Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 72
3. júní 2006 LAUGARDAGUR40
Halle Berry geislaði af lífs-gleði í sólinni í Cannes þar sem hún var ásamt með-
leikurum sínum að kynna ævin-
týramyndina X-Men: The Last
Stand. Þó að X-Men væri mál mál-
anna var auðvelt að fá hana til þess
að tala um allt milli himins og jarð-
ar. Berry verður fertug í ágúst og
segist aldrei hafa haft það jafn
gott.
„Ég hef aldrei verið betur á mig
komin, hvorki andlega né líkam-
lega,“ segir Berry, sem hefur
marga fjöruna sopið, ekki síst í
ástarmálum, en hún telur sig nú
loksins hafa fundið hinn eina rétta.
„Ég er mjög hamingjusöm og það
var tími til kominn.“
Fórnarlamb lúmskra fordóma
Leiðin hefur legið upp á við jafnt
og þétt hjá Berry allt frá því hún
lék í Spike Lee-myndinni Jungle
Fever og hasarmyndinni The Last
Boy Scout á móti Bruce Willis árið
1991. The Last Stand er þriðja X-
Men-myndin hennar og hún átti
góða innkomu sem hörkutólið Jinx
í James Bond-myndinni Die Anoth-
er Day. Inni á milli stórra hasar-
mynda lék hún svo í Monster´s
Ball, sem skilaði henni Óskars-
verðlaunum sem besta leikkonan í
aðalhlutverki árið 2001.
„Ég hef þurft að berjast fyrir
nánast hverju einasta hlutverki,“
segir Berry og er nokkuð niðri
fyrir. „Í alvöru talað. Öll þau hlut-
verk sem mig hefur virkilega lang-
að til að leika hafa kostað mig átök.
Ég veit ekki hvað veldur þessu og
án þess að ég sé að kvarta þá lifum
við í heimi kynþáttafordóma og í
sannleika sagt verður fólk eins og
ég fyrir barðinu á fordómum á sumum sviðum. Ég er ekki að segja
að Hollywood sé fordómafull en
fordómarnir eru svo lúmskir að
fólk gerir sér ekki alltaf grein
fyrir því að þeir stjórna ákvörðun-
um þess.“
Hætt að reyna að þóknast öðrum
Berry segist, eins og fleiri leikarar
í The Last Stand, hafa heillast af
samfélagsgagnrýninni sem fléttuð
er inn í handrit myndarinnar.
„Myndin fjallar beinlínis um kyn-
þáttafordóma og ég tengdist þessu
efni sterkum böndum. Fyrst og
fremst sem kona og svo einnig sem
lituð kona,“ segir Berry, sem hefur
bæði mátt gjalda fyrir kyn sitt og
hörundslit á leið sinni á toppinn.
„Það er mikilvægt að við hugsum
um þessi mál. Ég hugsaði um það
oft á dag, á meðan við vorum að
gera myndina, hvað myndi gerast
ef yfirvöld í Bandaríkjunum
myndu þvinga fólk til að taka mót-
efni sem breytti dökum hörundslit
fólks í hvítan og ég þyrfti að taka
þetta inn til þess að halda lífi eða
fá að búa áfram í landinu mínu.
Það væri hræðilegt og þessar
hugsanir vöktu upp sterkar tilfinn-
ingar innra með mér. Allt mitt líf
hef ég barist fyrir því að vera
tekin í sátt og verða samþykkt. Það
var ekki fyrr en ég komst á fer-
tugsaldurinn sem ég áttaði mig á
að það skiptir ekki máli hvað
öðrum finnst. Ég gerði mér þá loks
grein fyrir því að fólk gæti bara
tekið mér eins og ég er og ég þyrfti
ekki að breyta mér til að þóknast
öðrum.“
Er enn að berjast
Þrátt fyrir Óskarsverðlaunin og
byr sem leikkonan hefur fengið
undir báða vængi þurfti hún að
hafa mikið fyrir því að landa aðal-
hlutverkinu í næstu mynd danska
leikstjórans Susanne Bier. Myndin
heitir Things We Lost in the Fire og
allt útlit er fyrir að Benicio Del
Toro muni leika á móti Berry í
henni.
„Handritið barst mér á meðan
ég var að leika í X-Men. Það höfð-
aði svo sterkt til mín að ég stökk
upp, hringdi í umboðsmanninn
minn og hrópaði á hann að ég yrði
að fá þetta hlutverk. Þetta var svip-
Hollywood-gyðja sem þarf að berjast fyrir sínu
HALLE BERRY Í CANNES Hefur aldrei verið hamingjusamari. Hún er ástfangin upp fyrir haus
og er nýbúin að landa aðalhlutverki í næstu mynd danska leikstjórans Susanne Bier.
STORM Berry leikur ofurhetjuna Storm í þriðja sinn í The Last Stand en hún telur nánast útilokað að persóna sín úr X-Men-myndunum
muni skjóta upp kollinum í sjálfstæðri framhaldsmynd. „Ég hef engan sérstakan áhuga á slíku enda er það X-Men-hópurinn sem hefur
heillað mig. Þetta er svo fjölbreytt persónugallerí sem endurspeglar samfélagið allt og það er það sem gerir myndirnar svo áhugaverðar.“
Leikkonan Halle Berry er funheit í Hollywood
um þessar mundir en lífið hefur ekki alltaf leikið
við hana. Þórarinn Þórarinsson hitti stjörnuna,
sem hefur þurft að berjast fyrir því að komast á
toppinn, að máli í Cannes.