Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 35
LAUGARDAGUR 3. júní 2006
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Síðustu tvær vikur hafa verið
einkar ánægjulegar. Ég hef
verið að þvælast um landið
með finnsku vinafólki mínu
sem yfirgaf landið í gær. Þar
sem þau stunda útivist og
ferðalög grimmt að jafnaði
var það nokkur áskorun að sjá
þeim fyrir nýrri og spennandi
lífsreynslu við hvert fótmál.
Með hjálp landsins okkar,
vina, félaga og nokkura ferða-
þjónustuaðila held ég þó að
nokkuð vel hafi tekist til. Í það
minnsta voru þau útkeyrð og
höfðu varla þrek til að labba
inn í Leifsstöð óstudd.
Í hálfan mánuð þvældumst
við fram og til baka um landið
og dunduðum okkur við sigl-
ingar á jökulám og jökullón-
um, snjóbrettabrun á jöklum,
hellaferðir í hraunhellum,
gönguferðir, ísklifur, flug-
ferðir og auðvitað baðferðir í
heita læki og uppsprettur, svo
eitthvað sé nefnt.
Allt hefur þetta kallað á
miklar og langar bílferðir.
Eftir því sem áfangastöðun-
um fjölgaði varð erfiðara og
erfiðara fyrir Finnana að sitja
á sér. Átti virkilega ekki að
fara að laga hringveginn, fylla
upp í holur og slétta ójöfnur?
Ég útskýrði fyrir þeim að það
væri ekki móðins í dag meðal
stjórnvalda. Nú ættu malbik-
aðir hálendisvegir og jarð-
göng upp á pallborðið og annað
yrði bara að bíða. Þögn. Hola.
Spurning sem varðaði andlega
heilsu ráðamanna og verður
ekki endurtekin hér.
Stuttu síðar munaði litlu að
jeppinn færi í kollhnís á einu
af þvottabrettum þjóðvega-
kerfisins. Finnunum lék for-
vitni á að vita hvers vegna
vegirnir okkar væru svona
ójafnir. Jú, vegna þess að þeir
eru byggðir á veturna þegar
frost er í jörðu. Þögn. Tiltekin
spurning frá því fyrr um dag-
inn endurtekin.
Í Finnlandi tíðkast víst að
halda við þeim vegum sem
fyrir eru áður en farið er í
nýjar framkvæmdir. Nýir
vegir eru látnir bíða þangað
til efni leyfa, þó að biðin sé
stundum löng.
Já, þeir eiga margt eftir
ólært í Finnlandi! Ætli þeir
séu líka bara með tvíbreiðar
brýr á þjóðvegi eitt? Og með
allar vegmerkingar á hreinu?
Og ætli þeir eigi ennþá hóla
þarna fyrir austan sem er ekki
búið að bora í gegnum? Og
skyldu tveggja akreina vegir
þar vera meira en einn kíló-
metri á lengd í senn?
Meiri kjánarnir...
Af finnskum
ferðalöngum