Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 18
3. júní 2006 LAUGARDAGUR
Þjóðhátíðardagur
Svíþjóðar 6. júní
Norræna húsinu, Reykjavík
17:00 Félagar úr Léttsveit Reykjavíkur syngja Þjóðsönginn
undir stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. Hægt er að fá textann
fyrir þá sem vilja syngja með.
17:30 Sendiherra Svíþjóðar Madeleine Ströje Wilkens skorar
á menningar- og íþróttaráðherra Íslands Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur í borðtennis
Dómari: Helgi Gunnarsson, Borðtennissambandi Íslands
18:00 – 18:45 "Fiskdamm"
18:00 – 18:45 Reiðtúr
18:00 – 18:30 Fótboltakeppni Svíþjóð - Ísland
Fyrir alla sem hafa gaman að spila fótbolta!
Helmingur konur, helmingur karlar í hvoru liði
18:00 – 19:30 "Kubbspel"
18:00 – 19:00 "Tipsrunda"
18:00 – 19:30 Borðtennis
18:30 – 19:00 Fótbolti fyrir börn
18:30 – 19:30 Brennubolti
19:00 – 19:30 Fótbolti
19:30 Skemmtuninni lýkur með því að sendiherrann
afhendir verðlaun í "tipsrundan"
Klæðnaður: Íþróttafatnaður, útivistarfatnaður
Staður: Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavik
Kaffiterían verður opin um kvöldið.
Takið gjarnan með nesti ef veður leyfir.
Nánari upplýsingar gefur
Filip Håkansson í Sendiráði Svíþjóðar, sími: 520 1230
Pottþétt frí með Starcraft
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2
Starcraft RT. Smellpassar aftan í jeppann þinn.
Þú ferð lengra með upphækkað Starcraft RT á off-road grind Centennial og Starcraft series. Hreinn og klár lúxus
Starcraft pallhús.
Svítan á pallbílnum þínum. Fyrir allar gerðir pallbíla.
Svandís Svavarsdóttir var oddviti
á lista Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs í borgarstjórnar-
kosningunum sem fram fóru fyrir
viku. Svandís vakti athygli, ekki
bara vegna þess að hún var eina
konan sem leiddi lista í
Reykjavík og skar sig því
úr hópi hinna frambjóð-
endanna, heldur vegna
skýrs málflutnings henn-
ar, rökfestu og greinilegra
leiðtogatakta.
Svandís Savavarsdótt-
ir er fædd á Selfossi 24.
ágúst 1964. Hún er dóttir
Jónínu Benediktsdóttur
skrifstofumanns og Svav-
ars Gestssonar sendi-
herra. Jónína lést um
aldur fram fyrir ári.
Svandís er frumburður
foreldra sinna sem voru
rétt um tvítugt þegar hún
fæddist. Bræður Svandís-
ar eru tveir, Benedikt
fæddur 1968 og Gestur
1972.
Svandís ólst upp í
Reykjavík en var í æsku
oft á Selfossi hjá móðurafa
sínum og ömmu, þeim
Benedikt Franklínssyni og
Regínu Guðmundsdóttur.
Þar var mikið gleðiheimili
þar sem söngur og önnur
tónlistariðkun var höfð í
hávegum. Heimili fjöl-
skyldu Svandísar í Reykja-
vík einkenndist alla tíð af
stjórnmálaþátttöku Svav-
ars. Þar var mikil pólitísk
umræða stunduð og Svand-
ís iðulega spurð álits á marg-
víslegum málum þrátt fyrir ungan
aldur. Hún hlaut því þjálfun í pólit-
ískum rökræðum frá því hún var
mjög ung.
Svandís var sjálfstæður ungl-
ingur og sagði sig utan skóla þegar
hún var um það bil hálfnuð með
nám í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Hún fluttist fyrst austur á
Hellu og síðan norður í Hrísey með
Ástráði Haraldssyni hæstaréttar-
lögmanni sem hún giftist árið 1984.
Börn Svandísar og Ástráðs eru tvö,
Oddur fæddur 1984 og Auður fædd
1986. Svandís og Ástráður skildu.
Haustið 1984 hóf Svandís nám í
viðskiptafræði við Háskóla
Íslands. Það stóð ekki nema eitt
misseri enda leiddist Svandísi þar.
Haustið 1985 hóf hún nám í almenn-
um málvísindum við Háskóla
Íslands og lauk BA prófi í þeirri
grein með íslensku sem aukagrein.
Hún hóf þegar nám á MA stigi í
íslenskri málfræði og það var í
námskeiði þar um málfræði tákn-
máls sem áhugi hennar á táknmáli
heyrnarlausra kviknaði. Á því
sviði varð síðan starfsvettvangur
hennar næsta rúma áratuginn,
fyrst sem sérfræðingur á Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra. Svandís fékk svo
það verkefni að setja á laggirnar
nám fyrir táknmálstúlka við
Háskóla Íslands en sneri aftur til
starfa á sínum gamla vinnustað á
Samskiptamiðstöð þegar náminu
hafði verið ýtt úr vör enda mun
Svandís kunna betur við sig í gras-
rótinni en í háskólasamfélaginu.
Í fyrra venti Svandís sínu kvæði
í kross og tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Vinstri hreyfingar-
innar - græns framboðs. Hún hafði
misserin á undan látið til sín taka
sem formaður Reykja-
víkurfélags VG. Segja
má þó að Svandís hafi
hafið pólitísk afskipti í
Háskólanum en hún
var þar virk innan
Röskvu. Það er þó fyrst
nú sem Svandís skipar
sér í pólitíska fram-
varðasveit.
Svandís giftist Torfa
Hjartarsyni lektor við
Kennaraháskóla
Íslands 1995 og eru
börn þeirra Tumi,
fæddur 1996, og Una,
fædd 2000. Tónlistin
tengdi þau Svandísi og
Torfa en þau kynntust í
dómkórnum, eins og
reyndar mörg önnur
hjón hafa gert. Þar hafa
þau bæði sungið með
litlum hléum um langt
árabil.
Svandís er skarp-
greind, fljót að hugsa
og lagin við að koma
hugsunum sínum í orð.
Þetta teljast líklega
helstu kostir hennar
sem stjórnmálakonu.
En Svandís er líka
ákaflega skemmtileg
og iðulega hrókur alls
fagnaðar á mannamót-
um. Einnig er hún
músíkölsk með afbrigð-
um, ein þeirra sem getur sest við
píanó og leikið óskalög af fingr-
um fram. Þá er Svandís áhuga-
samur uppalandi og sjónarmið
barna eiga alltaf hljómgrunn hjá
henni.
Svandís er skemmtilegur
félagi og vinur vina sinna. Hún
hefur gaman af því að segja frá
og mælska er líklega eitt helsta
persónueinkenni Svandísar. Hún
er því vel sett að því leyti að hún
getur brugðið fyrir sig táknmáli
til viðbótar við íslenskt talmál en
færni hennar á því sviði er talin
eftirtektarverð miðað við heyr-
andi manneskju.
MAÐUR VIKUNNAR
Skarpgreind og mælsk
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
ODDVITI VINSTRI HREYFINGARINNAR -
GRÆNS FRAMBOÐS Í BORGARSTJÓRN