Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 8

Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 8
8 3. júní 2006 LAUGARDAGUR VERÐLAUN Agnar Helgason hefur hlotið hvatningarverðlaun Vís- inda- og tækniráðs. Megin starfs- vettvangur Agnars er hjá Íslenskri erfðagreiningu, en hann er jafn- framt aðjúnkt við mannfræðiskor félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, þar sem hann kennir og leiðbeinir háskólastúdentum í framhaldsnámi. Agnar stundaði nám bæði í félagslegri mannfræði og síðan líffræðilegri mannfræði. Hann hefur unnið að ýmsum rann- sóknum á því sviði, ýmist einn eða í félagi við aðra. Með rannsóknum sínum sem birst hafa í fjölmörgum virtustu fræði- tímaritum á sviði mannerfða- fræði, sýndi Agnar meðal annars fram á að um áttatíu prósent af landnámskörlum voru upprunnir á Norðurlöndum, en um 62 pró- sent af landnámskonum voru upp- runnar á Bretlandseyjum. Þetta bendir eindregið til þess að bland- aðar fjölskyldur, þar sem feður voru norrænir en mæður breskar, og afkomendur slíkra fjölskyldna, hafi verið ríkjandi í hópnum sem nam land á Íslandi fyrir um 1100 árum. Af þessum ástæðum hefur Agnar ályktað að flestir landnem- arnir hafi lagt af stað til Íslands frá byggðum norrænna manna á Bretlandseyjum. Nýlegar erfða- rannsóknir Agnars og annarra á fleiri eyþjóðum Norður-Atlants- hafsins hafa rennt frekari stoðum undir þetta. -jss Te & kaffi Tiger Retro Síminn Skífan Dótabú›in Adams Adesso Ben&Jerry’s Benetton Blómaval Body Shop Byggt og Búi› BT Ís-inn Levi’s Lukkusmárinn Nammi.is OgVodafone Skór.is OPI‹ MÁNUDAG ANNAN Í HVÍTASUNNU: EFTIRTALDAR VERSLANIR ERU ME‹ 13-18 Nóatún er opi› frá kl. 11-20 og Hagkaup er opi› frá kl. 12-18. Veitingasta›ir Smáralindar hafa einnig opi›. HVATNINGARVERÐLAUN Agnar Helgason tók við hvatningarverðlaunum úr hendi Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra. Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs: Mannfræðingi veitt hvatningarverðlaun HEILBRIGÐISMÁL „Við höfum ekki hvatt hjúkrunarfræðinga á LSH til eins eða neins varðandi starfs- mannaleigumálið, heldur höfum við hvatt yfirstjórn spítalans, svo og stjórnvöld, til þess að gera eitt- hvað í málunum. Það er sá vett- vangur sem við getum beitt okkur á og það munum við gera áfram.“ Þetta segir Elsa B. Friðfinns- dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, eftir fund sem stjórn þess átti með hjúkrunar- fræðingum á LSH nýverið. Að sögn Elsu var fundurinn tví- þættur. Annars vegar var farið yfir stofnanasamning hjúkrunarfræð- inganna og vörpunina yfir í nýtt launakerfi sem tók gildi 1.maí. „Síðan var rætt um starfs- mannaleigumálið. Farið var yfir þær upplýsingar sem stjórn félags- ins hefur dregið saman, svo og okkar útreikninga. Jafnframt, að þarna séum við að bera saman sam- bærilega hluti og að um sé að ræða hreinan launasamanburð en ekki samanburð á verktökum og fast- ráðnu starfsfólki.“ Elsa sagði að um tvö hundruð hjúkrunarfræðingar svo og stjórn- endur spítalans hefðu sótt fundinn, þar sem skipst hefði verið á skoð- unum af hreinskilni. -jss Hjúkrunarfræðingar og launamunur á Landspítala: Beita sér áfram KOSNINGAR Enn á eftir að mynda meirihluta í fimm sveitarstjórn- um á landinu, Árborg, Dalvík, Húnaþingi vestra, Mosfellbæ og Rangárþingi eystra. Til þess er nægur tími þar sem nýkjörin sveitarstjórn tekur ekki við störf- um fyrr en fimmtán dögum eftir kjördag, lögum samkvæmt, það er sunnudaginn 11. júní. Ef meirihlutasamstarf hefur þá ekki náðst verður oddviti sveitar- stjórnar kosinn á fyrsta fundi. - sh Rúm vika í fyrsta stjórnarfund: Enn óráðið á fimm stöðum Landbúnaður 44 nemendur voru brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands í fyrradag við hátíðlega athöfn í Reykholtskirkju. Þetta er í annað sinn sem skólinn útskrifar nemendur, en hann var stofnaður fyrir rúmu ári. HÁSKÓLAR ÍRAK, AP Strax í kjölfar umfjöllunar um dráp bandarískra hermanna á 24 óbreyttum borgurum í Haditha í Írak í nóvember síðastliðnum koma fram fleiri dæmi um að bandarískir hermenn hafi orðið óbreyttum borg- urum að bana þar í landi. Íbúar í þorpinu Ishaqi halda því fram að ellefu manns, þar á meðal fimm börn, hafi farist þegar banda- rískir hermenn gerðu árás á hús í þorpinu í janúar síðastliðnum. Bandaríski herinn hefur staðfest að árásin hafi verið gerð, en segir að fjórir hafi dáið, einn karlmaður, tvær konur og eitt barn. Síðar bætti bandaríski herinn við að rannsókn stæði yfir á því hvað gerðist. Eitt hús í þorpinu var lagt í rúst, þakið var hrunið og stór hola í einum útveggjanna sem enn stóðu uppi. Innri veggir hússins voru þaktir kúlnagötum og dauð kýr sást skammt frá rústunum. Í myndbandi sem AP fréttastof- an sendi frá sér mátti sjá lík fimm barna og tveggja karlmanna vafin inn í teppi. Á öðrum myndböndum sjást lík þriggja barna aftan á pall- bíl. Íröksk stjórnvöld hafa ákveðið að rannsaka sjálf atvikið í Haditha og Nouri al-Maliki forsætisráðherra kallaði drápin þar „hryllilegan glæp“. Hann sagði að þess háttar athæfi væri „orðið algengt meðal margra í fjölþjóðaliðinu.“ William Caldwell herforingi, talsmaður erlenda heraflans í Írak, sagði „þrjú eða fjögur“ atvik á ýmsum stöðum í Írak vera til rann- sóknar, en vildi ekki veita nánari upplýsingar. Bandaríski herinn hefur meðal annars brugðist við með því að senda hermenn í Írak í sérstaka þjálfun í siðfræði þar sem meðal annars verður fjallað um „þau gildi sem aðgreina okkur frá óvinum okkar“. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hefur sagt að hann líti málið mjög alvarlegum augum og lofar því að ítarleg rannsókn verði gerð á drápunum í Haditha. Niðurstöður hennar verði birtar opinberlega. Á fimmtudaginn sögðu banda- rísk stjórnvöld að Bush forseti hefði ekki frétt af rannsókninni fyrr en mánuði eftir að hún hófst, en fyrr í vikunni hafði því verið haldið fram að forsetinn hefði fengið upplýsing- ar um hana fljótlega eftir að hún hófst. gudsteinn@frettabladid.is Fleiri dæmi um voðaverk Bandarískir hermenn sagðir hafa drepið óbreytta borgara í árás í Írak í janúar. Bandarískir hermenn í Írak verða allir settir í sérstaka þjálfun í siðfræði. GEORGE W. CASEY HERFORINGI Æðsti yfirmaður bandaríska herliðsins í Írak hefur tilkynnt hermönnum að þeir verði að gangast undir sérstaka þjálfun í siðferðilegum efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.