Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 32
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR32 Ég verð mjög góður borgar-stjóri. Ég verð áfram þessi sami gamli Villi, hæverskur og góður kall,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson við fjölmiðlafólk fyrir utan heimili sitt eftir að til- kynnt var um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvernig starfar góður borgar- stjóri? „Borgarstjóri verður að geta tekið ákvarðanir – stundum erfiðar ákvarðanir – sem hann telur til far- sældar fyrir borgarbúa. Öflugur og samhentur meirihluti tryggir að það sé hægt. Að sjálfsögðu mun ég halda áfram að ræða við borgar- búa eins og ég hef gert. Ég hef lengi verið í pólitík og ávallt reynt að aðstoða fólk og umgangast það af virðingu og tillitssemi. Það á bæði við fólk sem til mín leitar og samstarfsmenn. Ég vil að mannleg samskipti séu með þeim hætti að fólki líði vel en ekki illa í návist minni. Lítil atriði eins og að bjóða fólki góðan daginn í stað þess að strunsa fram hjá skipta máli. Ég verð ekki með neina stjörnustæla eins og einhver orðaði það.“ Fegrun borgarinnar hefst strax Hverju munu Reykvíkingar fyrst taka eftir þegar nýr meirihluti tekur við? „Ég sagði fyrir kosningar að það væri kominn tími til að fram- kvæma í Reykjavík. Nú hefst tími framkvæmda. Ég get nefnt eitt dæmi. Við munum ráðast í hreins- unar- og fegrunarátak um alla borg. Í aðdraganda kosninganna fengum við ótrúlega margar ábend- ingar um illa hirt svæði, brotin eða eyðilögð leiktæki, rusl á víðavangi og fleira í þeim dúr sem þarf að kippa í liðinn.“ Hvert verður þitt fyrsta verk sem borgarstjóri? Við munum strax hefja undir- búning að því að byggja fleiri þjón- ustuíbúðir fyrir eldri borgara. Það eru langir biðlistar eftir slíkum íbúðum og margir í brýnni þörf. R- listinn byggði ekki eina einustu þjónustuíbúð fyrir eldri borgara. Einnig þarf að ýta af stað hreinsunarátakinu, sem ég nefndi áðan. Síðan munum við fara af krafti í skipulagsmálin með það að markmiði að allir sem vilja byggja og búa í Reykjavík fái tækifæri til þess. Hvað verður um Geldinganesið, sem var mikið til umræðu? Við ætlum að deiliskipuleggja Geldinganesið, mest undir íbúða- byggð. Þar verður hugað að aukn- um hlut lóða undir sérbýli; einbýl- ishúsa, parhúsa og raðhúsa. Verður lóðum úthlutað eða þær boðnar upp? Við viljum afnema lóðauppboð í nýbyggingarhverfum. Það gengur ekki upp að fólk sé látið greiða 18- 20 milljónir fyrir litla lóð undir ein- býli. Þessu ætlum við að breyta. Verður staða eldri borgara og skipulagsmál sett á oddinn í þessu samstarfi? Já, ásamt málefnum fjölskyld- unnar og samgöngumál. Munu sjálfstæðismenn þá ganga í að uppfylla dýrustu kosningalof- orð framsóknarmanna? Margt í stefnu okkar flokka er vel samrýmanlegt. Við töluðum um að lækka leikskólagjöld og að létt yrði undir með foreldrum sem eiga börn í íþrótta- og tómstunda- starfi. Það gerum við í samstarfi við íþrótta- og æskulýðsfélögin og munum ræða við þau. Hins vegar er ljóst að í samstarfi tveggja flokka verða allir að sýna sam- starfsvilja og vera sveigjanlegir. Ekki er hægt að lofa því að allir fá að gera allt sem lofað var. Hvað verður um leikskólagjöld- in? Við erum sammála um mikil- vægi þess að lækka leikskólagjöld. Foreldrar munu finna fyrir þessu strax í haust þegar leikskólagjöld verða lækkuð um 25 prósent 1. september næstkomandi. Einnig munu foreldrar, sem eru með tvö eða fleiri börn á leikskóla, aðeins þurfa að greiða fyrir eitt barn. Þetta er mikil kjarabót fyrir barnafjölskyldur í borginni. Við viljum tryggja að börn fái leik- skólapláss í sínum borgarhluta. Það er ekki síður mikilvægt. Eins viljum við efla innra starf leik- skóla. Fasteignagjöld lækkuð á kjörtímabilinu Þið gagnrýnduð R-listann fyrir að auka álögur á borgarbúa? Hvað ætlið þið að gera? Við ætlum að lækka fasteigna- gjöld um 25 prósent á kjörtíma- bilinu. Útsvarið er í botni í Reykjavík. Verður það lækkað? Það er ekkert útilokað í þeim efnum en verður hins vegar að ráðast af því hvert svigrúmið verður þegar lengra líður á kjör- tímabilið. Við þurfum að endur- skoða allar fjárhagsáætlanir og átta okkur á raunverulegri stöðu borgarsjóðs, sem hefur verið að skila rekstrartapi síðustu ár. Munuð þið draga úr útgjöldum til að auka svigrúmið? Ég get ekki tjáð mig um það núna. Við eigum eftir að fara yfir þessi mál og líta á alla þætti í rekstri borgarinnar. Þetta er eins og á venjulegum heimilum og í fyrirtækjum þar sem fólk þarf að skoða hvern einasta rekstrarþátt. Það er vel hugsanlegt að það sé hægt að gera breytingar á rekstr- arfyrirkomulagi sem hafi hagræði í för með sér. Fyrst og fremst þarf að gæta aðhalds í rekstri og fram- kvæmdum. Foreldrar geti valið skóla fyrir börnin sín Meira um málefnin. Mun framtíð flugvallarins ráðast þetta kjörtíma- bil? Niðurstöður nefndar um fram- tíðarstaðsetningu Reykjavíkur- flugvallar liggja fyrir í haust. Ég vil sjá ákvörðun um framtíð vallar- ins tekna á þessu kjörtímabili. Það þarf að gera í samvinnu við sam- gönguyfirvöld. Verður hlutur Reykjavíkur í Landsvirkjun seldur? Já, ef rétt verð fæst. Rætt hefur verið um að Orku- veitan kaupi grunnnet Símans. Ertu fylgjandi því? Við höfum gert athugasemdir við það þegar fjármunir Orkuveit- unnar, sem fást við að selja heitt og kalt vatn og rafmagn, eru nýttir til að fjárfesta í áhættusömum sam- keppnisrekstri. Þetta tiltekna mál hefur ekki verið kynnt í borgar- stjórn. Með þessu væri Orkuveitan að steypa sér í 20 milljarða króna fjárfestingu og bæri ábyrgð á ljós- leiðaravæðingu í landinu og skyld- ur við landsmenn. Þetta er stórmál sem við munum skoða. Það er alveg á hreinu að það verður ekki farið út í neinar ævintýrafjárfestingar. Verður staða sjálfstæðu skól- anna í borginni bætt? Það ríkir nú meira jafnræði milli sjálfstæðu skólanna og borg- arreknu skólanna eftir baráttu okkar sjálfstæðismanna fyrir því í borgarstjórn. Leiðarljós okkar er að tryggja börnum betri menn- um. Við viljum að foreldrar geti valið um skóla fyrir börn sín og þau njóti sama stuðnings, óháð rekstrarformi eða staðsetningu skólans. Ætla að geta litið stoltur til baka En hver mun fara með forræði í þessum veigamiklu málaflokkum? Það er að skýrast. Ég get ekki upplýst núna hvernig flokkarnir skipta á milli sín málaflokkum eða hverjir munu stýra þessu starfi á vegum borgarinnar. Margir segja Sjálfstæðisflokk- inn hafa sótt inn á miðjuna í kosn- ingunum? Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt grunn að því velferðarkerfi sem snýr að borgarbúum. Ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn haldi áfram að gera það og jafnvel skerpi þá stefnu sína. Við verðum að hugsa vel um fólk sem má sín minna í samfélaginu af fjölmörgum ástæð- um. Til dæmis með byggingu fleiri félagslegra leiguíbúða og þjónust- uíbúða. Við erum að fást við vel- ferð manneskjunnar. Ef miðjan er skilgreind með þessum áherslum er ég stoltur af því. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ég er ágætlega hraustur og hef gaman af lífinu. Á meðan svo er vil ég láta gott af mér leiða. Það er ómögulegt að spá í framtíðina svona langt fram í tímann. En hvar sem ég verð staddur eftir tíu ár ætla ég mér að geta litið stoltur til baka yfir þann tíma sem við munum stjórna borginni. Það er verkefni dagsins í dag. Hvað með þína persónulegu hagi? Ég er í sambúð með Guðrúnu Kristjánsdóttur kennara sem tekur þátt í þessu með mér af fullum krafti og er mér til halds og traust. Betri vin get ég ekki hugsað mér. Svo er hún líka góður félagi í golf- inu, sem ég byrjaði nýlega að stunda. Ég á þrjú börn, Jóhönnu, Helgu Björk og Baldur Þór, þrjú barnabörn og það fjórða á leið- inni. Þannig að lífið leikur við þig? Já, heilsan er auðvitað fyrir öllu. Ég veiktist síðast, svo heitið getur, í ágúst 1982. Ég hef verið lánsamur. Við Guðrún erum mjög hamingjusöm og okkur líður vel. „Við viljum að foreldrar geti valið um skóla fyrir börn sín og þau njóti sama stuðnings, óháð rekstrarformi eða staðsetningu skólans.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ■ Fæddur 26. apríl 1946 í Reykjavík ■ Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1968 ■ Lögfræðingur frá Háskóla Íslands 1974 ■ Borgarfulltrúi frá 1982 ■ Formaður samtaka sveitarfélaga frá 1990 ■ Í sambúð með Guðrúnu Kristjánsdóttur ■ Á þrjú börn og þrjú barnabörn Kominn tími til að framkvæma Reykvíkingar munu fá nýjan borgarstjóra 13. júní næstkomandi. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson tekur við embættinu og ætlar að hefjast strax handa með hreinsunarátaki. Í viðtali við Björgvin Guðmundsson segist hann leggja áherslu á að fólki líði ekki illa í návist sinni. VILHJÁLMUR OG GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR „Ég er í sambúð með Guðrúnu Kristjánsdóttur kennara, sem tekur þátt í þessu með mér af fullum krafti og er mér til halds og traust. Betri vin get ég ekki hugsað mér,“ segir Vilhjálmur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.