Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 39

Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 39
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 7 Veiðisumarið með Stefáni Jóni Hafstein Þetta kalda vor okkar hefur haml- að veiði. Víst er að margir héldu að nú í júníbyrjun yrðu þeir búnir að snæða nokkra góða silunga, en þeir fiskar synda enn, því bæði apríl og maí hröktu marga frá því að skella sér í vöðlur. Tvær stór- ar „opnanir“ voru síðustu daga og kalt vatn einkenndi báðar. Samkvæmt hefðinni kastaði for- maður SVFR, Bjarni Júlíusson, fyrstur í Norðurá kl. 7.00 að morgni 1. júní og fékk ekki neitt á fyrsta degi, ekki frekar en í fyrra þegar stjórnin fór fisklaus heim. „Maður hefur enga afsök- un fyrir fiskleysi,“ sagði Bjarni þegar hann kom á bakkann, ánægður með aðstæðurnar þrátt fyrir allt. Áin var svolítið lituð en Bjarni taldi það ekki vera til mik- illa trafala og var borubrattur – enda eðlilegt að formaður tali kjark í sjálfan sig og aðra! Hvað sem því líður er þó ljóst að laxinn er mættur, sést hefur til hans í Norðurá og Laxá í Kjós. Urriðasvæðið fræga í Mývatns- sveit var opnað um síðustu helgi, fastagengið mætti á snævi þakta bakka og öslaði skafla til að kom- ast á veiðistaði. Byrjunin var slakari en oft áður, en eigi að síður fengu margir góða spretti og allir fiska. Áin var um fjórar gráður sem er heldur lítið fyrir fiskerí, og hætt við að urriðar hafi legið daprir í bragði við botn- inn, bestan árangur bar að sökkva kúluhausum og straumflugum djúpt og láta berast hægt fyrir trjónur fiskanna. Hvernig á að veiða í köldu vatni? Bæði laxveiðimenn og silungs- veiðimenn þurfa að huga að því að við aðstæður eins og verið hafa þarf að hafa nokkra hluti á hreinu. Fiskurinn er með kalt blóð, jafn kalt og vatnið ef út í það er farið! Hann liggur því fastur fyrir ef kuldi herjar og hreyfir sig lítið sem ekki til að spara orku. Flugan þarf því að fara hægt yfir, og hún þarf að komast niður til bráðar- innar. Notið þyngdar flugur og sökklínur, eða línur með sökkenda. Í straumvatni er gott að kasta vel upp fyrir ætlaðan tökustað og láta straumflugu eða túpu fá góðan tíma til að kafa niður. Ef maður festir ekki reglulega og týnir flugum þá veiðir maður ekki nógu djúpt! Í laxinum þarf túpan að sökkva og berast þvert fyrir fisk- inn. Á silungsveiðum er best að nota þyngdar púpur og láta þær skralla með botni. Með veiðikveðju, Stefán Jón. Veiðin fer hægt af stað í vor Hótel Keilir tekur til starfa í Reykjanesbæ. Nýtt og glæsilegt hótel verður opnað um miðjan mánuðinn í Reykjanesbæ. Hótelið heitir Hótel Keilir og stendur í hjarta bæjarins við Hafnargötuna. Á hótelinu, sem verður þriggja stjörnu hótel, eru fjörutíu her- bergi og úr flestum þeirra er glæsilegt útsýni yfir Faxaflóann, bæinn eða Keili. Á öllum herbergj- unum er flísalagt baðherbergi og aðstaðan verður til fyrirmyndar. Hótelið er á góðum stað í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og allar helstu náttúruperlur Reykjanesskagans eru innan seilingar. Nýtt hótel á Reykjanesi Hótelið er í hjarta Reykjanesbæjar. HSK stendur fyrir fjölskyldu- göngu á Gullkistu í Laugardal á mánudaginn klukkan 20. Gangan er hluti af verkefni sem UMFÍ stendur fyrir í ár og nefnist „Fjöl- skyldan á fjallið“. Lagt verður af stað frá bænum Miðdal kl. 20 og göngustjóri verður Kári Jónsson, formaður Ungmennafélags Laug- dæla. Gullkista er kistulaga hnúkur á Miðdalsfjalli. Sagan segir að hnjúkurinn sé kista sem er full af gulli og opnist aðeins ef tveir sam- hentir bræður sem búa í Miðdal ganga þangað upp afturábak. Ekki verður reynt að ljúka upp Gull- kistunni í þessari ferð en gangan er nokkuð auðveld og ætti að henta flestum. Á toppnum er frábært útsýni svo menn verða ekki sviknir þótt gullið finnist ei. Gengið á Gullkistu Skemmtileg gönguferð fyrir alla fjölskylduna. Það er ekki erfitt að ganga á fjallið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY „Hvar er laxinn?“ Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, horfir yfir Norðurá. MYND/FLUGUR.IS/OHR Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrifenda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.