Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 67
jafnvel í samtölum á íslensku,
heldur fara í kringum það með því
að tala um „landið sem ekki má
nefna“. Orðið er jú alþjóðlegt og
hægt að slá því föstu að það sé
skrifað með stóru letri í leitarbók-
um sýrlensku leyniþjónustunnar.
Sumir ganga meira að segja svo
langt að halda því fram að ísra-
elskir njósnarar reyni oft og iðu-
lega að komast inn í landið, þannig
að glannalegar samræður geta
orðið þess valdandi að grunur falli
á ferðamanninn að hann tilheyri
þeim hópi.
Að minnsta kosti er óhætt að
kveða fast að orði þegar ferða-
mönnum er ráðlagt að ræða ekki
um Ísrael á sýrlensku landamær-
unum. Eina alvöru hindrun ferða-
laga til Sýrlands er nefnilega
strangar reglur um inngönguleyfi
í landið og ættu allir að gefa sér
góðan tíma í undirbúning vega-
bréfsáritana. Hafa ber í huga að
ef einhver merki finnast um Ísra-
elsdvöl í vegabréfi þess sem
óskar inngöngu í Sýrland er eig-
andanum umsvifalaust sparkað
öfugum út af landamærastöðinni.
Landamæraverðirnir eru þó upp
til hópa vingjarnlegir og ef ferða-
maðurinn er með allt sitt á hreinu,
og viss um það, ættu móttökurnar
að vera eins og best verður á
kosið.
Allt fyrir ekkert
Gestrisni Sýrlendinga er ekki
hægt að kaupa en hægt er að lofa
því að allt sem er falt fyrir verð
fæst mjög ódýrt. Efnahagur Sýr-
lendinga stendur ekki í blóma og
allar vörur ferðalangsins finnast
á góðu verði. Gistingin kostar frá
nokkrum hundruðum íslenskra
króna og ferðalög í langferða- og
leigubílum fást fyrir klink.
Reyndar þurfa gæðin oft að lúta
fyrir lágu verði en alltaf þegar
bíllinn bilar er öruggt að bílstjór-
inn býður ferðalöngum í te á
meðan lappað er upp á fararskjót-
ann. Maturinn er líka ódýr en
aftur á móti alltaf góður, sérstak-
lega fyrir þá sem hafa óseðjandi
lyst á hummus og felafel.
Lágur uppihaldskostnaður
mælir óneitanlega með því að
heimsækja Sýrland. Þótt flugmið-
inn þangað kosti töluvert meira en
til Evrópulanda þarf ekki að dvelja
marga daga í Sýrlandi til að kostn-
aðurinn verði sá sami og ef vega-
lengdin hefði verið styttri. Fátt
ætti því að vera því til fyrirstöðu
að íslenskir ferðalangar leggi í
auknum mæli leið sína til lands-
ins.
MÁ BJÓÐA ÞÉR BAKKELSI? Matur fæst á
sérstaklega góðu verði í Sýrlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
LAUGARDAGUR 3. júní 2006
C M Y CM MY CY CMY K