vaclavs Klaus forseta. Kjör-
stöðum verður ekki lokað fyrr en
á hádegi í dag svo að úrslit verða
fyrst ljós með kvöldinu. - aa
Tékkar ganga að kjörborðinu:
Mjótt á mun-
um í Tékklandi
Á KJÖRSTAÐ Tékknesku forsætisráðherra-
hjónin laga sig til á kjörstað í Prag í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÓLAMÁL Þrír nemendur Ísaks-
skóla, þau Sigrún, Ísak Sölvi og
Ísak Elí, afhentu skólanum í gær
nýjan flygil við skólaslit.
Tilefnið var áttatíu ára afmæli
skólans sem var stofnaður árið
1926 af Ísak Jónssyni, en nemend-
urnir báru nöfn hans og konu hans
Sigrúnar.
Börnin tóku lagið við athöfnina
og sungu meðal annars Ísaksskóla-
lagið við undirspil kennara. Gjöfin
kemur sér vel en flygillinn kemur
í stað gamla píanósins sem hefur
verið notað frá upphafi skólans.
- gþg
Ísaksskóli áttatíu ára:
Fær nýjan
flygil að gjöf