Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 70
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR38 Davíð Oddsson seðlabanka- stjóri gegndi starfi blaða- manns Morgunblaðsins í Osló þegar samkomulag Íslendinga og Breta var undirritað árið 1976. Fréttablaðið spurði hvernig hann minntist þess- ara örlagaríku daga. „Þetta var í huga Íslendinganna gríð- arlega stórt og mikið mál og það gat gengið í báðar áttir. Þar sem ég var í hópi fréttamanna þá heyrðust litríkar frásagnir um að það væri að slitna upp úr viðræðunum. Við fréttamennirnir rákumst svo á samninganefnd okkar síðar og það var mikill hugur í okkar mönnum og þeim fannst þeir hafa náð langt. Sérstaklega vegna þess að breski utanríkisráð- herrann var tengdur kjördæmum sem voru mjög viðkvæm vegna þeirra hagsmuna sem um ræddi. Þeir sem voru í íslensku sendinefndinni vissu að þetta var mikið tilfinningamál heima og hætt við því að menn yrðu sakaðir um svikasamninga og undanlátssemi.“ Davíð minnir á að Bretar hafi gengið mjög hart fram og samskipti Íslendinga innan Nató litast af því. „Reyndar segja menn að Rums- feld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafi þá verið í tengslum við sendinefnd Bandaríkjanna í Nató og kunnað okkur litlar þakkir. Hann muni þetta enn og það hafi jafnvel haft áhrif á afstöðu hans til varnarstöðvarinnar mörgum árum seinna.“ Davíð minnist íslensku sendi- nefndarinnar í heild sem galvaskra dugnaðarforka sem vissu vel af ábyrgð sinni. „Það voru miklar tilfinningar sem skiluðu sér til þeirra frá hjartarótum þjóðarinnar. Ég held að það sé ekkert pólitískt mál í dag sem myndi snerta fólkið í landinu eins djúpt, því það má segja að þetta hafi ekki einungis verið afkomumál í hugum manna heldur spurning hvort Ísland réði sínum málum og væri fullkomlega sjálfstætt eða ekki.“ DAVÍÐ ODDSSON SEÐLABANKASTJÓRI Var þjóðinni hjartans mál Helgi Hallvarðsson var skipherra við útfærslu landhelginnar í 50 og 200 mílur. Helgi lenti margoft í útistöðum við bresk herskip og dráttarbáta. Hann segist ekki hafa tölu á því hvað hann klippti aftan úr mörgum togurum á þessum árum. En hvað einkenndi mennina í brúnni á íslensku varðskipunum? „Þetta voru allt mjög góðir sjómenn. Klókir og úrræðagóðir. Þeir voru misjafnlega klippufærir enda með herskipin ofan í sér og dráttar- bátana líka.“ Helgi segir að sumir hafi verið örir í skapi og mishrifnir af Tjöllunum. „Guðmundur Kjærnested var hershöfðingi og kappi. Hann gat blásið vel úr nös en var rólegur undir öllum kringumstæðum og gat haft stjórn á tilfinningum sínum. Við vorum það kannski allir þegar hasarinn var en blésum þegar komið var út úr átökunum. Það þurfti að ná út taugatitringnum eins og einn vinur minn sem fór upp á fjall og öskraði á móti vindinum.“ HELGI HALLVARÐSSON SKIPHERRA Voru klókir og úrræðagóðir Kristján Ragnarsson, fyrrverandi formaður LÍÚ, fór til viðræðna við hagsmunaaðila þegar Bretar settu löndunarbann á íslensk skip eftir að 200 mílna fiskveiði- lögsagan var orðin staðreynd 1976. Kristjáni var boðið til hádegisverð- ar hjá John Prescott, þingmanni Verkamannaflokksins og síðar aðstoðarforsætisráðherra Breta. Þar var einnig foringi úr bresku verkalýðshreyfingunni. Hugur margra Breta til Íslendinga kom vel í ljós í þessari heimsókn undir óvenjulegum kringumstæðum. „Pabbi Prescotts var þarna staddur þegar við fórum að tala um löndunarbann verkalýðs- hreyfingarinnar. Gamli maðurinn tók að tala okkar máli ef svo má segja og krefja verkalýðsforingjann um svör um löndunarbannið. Foringinn reiddist svo mikið að þegar nokkuð var liðið á máltíðina gekk hann á dyr. Við vorum mjög hissa á því af hverju hann hefði tekið þessu svona því við vöktum ekki upp neinar deilur. Jón Olgeirsson, sem þarna var með okkur, hitti verkalýðsforingjann seinna og spurði hann hverju þetta sætti. Þá svaraði hann því til að hann hefði átt von á ýmsu frá Ragnars- syni en maðurinn með honum hefði verið yfirgengilega dónalegur. Honum var brugðið þegar hann komst að því að maðurinn sem tal- aði máli Íslendinga svo kröftuglega var faðir Prescotts þingmanns.“ KRISTJÁN RAGNARSSON FYRRVERANDI FORMAÐUR LÍÚ Von á ýmsu frá Ragnarssyni apríl 1948: Landgrunnslögin samþykkt á Alþingi. Lögin lýstu yfir rétti Íslands til að stýra fiskveiðum á landgrunninu. Höfundur laganna var Hans G. Andersen þjóðréttarfræðingur, sem síðar varð helsti ráðgjafi og sérfræðingur íslenskra stjórnvalda í hafréttarmálum. ■ október 1949: Uppsögn landhelgissamningsins frá 1901 sem kvað á um þriggja mílna landhelgi umhverfis Ísland. Um vorið 1950 var landhelgin færð út í fjórar sjómílur undan Norðurlandi. ■ mars 1952: Ólafur Thors atvinnumálaráðherra gefur út reglugerð um fjögurra mílna lögsögu umhverfis Ísland. Í lok ársins hófust refsiaðgerðir Breta. Lokað var á fisksölu. 1958-1961: Fyrsta þorskastríðið ■ 1. september 1958: Fiskveiðilögsagan færð út í tólf mílur. Daginn eftir verða átök á miðun- um. Breskir fjölmiðlar tala um að „þorskastríð“ sé hafið. Breskir togarar veiða undir herskipavernd. Í septemb- er 1960 hefjast samningaviðræður Breta og Íslendinga. Samkomulag næst í mars 1961. Bretar samþykkja grunnlínur og fá í staðinn takmörkuð veiðiréttindi næstu þrjú árin. Samið á sömu nótum við Vestur-Þjóðverja síðar sama ár. 1972-1973: Annað þorskastríðið ■ Alþingi ályktar að fiskveiðilögsagan skuli færð út í 50 mílur í 1. september 1972. Bretar senda hjálparskip á Íslandsmið sem veita bresku togurun- um sjúkra- og viðgerðaþjónustu. Varð- skipið Ægir slítur togvíra bresks togara með leynivopni íslensku varðskip- anna, „klippunum“ svokölluðu, í fyrsta skipti í september 1972. Varðskipin þurfa ekki lengur að færa togara til hafnar en eyðileggja veiðarfæri þeirra í staðinn. Skipstjórar krefjast herskipaverndar vegna þessa. Bretar senda dráttarbáta á vettvang. Eldgos í Vestmannaeyjum kemur í veg fyrir eftirlit varðskipa á miðunum. Varðskipin fara á miðin í mars og klippa aftan úr mörgum togurum. Flotavernd hefst að nýju í maí 1973. Íslendingar hóta að slíta stjórn- málasambandi við Breta og gefa í skyn að þeir kunni að ganga úr Atlantshafsbandalaginu. Bretar gefa eftir í október 1973, í og með vegna þrýstings Bandaríkjamanna vegna mikilvægis Keflavíkurstöðvarinnar. 1975-1976: Þriðja þorskastríðið ■ Árið 1974 ákveður ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forsæti Geirs Hallgrímssonar að færa lögsögu Íslendinga út í 200 mílur. Hafrannsóknastofnunin gefur út „svörtu skýrsluna“ um ofveiði þorsks á Íslandsmiðum. Reglugerð um 200 mílna lögsögu gengur í garð 15. október 1975. Varðskip skera aftan úr togurum í nóvember, herskip koma á miðin tíu dögum seinna og dráttarbátar stuttu seinna. Siglt á Þór úti fyrir Seyðisfirði sem svarar með viðvörunarskotum. Mál Íslands kemur til umræðu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en átökin halda áfram á miðunum. Stjórnmálasambandi við Breta slitið í febrúar 1976 og áfram verða harðir árekstrar á miðunum og Týr næstum sigldur niður í maí 1976. Skipstjóri breskrar freigátu biður um leyfi til að beita fallbyssum og sprengjum sínum gegn íslenskum varðskipum. Bretar gefa eftir þegar ljóst er að mörg lönd ætla að taka sér 200 mílna efnahagslögsögu innan árs. 1. júní 1976 er undirritað í Osló samkomulag Íslands og Bretlands. Stjórnmálasambandi er komið á að nýju. Bretar viðurkenna 200 sjómílna fiskveiðilögsögu með heimild til takmarkaðra veiða innan hennar í sex mánuði. Landhelgismálið 1948 til 1976 Um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin síðan Bretar viðurkenndu 200 sjómílna fiskveiðilögsögu Íslands með undirritun samninga í Osló árið 1976. Svavar Hávarðsson rifjaði upp baráttuna fyrir réttinum til að nýta mestu auðlind þjóðarinn- ar ásamt nokkrum þeim sem komu að málinu með beinum hætti. Þorskurinn varinn með kjafti og klóm KLIPPURNAR Þetta einfalda verkfæri varð leynivopn íslensku varðskipanna sem Bretar áttu fá svör við. NÝKOMIN AF ÍSLANDSMIÐUM Breska freigátan Falmouth reið ekki feitum hesti frá viður- eign sinni við Tý hinn 6. maí 1976. Mörg bresku herskipanna stórskemmdust í viðureign- um sínum við íslensku varðskipin. KJÆRNESTED SKIPHERRA Guðmundur Kjærnested er í huga þjóðarinnar holdgervingur þorskastríðanna og baráttunnar gegn „ofureflinu“. Hann og aðrir skipherrar Landhelgis- gæslunnar eru í margra augum stríðshetjur herlausrar þjóðar sem vann fullnaðarsigur á heims- og flotaveldi Breta. MYND/ÓLI TYNES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.