Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 12
3. júní 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
Eigendur matvælaframleiðslufyrirtækisins
Sóma hafa fest kaup á Júmbó samlokum af Jóni
Erni Árnasyni. Alfreð Hjaltalín, framkvæmda-
stjóri Sóma og annar eigenda félagsins, segir að
ætlunin sé að reka félögin í óbreyttri mynd fyrst
um sinn en þeir sjái fyrir sér samlegðaráhrif í
innkaupum og skrifstofuhaldi. Bæði fyrirtækin
hafa verið að auka vöruúrval í brauðréttum,
heilsuréttum og pastabökkum og víkkað út
starfsemi, til dæmis í veisluþjónustu
Júmbó og Sómi eru stærst sinnar tegundar í
sölu á samlokum á Íslandi en samanlagt hafa
þau um 90 prósenta markaðshlutdeild. Afreð
hefur ekki áhyggjur af því að samkeppnisyfir-
völd setji skilyrði fyrir kaupunum eða komi í
veg fyrir þau. „Ef markaðurinn er skilgreindur
þröngt þá erum við kannski stórir en ekki ef
markaðurinn er skoðaður í heild sinni. Við erum
í samkeppni við hvern annan skyndibita eins og
Subway og McDonald´s.“ Þá bendir hann á að
samanlögð velta félaganna hafi verið undir þeim
mörkum sem samkeppnisyfirvöld miða við
þegar þau skoða samruna af þessu tagi en það
mun vera einn milljarður króna.
Sameiginleg velta félaganna nam 700 millj-
ónum króna árið 2004 samkvæmt tölum frá
Frjálsri verslun en miðað við vöxt markað-
arins má ætla að hún nálgist 800 milljón-
ir. Bæði félög voru rekin með hagn-
aði á síðasta ári.
Sómi hefur haft hug á því
að kaupa Júmbó um nokkurt
skeið og lagði fram tilboð á
síðasta ári sem fyrrverandi
eigandi Júmbó hafnaði. Sóma-
menn vilja ekki tjá sig um kaup-
verðið en samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins má ætla að virði Júmbó fari yfir 200
milljónir króna.
eggert@frettabladid.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.843 +1,72% Fjöldi viðskipta: 537
Velta: 5.710 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,60 +0,92% ... Alfesca
3,95 -0,50%... Atorka 5,95 +2,59% ... Bakkavör 49,50 +0,20%
... Dagsbrún 6,18 -0,32% ... FL Group 20,00 +3,09% ... Flaga 4,15
-0,72% ... Glitnir 18,40 +1,66% ... KB banki 800,00 +1,27% ...
Landsbankinn 22,50 +1,81% ... Marel 69,90 +0,00% ... Mosaic
Fashions 16,50 -0,60% ... Straumur-Burðarás 18,10 +5,23% ...
Össur 113,00 +1,80%
MESTA HÆKKUN
Straumur-Burðarás +5,23%
FL Group +3,09%
Atorka +2,59%
MESTA LÆKKUN
Avion Group -1,36%
Flaga -0,72%
Mosaic -0,60%
Fyrirtækið Opin kerfi átti lægsta
boð uppsetningu símstöðva og bún-
aðar sem byggir á internetstöðlum
fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á
Akureyri, í Laxárstöð og Kára-
hnjúkastöð, tæpar 3,7 milljónir
króna.
Hæsta boð í verkið kom frá EJS,
12,8 milljónir króna, en kostnaðará-
ætlun hljóðaði upp á rúmar 7 millj-
ónir króna. Tilboð voru opnuð á
skrifstofu Landsvirkjunar á mánu-
dag. Í verkinu felst meðal annars
útvegun, forritun, uppsetning,
gangsetning, prófanir og kennsla á
IP símstöðvarnar og símabúnaðinn
sem þeim tilheyrir. - óká
Áætlaður kostnað-
ur helmingaður
TILBOÐ OPNUÐ Í IP-SÍMABÚNAÐ
FYRIR LANDSVIRKJUN
Fyrirtæki Verð í krónum
Opin kerfi 3.678.887
TM Software 4.838.561
Opin kerfi 4.884.061
ID Connect 5.083.036
Síminn 5.083.036
Sensa 7.057.192
Nýherji 7.230.186
Sensa 8.622.712
TM Software 9.401.490
Notrek ehf. 11.168.916
Svartækni 12.546.200
EJS 12.806.991
Kostnaðaráætlun 7.039.000
Heimild: Landsvirkjun. Verð eru án VSK.
Búið er að samþykkja tilboð kaup-
hallarinnar í New York (NYSE) í
Bandaríkjunum í samevrópska
hlutabréfamarkaðinn Euronext og
munu markaðirnir renna saman í
einn. Með kaupunum verður til
fyrsta kauphöllin sem hefur starf-
semi beggja vegna Atlantshafsins.
Höfuðstöðvar kauphallarinnar í
Bandaríkjunum verða í New York
en evrópsku höfuðstöðvarnar
verða í París og Amsterdam.
Markaðsvirði sameinaðrar
kauphallar nemur 20 milljörðum
Bandaríkjadala, jafnvirði 1.448
milljarða íslenskra króna.
Kauphöllin í New York atti
kappi við þýsku kauphöllina,
Deutsche Börse, um kaup á Eur-
onext, sem hefur starfsemi í
Belgíu, Frakklandi, Hollandi og
Portúgal. Bitbeinið stóð hins vegar
um höfuðstöðvar markaðarins en
stjórn Deutsche Börse krafðist
þess að höfuðstöðvar Euronext
yrðu færðar til Frankfurt í Þýska-
landi.
Meirihluti hluthafa í Euronext
ákvað að ganga til samninga við
NYSE, sem bauð hluthöfum sam-
evrópska markaðarins 10 millj-
arða dali, 724 milljarða íslenskra
króna, auk hluta í NYSE fyrir Eur-
onext. Einn hlutur í NYSE mun
jafngilda einum hlut í sameinaðri
kauphöll, sem mun eftirleiðis heita
NYSE Euronext. - jab
EURONEXT Með kaupum NYSE í Euronext
verður til fyrsta kauphöllin sem verður með
starfsemi beggja vegna Atlantshafsins.
MYND/AP
NYSE og Euronext
í eina sæng
MARKAÐSPUNKTAR...
Heldur hefur lifnað yfir innlendum
hlutabréfamarkaði undanfarna daga.
Í gær hækkaði úrvalsvísitalan um 1,72
prósent og var það sjötti dagurinn í röð
sem hún hefur farið hækkandi.
Gunnar Smári Egilsson forstjóri, Viðar
Þorkelsson, fjármálastjóri og aðstoð-
arforstjóri, og Þórdís Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Dagsbrúnar, hafa tekið
við stjórn Wyndeham Press, sem er í
meirihlutaeigu Dagsbrúnar.
Íbúðalánasjóður hefur lækkað áætlun
um útlán sjóðsins fyrir árið 2006 og
lækkað áætluð útgjöld um 8 milljarða
króna. Jafnframt er áætluð útgáfa íbúða-
bréfa lækkuð um 6 til 7 milljarða króna.
Sómi kaupir Júmbó samlokur
Sameiginleg velta matvælaframleiðslufyrirtækjanna Sóma og Júmbó nálgast 800 milljónir króna. Kaup-
endur óttast ekki afskipti samkeppnisyfirvalda. Samkeppni er sögð næg við aðra skyndibitasala.
Úrvalsvísitalan stendur í
5.843 stigum og hefur ekki
verið hærri síðan 31. mars.
Í vikunni hækkaði vísitalan
um 5,3 prósent.
Hlutabréf í Straumi-Burða-
rási hækkuðu mest í gær,
um 5,2 prósent í nærri 2,8
milljarða viðskiptum. Mikil
viðskipti voru einnig með
bréf í Landsbankanum eða
fyrir 1,1 milljarð króna. Bank-
inn hækkaði um 1,8 prósent.
Meðal helstu frétta í vikunni
má nefna kaup Blátjarnar,
sem er meðal annars í eigu
Björgólfsfeðga, á fleiri hlut-
um í TM og áform Exista um
skráningu á markað í haust í
kjölfar kaupa á 80 prósenta
hlut í VÍS eignarhaldsfélagi.
- eþa
Góð vika í
hlutabréfum
SKYNDIBITI Framkvæmdastjóri Sóma
óttast ekki að samkeppnisyfirvöld geri
athugasemdir við samruna Sóma og
Júmbó, enda sé samkeppni næg á
markaði skyndibita.
IKEA þrýstir á Dani
Undir húsgögn þarf pláss og ef þeim er mörgum
fyrir komið á sama stað þarf mikið pláss.
Þessi einföldu sannindi segir sænska
húsgangaverslanakeðjan IKEA að
danskir stjórnmálamenn eigi erfitt
með að meðtaka.
Í Jyllands-Posten er frá því
greint að fyrirtækið þrýsti enn
á dönsk stjórnvöld að gera
breytingar á skipulagslögum en í
núverandi mynd hindra þau IKEA í
að reisa vöruskemmur sem fara yfir
5.000 fermetra að stærð. Í þessum
tilgangi hefur fyrirtækið hrint af stað
auglýsingaherferð í Danmörku þar sem
sett eru upp veggspjöld í miðbæjum stærstu þétt-
býlisstaða. Herferðin stendur í fjóra mánuði, en á
sama tíma fer nefnd yfir skipulagslögin.
Aftur orðaður við krár
Bresku blöðin Daily Telegraph og Evening Standard
hafa greint frá því að fjárfestingafélagið Violet
Capital, sem er í eigu KB banka, hafi selt fast-
eignamógúlnum Robert Tchenguiz, og nánum
viðskiptafélaga, 8,4 prósenta hlut í
bresku pöbbakeðjunni Mitchell &
Butlers.
Vaknar því spurningin hvort
Tchenguiz geri aðra tilraun við
kráarkeðjuna síðar á árinu en
hann er bundinn af ákvæði
breskra yfirtökureglna um
að leggja ekki fram tilboð í
félagið á næstu sex mánuðum.
Stjórnendur M&B höfnuðu yfir-
tökutilboði frá Tchenguiz upp á 550
pens á hlut sem of lágu. M&B þykir
ein best rekna kráarkeðja Bretlands.
Peningaskápurinn...