Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 6

Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 6
6 3. júní 2006 LAUGARDAGUR Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is ���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram �� �� �� �� � �� �� �� � ��� laugardagur 3. júní Dagur helgaður fjölmenningu í Hafnarfirði Kl. 11:00 Stokrotka, pólsk matarkynning í pólsku búðinni Hvaleyrarbraut 35 Kl. 13:00 Opið hús hjá Nýbúadeild Lækjarskóla. Fjölmenningardagskrá, söngur, dans, leikrit o.fl. Afrakstur vetrarins sýndur. Kl. 13:00 Manneskjubókasafn á Gamla bókasafninu. Jafningjafræðsla unga fólksins í Hafnarfirði á vegum Competó. Kl. 14:00 66. vormót Hraunbúa í Krýsuvík sjá nánar á www.hraunbuar.is Kl. 15:00 Stuttmynd um fjölmenningu í Hafnarfirði í Gamla bókasafninu Kl. 15:00 Innileg fjarvera. Opnun sýningar á verkum listmálarans og ljósmyndarans Patricks Huse í Hafnarborg Kl. 17:00 Sýning á Agnes High Quality í Jaðarleikhúsinu. Athugið að sýningin er á ensku. ����������������������������� �������������������������������������� Kl. 19:00 Hljómsveitin Mogadon leikur á A. Hansen fram eftir kvöldi Kl. 20:00 Cantare – söngvakeppni hinna mörgu tungumála í Hafnarfjarðarleikhúsinu. ������������������� Kl. 20:00 Fuglaskoðun í Höfðaskógi og við Hvaleyrarvatn á vegum Skógræktar Hafnarfjarðar sunnudagur 4. júní Kl. 14:00 Bastien og Bastienne eftir W.A. Mozart. Óperusýning fyrir börn í Hafnarfjarðarleikhúsinu í samvinnu við barnaóperuna „Piccolino“ frá Vínarborg. Börnin eru virkir þátttakendur. Kl. 20:00 Það besta úr „Nótt í Feneyjum“ eftir J. Strauss í Hafnarborg. Aríur, dúettar og ýmis hópatriði. Dagskráin var áður flutt í Óperustúdíói Íslensku óperunnar. Kl. 20:00 Kakóbollinn í Gamla bókasafninu Alþjóðlegar veitingar og tónlistaratriði. Kl. 20:00 Sýning á Agnes High Quality í Jaðarleikhúsinu. Athugið að sýningin er á ensku. ����������������������������� �������������������������������������� Kl. 24:00 Drungablús og djöflakántrí, miðnæturtónleikar á A. Hansen mánudagur 5. júní Kl. 20:00 Pétur og úlfurinn í flutningi Alræðis öreiganna í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Rokk-, fusion-, og fönkkennd spunaútgáfa á verki Sergei Prokofieff þar sem sviðsframkoma og klæðaburður vekja athygli. Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar ������ 1.-10. júní 2006 3.-5. júní KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin á Akureyri hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn. Sjálf- stæðisflokkur mun ráða bæjar- stjórastólnum fyrstu þrjú ár kjör- tímabilsins og Samfylkingin það síðasta. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, mun líklega gegna starfinu áfram fyrst um sinn og þá mun Hermann Jón Tómasson, odd- viti Samfylkingar, starfa sem for- maður bæjarráðs. Þá er búist við að Hermann taki við bæjarstjóra- stólnum síðasta árið. Frekari skipting í embætti liggur ekki fyrir. Kristján segir að sátt hafi verið um samninginn meðal bæjarfull- trúa. „Við vorum sammála í öllum meginatriðum. Það voru örfá atriði sem skildu á milli sem vörð- uðu tengibrautir, skólamál og skipulagsmál.“ Hermann tekur í sama streng. „Við þurftum að takast á um bæði málefni og verkaskiptingu og náðum niðurstöðu sem okkur finnst viðunandi.“ Jóhannes G. Bjarnason, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokks, hefur blendnar tilfinningar til sam- starfsins. „Ég hef nú ekki séð hvernig þessi meirihlutasamning- ur lítur út á pappír. Ég óska þeim velfarnaðar og velgengni en auð- vitað óttast maður það, af því að það hefur verið töluverður nún- ingur milli þessara flokka, að það sé um einhvers konar málamiðlan- ir að ræða sem kannski duga ekki til að leysa okkar stærstu og erfið- ustu málaflokka.“ Baldvin H. Sigurðsson, oddviti vinstri grænna, er óánægður. „Þetta eru vonbrigði fyrir alþýðu- fólk á Akureyri sem vildi bersýni- lega einhverjar breytingar og ætl- aðist til að hér yrði vinstri viðreisnarstjórn.“ Hann efast um að breyting verði á bæjarstjórn- inni með innkomu Samfylkingar. Spurður um bæjarstjórastólinn segist Kristján munu sækjast eftir honum fyrst um sinn. „Viðræðurn- ar hafa sem betur fer ekki snúist um persónur en ég reikna síður með að sitja öll þrjú árin.“ Baldvin undrast það. „Mér skildist að Kristján ætlaði að verða bæjar- stjóri í fjögur ár ef hann næði kosningunni.“ Í kjölfar vangaveltna í aðdrag- anda kosninganna um það hvort Kristján væri á leið í þingframboð gaf hann það út að hann yrði bæj- arstjóri öll fjögur árin ef það kæmi til greina. Oddur Helgi Halldórsson, full- trúi L-lista, vildi ekki tjá sig um nýjan meirihluta. stigur@frettabladid.is Kristján verður ekki bæjarstjóri öll árin Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. Sjálfstæðismenn ráða bæjarstjórastarfinu fyrstu þrjú árin. Kristján Þór Júlíusson mun sækjast eftir því fyrst um sinn. ODDVITARNIR Kristján Þór Júlíusson og Hermann Jón Tómasson kátir með niðurstöðuna eftir að samningar náðust í gær. ÞJÓNUSTA Viðskiptavinir Símans munu framvegis greiða fast verð, 39 krónur á mínútuna, þegar þeir eru staddir erlendis og taka á móti símtölum frá Íslandi. Þá gildi einu í hvaða landi viðskiptavinurinn sé staddur. Síminn segir þetta lið í einföld- un á gjaldskránni. Þannig sé komið til móts við þann hóp manna sem ferðast mikið utan landsins. Verð á þessum símtölum hefur hingað til verið mismunandi eftir lönd- um. Áfram verður þó gjaldfært fyrir þau aukagjöld sem erlend símafyrirtæki taka fyrir þjónustu sína. - sh Síminn breytir gjaldskrá sinni: Sama verð í öllum löndum DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri, Charles Róbert Onken, var í gær dæmdur til eins árs fangelsis- vistar í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna grófra líkamsárása í sept- ember 2004. Var hann fundinn sekur um að hafa slegið tvo menn hnefahöggi í andlit á Laugavegi aðfaranótt 5. september fyrir tæpum tveimur árum. Féll annar mannanna með höfuðið í götuna við höggið svo að blæddi inn í höfuðkúpu og hljóð- himnu en áverkarnir hefðu hæg- lega getað dregið hann til dauða samkvæmt framburði lækna. Hinn maðurinn sem kom félaga sínum til hjálpar fékk einnig hnefahögg svo hann nefbrotnaði. Þótti með framburði vitna full- sannað að hinn dæmdi, sem þekkt- ur var á tímabili sem Charlie strippari, hefði verið sá er höggin veitti en hann neitaði sök allan tímann. Hefur hann áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. Dómurinn hafnaði hins vegar rúmlega fimm milljón króna skaðabótakröfum fórnarlambanna þar sem kröfur beggja þóttu van- reifaðar. - aöe Dæmdur fyrir tvær grófar líkamsárásir: Eins árs fangelsi FANGELSI FYRIR LÍKAMSÁRÁS Annar mann- anna sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka sem hefðu hæglega getað dregið hann til dauða. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI MENNTAMÁL Framvegis mun áttatíu prósentum af nýjum íbúðum á stúd- entagörðunum verða úthlutað til nema sem búsettir eru á höfuð- borgarsvæðinu. Með tilkomu Skuggagarðs, nýs stúdentagarðs sem rís við Lindargötu, „gefst kost- ur á að hefja leiðréttingu ójafnvæg- is sem ríkir í úthlutun“, eins og segir í tölvubréfi sem nemar við Háskóla Íslands fengu sent frá Stúdentaráði. Fram til þessa hafa nemar utan af landi aðallega átt möguleika á úthlutun einstaklings- og paríbúða, en breytingarnar gera ráð fyrir því að nemar af höfuðborgarsvæðinu hafi meiri möguleika á íbúðunum sem teknar verða í notkun frá og með haustinu. Ásgeir Runólfsson, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs, segir eftirspurn eftir íbúðum á Stúdentagörðum vera það mikla að nauðsynlegt sé að úthluta lóðum undir svæði fyrir frekari uppbygg- ingu Stúdentagarða. „Eins og stað- an er núna erum við að bjóða náms- mönnum, sérstaklega af landsbyggðinni, upp á húsnæði til þess að þeir geti komið á höfuð- borgarsvæðið til þess að mennta sig. Það er mikilvægt að haldið verði í það meginmarkmið og það verður gert. Það er orðið afar brýnt, að lóðum verði úthlutað undir stúd- entagarða þar sem eftirspurnin eftir íbúðum er gríðarlega mikil og mikilvægt að komið verði til móts við þá miklu þörf.“ - mh Breytingar á úthlutunarreglum stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta: Höfuðborgarbúar komist að ÁSGEIR RUNÓLFSSON Segir uppbyggingu stúdentagarða miða að því að útrýma löng- um biðlistum eftir íbúðum. KJARAMÁL „Við hreyfum okkur ekki fyrr en Landspítalinn kemur til móts við okkur,“ segir Erik Brynjar Eriksson, formaður Félags lækna- nema. Í dag er þriðji dagurinn sem læknanemar á fjórða og fimmta ári mæta ekki til vinnu sinnar á LSH. Með þessu mótmæla þeir því sem þeir kalla kjaraskerðingu af hálfu stjórnenda spítalans. Deilan snýst um lækkun vaktaálags úr tólf pró- sentum í átta og fækkun daga sem spítalinn greiðir þeim fyrir undir- búningsnámskeið fyrir vinnu á spítalanum úr tíu í sjö. -jss Læknanemar á LSH: Hreyfum okkur ekki LANDSPÍTALINN Læknanemar mæta ekki í vinnu í dag. KJÖRKASSINN Þarf að bæta öryggisgæslu við hafnir landsins? Já 59,9% Nei 40,1% SPURNING DAGSINS Telurðu kjarnorkuáætlun Írana ógn við heimsfriðinn? Segðu þína skoðun á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.