Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 26

Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 26
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR26 stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, Landsstjórn Framsóknar- flokksins ákvað fyrir helgi að kalla miðstjórn flokksins saman næstkomandi föstu- dag. Eftir mikið fylgistap í sveitarstjórnarkosningun- um fyrir viku þykir mörg- um í forystu flokksins sem öll rauð ljós blikki og ekki verði undan því vikist að hefja róttækt uppbygging- arstarf. Enda eru alþingis- kosningar á næsta leiti. Þversögin sem blasir við Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsókn- arflokksins, er sá að í stjórnartíð hans með Sjálfstæðisflokknum frá árinu 1995 hefur efnahagslegur uppgangur þjóðarinnar verið án hliðstæðu frá stofnun lýðveldisins. Á sama tíma eru innanmein Fram- sóknarflokksins og fylgisvandi hans í einhverju mesta þéttbýlis- þjóðfélagi veraldar hrópandi. Vax- andi umhverfisvandi og vitundar- vakning kjósenda í þeim efnum hefur reynst flokknum og flokks- formanninum mótdræg. Afdrifarík ákvörðun Davíðs Oddssonar þáver- andi forsætisráðherra og Halldórs, þáverandi utanríkisráðherra, í mars 2003 um afdráttarlausan stuðning þjóðarinnar við innrás Bandaríkjamanna í Írak reyndist Framsóknarflokknum þung í skauti. Ástæða er til að ætla að ákvörð- unin um að setja Ísland á lista hinna liðlega 30 viljugu og stríðsfúsu þjóða, hafi þegar fram í sótti bakað Halldóri meiri vandræði og reynst honum mót- drægari en hann gat nokkurn tíma órað fyrir. Blátt áfram vegna þess að kjós- endur framsóknar- flokksins telja sig alls ekki eiga samleið með kjósendum Sjálf- stæðisflokksins í þessu efni. Að þessu leyti færði Halldór meiri fórnir í þágu stjórnarsetunnar með Davíð en dyggir fylgismenn Fram- sóknarlfokksins gátu með góðu móti þolað. Þá hefur ímynd Framsóknar- flokksins í vaxandi mæli verið tengd stóriðju og virkjunaráform- um með tilheyrandi náttúruspjöll- um eða fórnum í íslenskri náttúru. Almenningsálitið tengir Framsókn- arflokkinn sérstaklega við stóriðju- stefnuna á sama hátt og einkavæð- ing til góðs eða ills er eitt helsta auðkenni Sjálfstæðisflokksins á valdastóli. Forystumenn stjórnarandstöð- unnar viðurkenna að þeir séu orðn- ir býsna harðskeyttir og vel að sér í látlausri gagnrýni sinni á Fram- sóknarflokkinn. En þingflokkurinn hefur að mörgu leyti gefið högg- stað á sér. Gríðarlega stór hópur embættismanna innan stjórnar- ráðsins vinnur að því að breyta regluverki samfélagsins í þágu umbyltingar og einkavæðingar á náttúruauðlindum. Orkulindirnar eru næst á dagskrá. Einnig þessi áform stríða gegn hefðbundnum sjónarmiðum Framsóknarmanna og stjórnarandstaðan notar hvert tækifæri, hvern snöggan blett, hvern veikleika, sem þeir finna. Nefna má hrakfarir Valgerðar Sverrisdóttur með frumvörp um nýtingu auðlinda og vatnalög sem hún varð að fresta í vetur leið. Annar augljós vandi blasir við Framsóknarflokknum. Þegar svo virðist sem uppbyggingarstarf og endurnýjun innan flokksforystunn- ar verði helstu dagskrármál mið- stjórnarfundarins næstkomandi föstudag er Björn Ingi Hrafnsson, nýkjörinn borgar- fulltrúi og verðandi formaður borgar- ráðs Reykjavíkur, rísandi stjarna og jafnvel talinn væn- legur arftaki Hall- dórs þegar fram í sækir. Björn Ingi hefur verið umdeildur innan flokksins og telja margir innnan for- ystunnar að hann og aðferð- ir hans eigi að einhverju leyti sök á óförum flokksins í Reykjavík þar sem fullyrt er að hundruð fram- sóknarmanna hafi setið heima á kjördag fyrir viku. Þetta má einnig orða svo að klofningur innan flokksforystunn- ar endurspeglist í stöðu Björns Inga. Opin andstaða við fráfarandi aðstoðarmann forsætisráðherra, er í rauninni leynd andstaða við Hall- dór sjálfan. Atburðarásin undanfarna daga ber að margra viti vott um nokkurt ráðleysi innan Framsóknarflokks- ins. Heimildir eru fyrir því að und- anfarna daga hafi fjölmargir leitað eftir liðsinni Finns Ingólfssonar til að taka þátt í endurreisnarstarfinu. Jafnvel er Árni Magnússon nefnd- ur. Þeir tveir hafa yfirgefið skút- una og með vissum rétti má segja að með því að missa þá fyrir borð hafi Halldór safnað glóðum elds að höfði sér; bakað flokknum endur- nýjunarvanda í forystunni. Ungliðar og aðrir málsmetandi framsóknarmenn í höfðuborginni tala býsna opið um það að hluti end- urreisnarstarfsins verði að felast í formannsskiptum. Að svo miklu leyti sem slík krafa kemur frá stuðningsmönnum Björns Inga setur það hann í afar sérkennilega stöðu gagnvart Halldóri. Heimildir eru einnig fyrir því að Siv Friðleifsdóttir sé þegar farin að leita eftir stuðningi við sig til frek- ari metorða í forystu flokksins. Allt ber þetta vott um flokka- drætti og spennu. Enn er eftir að höggva á hnúta. Ekki er víst að mið- stjórnin hafi þrek til þess að gera það. Þá reynir á Halldór. johannh@frettabladid.is ÁRNI MAGNÚSSON Fjölmargir í forystusveit Framsóknarflokksins töldu Árna efnilegan arftaka Halldórs á for- mannsstóli. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Vandi Framsóknarflokksins er marvíslegur og erfið mál loða við formann flokksins í langri stjórn- arsetu með Sjálfstæðis- flokknum. Að þekkja sinn vitjunartíma Hlustað á Kristinn H. Greining Kristins H. Gunnarssonar, á fylgi Fram- sóknarflokksins hefur vakið athygli og ekki laust við að hún hafi með öðru orðið til þess að flýta miðstjórnarfundi flokksins sem boðaður hefur verið á föstudag. Kristinn kemst að því á vefsíðu sinni að landsfylgi Framsóknarflokksins hefði verið um 18 prósent ef flokkurinn hefði boðið fram í Reykavík fyrir fjórum árum. „Tæp 12 prósent í kosningun- um nú er því miður sterk vísbending um það sem koma skal í Alþingiskosn- ingunum. Þess vegna er einmitt óhjákvæmilegt að bregðast við... Eðlilegt er að byrja með miðstjórnarfundi sem fyrst og jafnvel kalla til stærri hóp á þann fund, þar sem staðan yrði metin, málin rædd og ákveðin næstu skref.“ Kristinn kemst einnig að því að niðursveifla Framsóknarflokksins var mest á höfuðborgar- svæðinu og Norðausturkjördæmi. Er það ekki í kjördæmum Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur? Akureyri og Dalvík féllu og glöggir menn segja að í Fjarðabyggð sé þrátt fyrir allt umtalsvert fylgistap. Í Reykjavík er flokkurinn minnstur flokka. Allt verður þetta rætt á miðstjórnarfundinum næstkomandi föstudag og liggja tíðindi í loftinu að margra dómi. Þöggunarpólitík Staksteinar Morgunblaðsins telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, hafa sýnt alvarlegan dómgreindarskort við val á borgarstjóraefni. Hún hafi ýtt til hliðar bæði Steinunni Valdísi og Stefáni Jóni. „Þarf ekki að ræða þessi alvarlegu mistök flokks- formannsins eða er þöggunarpólitík komin í stað samræðustjórnmálanna,“ spyrja Staksteinar í gær. Vart þarf að minna Staksteina á að Dagur B. Eggertsson varð hlutskarpastur í galopnu prófkjöri. Hitt er ef til vill meira umhugsun- arefni fyrir Samfylkinguna hversu mjög hún kann að hafa tapað grænu fylgi yfir til Vinstri grænna. Njóti „græn“ sjónarmið vaxandi fylgis í þjóðfélaginu loðir það sennilega illa við stjórnarflokkana. Mál manna er að Samfylkingin hafi gert ákveðin mistök að hafa ekki snúið upp á sér grænni hlið fyrir kosningarnar. En það er snúið fyrir flokk sem að hluta samþykkir stórvirkj- anir og að hluta ekki. SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Siv er á ný orðinn ráðherra en óvíst er um fylgi hennar þegar velja þarf nýjan formann flokksins. GUÐNI ÁGÚSTSSON Guðni er vinsæll ráðherra en var um sig. Vill hann umbylta flokknum á þann hátt sem ungliðar í þéttbýl- inu telja nauðsynlegt? FINNUR INGÓLFSSON Finnur þótti sjálfsagður arftaki Halldórs fyrir meira en sex árum. Margir flokksmenn kalla til hans nú eftir mikið fylgistap í sveitarstjórnar- kosningunum. VIKA Í PÓLITÍK JÓHANN HAUKSSON Valdið yfir sögunni Ríkisstjórnin samþykkti fyrir skemmstu að lagt yrði til við hið háa Alþingi, að skipuð yrði nefnd til að annast skoðun gagna sem snerta öryggismál Íslands á kaldastríðsárun- um frá 1945 til 1991. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra hefur í samræmi við þennan vilja ríkisstjórnarinnar lagt fram þingsályktunartillögu um nefndina, sem skipuð verður færum sérfræðingum á ýmsum fræðasviðum. Kveikjan að þingsályktunartillögu forsætisráðherra eru símhleranir á kaldastríðsárunum sem Guðni Th. Jóhann- esson sagnfræðingur hefur nýverið gert grein fyrir opinberlega. Tvennt vekur athygli við þingsályktunartillöguna. Í fyrsta lagi gerir hún ráð fyrir að nefndarmenn fái að meta gögn í vörslu opinberra aðila. „Undir opinbera aðila í tillögunni falla Landssími Íslands, dómstólar og lögregluyf- irvöld,“ segir í greinargerð með tillögunni. Ekki er með öðrum orðum gert ráð fyrir aðgangi að upplýsingum sem kunna að liggja fyrir í ráðuneytum svo aðeins þau séu nefnd. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að rannsókn á þeim gögnum sem nefndinni verður heimilt að skoða verði í það minnsta í samráði við ráðuneyti forsæt- is-, utanríkis- og dómsmála. Ekki þarf að hafa mörg orð um það að unnt er að hafa allt annan hátt á rannsókn af þessum toga eins og raunar Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþing- is, hefur bent á opinberlega og vísað meðal annars til svipaðra athugana í nágrannalöndum. Þetta atriði stöldruðu stjórnarandstæðingar einkum við í umræðum á Alþingi í fyrradag. Oddvitar allra stjórnarandstöðuflokkanna og fjöldi ann- arra þingmanna bentu á þann meinbug á þingsályktunartillögunni, að löggjafarvaldinu og fulltrúum allra þingflokka væri ekki ætlað að koma að rannsókn gagnanna með neinum hætti. Það hljómaði raunar eins og ákveðin hugsunarskekkja hjá forsætisráð- herra þegar hann sagði að fyrst yrði að kanna hvað rétt og hæft væri í mál- inu til þess að unnt yrði að taka ákvarðanir um framhaldið. Um þetta geta kjörnir þingmenn einfaldlega ekki sameinast vegna þess að það er einmitt sjálf rannsóknin, köfunin ofan í fortíðina, sem á og verð- ur að vera á hendi löggjafarvaldsins en ekki framkvæmdavaldsins. Það er einfaldlega rökréttara og skynsamlegra og hafið yfir þá tortryggni sem kann að vakna þegar og ef menn fela sjálfum sér vald til að skilgreina fortíðina eða meta eigin sök. Úr bakherberginu... „Ég verð áfram þessi sami gamli Villi, hæverskur og góður kall.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verðandi borgarstjóri Reykjavíkur eftir myndun meirihluta með Framsóknarflokknum. „Við vitum ekki neitt.“ Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri grænum, í umræðum um störf Alþingis þegar það kom saman síðastliðnn þriðjudag. Imperial 42 cl rauðvínsglös 1.924 kr. 12 stk. Smart og létt á fæti – heilsteypt glös á tilboðsverði Þórunn Kristjánsdóttir Sölumaður hjá RV Maldive 36 cl bjórglös Imperial 31 cl rauðvínsglös Imperial 23 cl hvítvínsglös Imperial 19 cl hvítvínsglös 1.757 kr. 12 stk. 1.579 kr. 12 stk. 1.341 kr. 12 stk. 854 kr. 6 stk. R V 62 07 A Rauð vínsg lös, h vítvín sglös og b jórgl ös á tilbo ðsve rði í jún í 200 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.