Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 37
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 5
2,5 l boxervél Subaru hefur hlotið
verðlaun sem besta alþjóðlega vélin
árið 2006.
Boxervél Subaru var valin „Int-
ernational Engine of the Year 2006“
í flokki 2 til 2,5 lítra bílvéla. Verð-
launaafhendingin fór fram á sýn-
ingunni Engine Expo í Stuttgart í
Þýskalandi á dögunum. Vélin sem
um ræðir er notuð í bifreiðum af
gerðinni Subaru Impreza og Subaru
Forester og er þetta í fyrsta sinn
sem lárétt liggjandi bílvél hlýtur
þessi verðlaun sem veitt eru
árlega.
Í dómnefnd keppninnar sat 61
blaðamaður frá 29 löndum, en að
henni stóð bílablaðadeild UKIP
Media & Events, stærsta útgefanda
bílablaða í Bretlandi, sem gefur
einnig út tímaritin Engine Techno-
logy International og Automotive
Testing Technology International.
Á grundvelli stigagjafar dómar-
anna voru veitt aðalverðlaun, verð-
laun fyrir bestu vélar í átta stærð-
arflokkum auk verðlauna í þremur
öðrum flokkum.
2,5 lítra túrbóvélin frá Subaru
þykir bæði kraftmikil og sparneyt-
in. Með því að bæta við loftinntaks-
kerfi, bæta stýrikerfi vélarinnar og
breyta hönnun brunaholsins hefur
tekist að draga umtalsvert úr meng-
un í útblæstri. Jafnvægi næst milli
lipurra viðbragða á litlum hraða og
aukins vélarafls, en það má rekja til
breytinga á hönnun vatnsgangsins í
strokklokinu og breytinga í útblást-
ursgreinum til að lágmarka dælutap
og tryggja jafnt flæði eldsneytis.
Frétt af www.ih.is
Verðlaunavél frá Subaru
2,5 lítra verðlaunavélin knýr gerðirnar
Subaru Impreza og Subaru Forester, sem
og Saab 9-2X.Verið er að prófa nýja tækni
sem gera á ökumönnum kleift
að finna bílastæði í stórborg-
um gegnum símann sinn.
Bílastæði eru af afar skornum
skammti í þéttbýlum stórborgum.
Tæknin til að leysa þetta vanda-
mál er fyrir hendi en koma þarf
henni fyrir og prófa virkni hennar.
Þetta stendur nú til en til mikils er
að vinna því sérfræðingum telst
til að þrjátíu prósent allrar
umferðar á annatímum í miðborg-
um sé fólk í leit að stæðum.
Í sumar geta íbúar þrjátíu stærstu
borga Bandaríkjanna fengið upp-
lýsingar gegnum internetið eða í
símann sinn um stöðu lausra stæða
í bílastæðahúsum. Samhliða því
geta þeir tekið frá stæði og fengið
leiðbeiningar um hvernig eigi að
komast að bílastæðinu. Enn sem
komið er þarf þjónustufyrirtækið
sem sér um þessa þjónustu,
Streetline Networks, að hringja í
bílastæðahúsin til að finna laus
stæði, en stefnt er að því að koma
skynjurum fyrir í bílastæðum og
gera kerfið algjörlega sjálfvirkt.
Fyrirtækið SpotScout ætlar sér
einnig stóra hluti á rafræna bíla-
stæðamarkaðnum. Það ætlar sér
að opna vefsíðu þar sem fólk getur
skipst á upplýsingum um bíla-
stæði og jafnvel leigt út heim-
keyrslur sínar á meðan það er í
vinnunni. - tg
Bílastæðið í
símann
Það getur verið erfitt að finna bílastæði í
miðborg Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DAGSKRÁ
Föstudagurinn 16. júní
Götuspyrna á Tryggvabraut sem hefst
um sjöleytið að kvöldi. Keppnisstjóri
er Arnar Kristjánsson, Chevrolet-
maður með meiru. Skráning á
bilak@isl.is eða í síma 862 6450.
Laugardagurinn 17. júní
Bílasýning í Oddeyrarskóla milli
klukkan tíu og átján. Að lokinni
sýningu fer fram verðlaunaafhending
í ýmsum flokkum. Skráning á bil-
ak@isl.is eða í síma 862 6450.
Klukkan 14 hefst græjukeppni. Þá
reynir á bassabox og hátalara og
veitt eru verðlaun til þeirra sem búa
yfir öflugustu græjunum. Skráning á
bonstodin@simnet.is. Við skrán-
ingu skal taka fram nafn, kennitölu
og hvernig græjum verður teflt fram.
Eftir að bílasýningunni er lokið verð-
ur „burnout“-keppni við Slippinn á
Akureyri. Skráning á bilak@isl.is.
Að lokinni sýningu rúnta bílaeig-
endur um Akureyrarbæ þar sem
gangandi vegfarendur geta barið
bílana augum.
bíladagar á
Akureyri }
Frá Bíladögum á Akureyri 2005.
Opnuð með hatti
NÝJASTA VIÐBÓT ATLANTSOLÍU VAR
OPNUÐ Í VIKUNNI Í ÖSKUJUHLÍÐ Í
REYKJAVÍK.
Jóhannes
Kristjánsson
eftirherma kom
í hlutverki sjálfs
Guðna Ágústs-
sonar ráðherra og
opnaði stöðina.
Til að opna hana
notaði Jóhannes
kúrekahatt sem
seint verður talinn
hefðbundinn en hatturinn var búinn
örgjörva sem setti dælur stöðvarinn-
ar í gang. Hafði Jóhannes á orði að
þar sem tveir bensíndropar kæmu
saman, þar væri bensínstöð.
- sha
ný stöð }
Jóhannes eftirherma
opnar nýja stöð.
K V I T T U N F Y L G I R Á V I N N I N G U R !
B E N S Í N D Í S E L
Ódýrt eldsneyti + ávinningur!
w w w . e g o . i s
Hvar er þitt EGO?