Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 78

Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 78
 3. júní 2006 LAUGARDAGUR46 Háskóli Íslands er öflugasta þekkingarsamfélag landsins. Í ellefu deildum skólans er að finna 358 námsleiðir. Markmið Háskólans er að vera meðal 100 bestu háskóla í heiminum og að nota alþjóð- lega viðurkennda gæðastaðla við allt mat á starfi skólans. Það er styrkur nemenda frá Háskóla Íslands til framtíðar. Háskóli Íslands Nýnemar: Umsóknarfrestur er til 6. júní Ath.! til 6. júní Umsóknarfrestur nýnema er til 6. júní. Rafræn umsóknar- eyðublöð eru á vefsetri Háskólans, www.hi.is. Nánari upplýsingar um námsframboð, vísindastarf og þjónustu Háskólans er að finna á vefsetrinu og í síma 525 4000. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H SK 3 25 36 06 /2 00 6 Menntaskólinn Hraðbraut hefur eignast óvenju flottar skólapeysur. Um er að ræða hettupeysur í þrem- ur litum með skemmtilegu grafísku merki að framan og aftan á bol og nafni skólans á hettunni. „Flestir framhalds- og menntaskólar eru með eigin peysur en ég held að mér sé óhætt að fullyrða að okkar peys- ur séu mest hipp og kúl.“ segr Sig- ríður Stella Guðbrandsdóttir, nemi í skólanum og hvatamaður að til- vist peysanna. „Aðrar skólapeysur eru bara með merki skólans á brjóstinu, eru fjöldaframleiddar og frekar ljótar. Mig langaði til þess að nemendur Menntaskólans Hrað- braut fengju flottari peysur til að ganga í og leitaði því til fatahönn- uðarins Söru Maríu Eyþórsdóttur, verslunareiganda Nakta apans og fékk hana í samstarf með okkur.“ Það var graffarinn Ólafur Orri Guðmundsson sem hannaði mynd- irnar sem prýða peysurnar en þær sýna Reykjavíkurborg í ýmsum myndum en myndirnar voru síðan þrykktar á peysurnar í Nakta apan- um. Nemendur skólans hafa tekið vel í þessa nýjung og um helmingur nemenda hefur nú þegar fest kaup á peysu. Mikil umræða hefur verið um skólabúninga í grunnskólum landsins að undanförnu og segist Sigríður Stella vera fylgjandi slík- um klæðnaði. „Það að geta bara skellt sér í sína skólapeysu einfald- ar allt svo mikið. Við völdum líka að nota hettupeysur sem eru mikið í tísku um þessar mundir en þær eru ekki bara flottar heldur líka hlýjar og þægilegar þannig að nemendum finnst gott að nota þær í skólann.“ -snæ Flottar skólapeysur FLOTT Í SKÓLANUM Sigríður Stella nemandi í Menntaskólanum Hraðbraut er hér í nýju skólapeysunni (svört peysa) sem hún fullyrðir að sé með flottari skólapeysum landsins. Með henni á myndinni eru sam- nemendur hennar Arney, Egill og Ívan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hljómsveitin Mannakorn gefur út plötuna „Ekki dauðir enn“ á næst- unni. Á plötunni, sem er tvöföld, eru upptökur frá þrjátíu ára afmæl- istónleikum sveitarinnar í Salnum í Kópavogi þar sem fjögurra manna strengjasveit var henni til halds og trausts. Á plötunni eru bæði gömul og ný lög með Mannakornum og er þetta fyrsta platan sem Sögur útgáfa gefur út. „Við héldum þrenna afmælistón- leika í Salnum og það var uppselt á þá alla okkur til mikillar ánægju,“ segir Magnús Eiríksson. „Við útsett- um svolítið af þessum lögum fyrir strengi og þegar við fórum að hlusta fannst okkur þær mjög skemmti- legar og ákváðum að dúndra þeim út,“ segir hann. Mannakorn stefnir að því að spila eitthvað á næstunni, auk þess sem ný plata er í vinnslu. Sú síðasta, „Betra en best“, fékk mjög góðar viðtökur og mun vera uppseld. Tvöfalt frá Mannakornum MANNAKORN Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson á afmælistónleikunum í Salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Eins og glöggir lesendur Frétta- blaðsins tóku eftir í morgun hefur myndasagan Pú&Pa verið kvödd. Í staðinn er komin verðlaunasagan Handan við hornið eða Insanity Streak eftir Tony Lopes. Mynda- sögurnar birtust fyrst í Ástralíu árið 1995 og urðu strax mjög vin- sælar hjá andfætlingunum enda þykir höfundinum Tony Lopes tak- ast einstaklega vel upp er hann skoðar hversdagsleikann í spaug- ilegu samhengi. Fleiri breytingar hafa átt sér stað á myndasögusíðu Fréttablaðsins því Gelgjan verður helgarsagan ásamt Pondusi. Gelgjan er eftir Jerry Scott sem einnig semur Barnalán en sú fyrr- nefnda hlaut hin eftirsóttu National Cartoonist Society árið 2001. Ný myndasaga HANDAN VIÐ HORNIÐ Myndasögurnar þykja sýna hversdagsleikann í ansi fyndnu ljósi. Þrjár gamlar plötur með hljóm- sveitinni Depeche Mode verða endurútgefnar þann 6. júní bæði á geisladisk- um og DVD- mynddisk- um. Um er að ræða fyrstu plötu sveitarinn- ar, Speak & Spell frá árinu 1981, Music for the Masses frá 1987, og Violator frá 1990. Heilmikið af aukaefni verður á hverjum diski fyrir sig auk þess sem hljómurinn hefur verið end- urbættur. Aukaefni frá Depeche DEPECHE MODE Í síðustu viku fór fram Norður- landamót í ökuleikni á vinnutækj- um sem notuð eru í álverum. Keppnin fór fram á lóð Álversins við Straumsvík og mættu starfs- menn níu álvera til leiks, frá Íslandi, Svíþjóð og Noregi. Í keppninni voru keppendur látnir leysa hinar ýmsu þrautir á vinnu- tækjum sem öll eiga það sameig- inlegt að vera sérhönnuð fyrir áliðnaðinn. Ein af þrautunum fól- st í því að reka keilukúlu eftir braut og ofan í gat en allar þraut- irnar voru þannig uppsettar að keppendur þurftu að sýna færni við þröngar og erfiðar aðstæður. Að sögn Halldórs Halldórssonar öryggisstjóra hjá Alcan í Straums- vík var keppninni komið á fót árið 1993 með það að markmiði að auka öryggi meðal starfmanna. Keppn- in spurðist síðan út til hinna álver- anna á Norðurlöndunum og breytt- ist þannig í Norðurlandamót. Íslensku keppendurnir stóðu sig ágætlega í ár og lenti Guðmundur Hauksson í fyrsta sæti í flokknum fyrir kerskálastarfsmenn og Haf- þór Kristjánsson lenti í öðru sæti í flokknum fyrir starfsmenn í steypuskálum. -snæ Ökukeppni á vinnutækjum SKÍNANDI EINBEITING Einbeitnin leyndi sér ekki hjá þátttakendum en þessi norski keppandi er að stýra áltökubíl sem sogar ál upp úr kerjum og flytur til steypuskálans. SÉRHÆFÐ TÆKI Ökutækin sem notuð voru í keppninni voru mörg hver mjög undarleg á að líta, en þau eru öll sérstaklega framleidd fyrir áliðnaðinn. NORSKU KEPPENDURNIR Hér má sjá brot af norsku keppendunum en Norðmenn voru þeir einu sem sendu konur í keppnina. Erlendu gestirnir voru í þrjá daga á landinu og náðu að sjá Gullfoss, Geysi og Bláa lónið í ferðinni. FLOTT LIÐ Haraldur Helgason, Hafþór Kristj- ánsson og Guðmundur Hauksson skipuðu lið álversins í Straumssvík og gekk þeim ágætlega í keppninni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.