Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 28
3. júní 2006 LAUGARDAGUR28
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Bergur Vernharðsson, Elliðavöll-
um 2, Keflavík, lést á heimili sínu
miðvikudaginn 31. maí.
Guðbrandur K. Sörensson,
Fífumóa 1b, Njarðvík, lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 1. júní.
Margrét Einarsdóttir (Maddý),
Barðastöðum 7, lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi miðviku-
daginn 31. mars.
Jóhannes R. Snorrason fyrrver-
andi yfirflugstjóri lést á Landspít-
ala miðvikudaginn 31. maí.
Jóna B. Kristinsdóttir, Dalbraut
27, Reykjavík, lést á St. Franciskus-
spítalanum í Stykkishólmi föstudag-
inn 19. maí. Útför fór fram í kyrrþey.
Ólöf Gunnarsdóttir, Hraun-
búðum, Vestmannaeyjum, áður
Grandavegi 47, lést á Hraunbúðum
Vestmannaeyjum þriðjudaginn 16.
maí. Bálför fór fram í kyrrþey.
JARÐARFARIR
11.00 Magnús S. Jósefsson
bóndi, Fremri Hrafnabjörg-
um, Dalasýslu, verður jarð-
sunginn frá Snóksdalskirkju.
14.00 Geir Ófeigsson bóndi,
Næfurholti, verður jarð-
sunginn frá Skarðskirkju á
Landi.
14.00 Kristjana M. Ólafsdóttir,
Smiðjugötu 11, Ísafirði,
verður jarðsungin frá Ísa-
fjarðarkirkju.
14.00 Sigurður Eiríksson fyrr-
verandi bóndi, Sauðanesi,
Austurbraut 7, Höfn í
Hornafirði, verður jarðsung-
inn frá Hafnarkirkju.
14.00 Una Thorberg Elíasdóttir,
Glaumbæ, Bíldudal, verður
jarðsungin frá Bíldudals-
kirkju.
„Alveg frá byrjun var tilgangur Ygg-
drasils að vera eingöngu með lífrænt
ræktaðar vörur og aðrar náttúruvörur
af bestu fáanlegu gæðum og við höfum
haldið því öll þessi tuttugu ár,“ segir
Rúnar Sigurkarlsson, eigandi Yggdras-
ils, en verslunin heldur upp á tuttugu
ára afmæli á þessu ári. „Þetta fór allt
saman frekar hægt af stað. Fyrsta árið
áttum við heima í blokkaríbúð og vorum
með verslun í geymslunni þar sem við
bjuggum. Þá kom fólk og hringdi bjöll-
unni hjá okkur og sagðist vera komið til
að versla,“ segir Rúnar. Nú eru tímarnir
allt aðrir og Yggdrasill er bæði verslun
og heildsala. „Þetta sýnir bara að allir
góðir hlutir gerast hægt, en þegar þeir
fara að gerast verður úr því eitthvað
mikið.
Til að byrja með voru það til dæmis
fáein blómabörn sem vildu fá lífrænt
ræktaðar vörur en svo í seinni tíð, sér-
staklega síðustu árin, hefur áhuginn á
lífrænt ræktuðum vörum aukist alveg
gríðarlega. Núna verslar bara venjulegt
fólk hjá okkur því það þykir ekki lengur
skrítið að vilja svona vörur, heldur er
skrítið að vera ekki inni á svona vörur.“
Aðspurður um ástæður þess að fólk
velur frekar lífrænan mat og náttúru-
vöru segir Rúnar að ýmislegt mæli með
því að borða slíkan mat. „Alls konar óþol
og ofnæmi eru að aukast í samfélaginu
og þá þarf fólk að snúa sér alfarið að
svona mat til að komast hjá því að neyta
alls konar aukefna. Síðan finnur venju-
legt fólk sem hefur verið að prófa þetta
að því líður miklu betur af þessum mat.
Einnig er þetta bara svo rökrétt því ef
fólk kaupir neysluvöru sem er ekki með
skaðlegum efnum hlýtur það að vera
miklu betra.“
Rúmt ár er síðan Yggdrasill flutti af
Kárastígnum á Skólavörðustíg og segir
Rúnar ekki hafa getað hugsað sér betri
stað í miðborginni fyrir búðina sína.
„Það er alveg gríðarlega gaman að vera
hérna á Skólavörðustígnum, sem hefur
þróast út í að vera svona kúltúr-gata. Í
kringum okkur eru sælkerabúðir, lista-
gallerí og verslunin Tólf tónar á móti
okkur svo við erum í gríðarlega góðum
félagsskap. Mér finnst þetta vera flott-
asta verslunargatan í bænum.“
Og mikið er að gerast á „flottustu
verslunargötu bæjarins“ í dag því haldið
er upp á blómadaginn í þriðja sinn þar
sem íbúar og verslanir við Skólavörðu-
stíg skreyta götuna með blómum. „Við
tökum að sjálfsögðu þátt í blómadegin-
um og ætlum að halda upp á afmælið í
leiðinni. Allt í búðinni verður á tuttugu
prósenta afslætti fyrir árin tuttugu.“
VERSLUNIN YGGDRASILL: TUTTUGU ÁRA
Á flottustu verslunargötunni
RÚNAR SIGURKARLSSON, EIGANDI YGGDRASILS Í tuttugu ár hafa unnendur lífrænt ræktaðra matvæla og annarra náttúruvara verslað við Yggdrasil. Rúnar
segir að til að byrja með hafi nokkur blómabörn komið í verslunina, sem þá var í geymslu í blokkinni þar sem hann bjó, en nú sýni venjulegt fólk vörunum
mikinn áhuga og eiginlega sé skrítið að vilja ekki kaupa svona vörur. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HJÖRTUR
MERKISATBURÐIR
1844 Síðustu tveir geirfuglarnir
í heiminum eru drepnir á
syllu við Eldey.
1932 Ríkisstjórn Ásgeirs Ásgeirs-
sonar tekur við völdum.
1937 Játvarður, fyrrverandi
konungur Breta, giftist hinni
bandarísku og fráskildu
Wallis Simpson.
1951 Séra Bjarni Jónsson kveður
söfnuð Dómkirkjunnar í
Reykjavík.
1967 Aretha Franklin fer í fyrsta
sinn á topp vinsældalistans
í Bandaríkjunum með
laginu Respect.
1989 Jóhannes Páll páfi II kemur
til Íslands. Þetta var fyrsta
heimsókn trúarleiðtoga
kaþólskra manna til lands-
ins.
AYATOLLAH RUHOLLAH
KHOMEINI (1902-1989)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Bandaríkjamenn eru
hinn mikli satan,
meiddi snákurinn.“
Íranski erkiklerkurinn Khomeini
hafði alla tíð horn í síðu
Bandaríkjanna.
Á þessum degi árið 1979 kom upp leki í olíuborpall-
inum Ixtoc fyrsta. Borpallurinn var í eigu mexíkóska
fyrirtækisins Pemex sem leitaði olíu í Mexíkóflóa,
um þúsund kílómetra suður af ströndum Texas.
Úr lekanum varð eitt mesta olíuslys sögunnar en
stuttu eftir að olían braust upp á yfirborð sjávarins
kviknaði í henni og borpallurinn brann. Olía hélt því
áfram að seytla úr borholunni og í marga mánuði
reyndu sérfræðingar að finna lausnir til að stífla
holuna og hemja útbreiðslu olíunnar. Ekki tókst að
finna leið til að byrgja brunninn fyrr en 23. mars
árið eftir en talið er að milli tíu og þrjátíu þúsund
tunnur af hráolíu hafi farið í sjóinn á hverjum degi
þangað til.
Olíubrákir mynduðust og rak þær á land í
Mexíkó. Straumarnir í flóanum báru líka hluta
olíunnar upp að ströndum Texas-ríkis, þangað sem
hún náði tveimur mánuðum eftir slysið. Höfðu yfir-
völd þá reynt að búa sig undir afleiðingar olíumeng-
unarinnar eftir fremsta megni.
ÞETTA GERÐIST: 3. JÚNÍ 1979
Eitt stærsta olíuslys sögunnar
Eldur kemur upp við Ixtoc fyrsta.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Ívu Bjarnadóttur
Sóltúni 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Sóltúni fyrir
einstaka alúð og umhyggju.
Björn Halldórsson Kristín Bjarnadóttir
Edda Magndís Halldórsdóttir Kristinn Jóhann Sigurðsson
Viðar Halldórsson Ragna Bogadóttir
Gyða Halldórsdóttir Guðjón Reynir Jóhannesson
Dóra Kristín Halldórsdóttir Kristján Þórðarson
Sigrún Guðnadóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir
okkar, sonur, tengdasonur og bróðir,
Bergur Magnús Guðbjörnsson
vélstjóri, Reynigrund 47, Akranesi,
sem lést sunnudaginn 28. maí, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 6. júní kl. 14.
Oddný Guðmundsdóttir
Þórhildur Kristjánsdóttir
Svavar Kristján Kristjánsson
Áslaug Ármannsdóttir Guðbjörn Páll Sölvason
Þóra Benediktsdóttir Guðmundur Kr. Guðmundsson
Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir Gunnhildur Guðbjörnsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðbrandur K. Sörensson
Fífumóa 1b, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
1. júní. Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður Guðbrandsson Elín Pálsdóttir
Jón Guðbrandsson Helena Alfreðsdóttir
Vigdís Guðbrandsdóttir Benedikt Hreinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Margrét Einarsdóttir
Maddý, Barðastöðum 7,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudag-
inn 31. maí. Útförin fer fram í Dómkirkjunni föstudag-
inn 9. júní kl. 13.
Jón Árnason
Ásta Gunnarsdóttir Oddur Halldórsson
Jóna Gunnarsdóttir
Valdís Gunnarsdóttir
Eyrún Gunnarsdóttir
Trausti Kristjánsson Therese Grahn
og ömmustrákarnir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Pálína Sigurrós Guðjónsdóttir
frá Munaðarnesi, Strandasýslu,
sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði 24. maí, verður jarðsung-
in frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 6. júní kl. 15.00.
Guðlaug Jónsdóttir
Guðmundur G. Jónsson Sólveig Jónsdóttir
Guðjón Jónsson Sigríður Jakobsdóttir
Samúel Jónsson Bjarney Georgsdóttir
Erla Jónsdóttir Ágúst Skarphéðinsson
Ragnar Jónsson Þórey Guðmundsdóttir
Anna Jónsdóttir Kristján Kristjánsson
Jón E. Jónsson Antonia Rodrigues
Ólöf B. Jónsdóttir Reynir Stefánsson
Barnabörn og barnabarnabörn.