Fréttablaðið - 03.06.2006, Síða 82
3. júní 2006 LAUGARDAGUR50
menning@frettabladid.is
!
Dans á Rósum
frá Vestmannaeyjum
í kvöld
NÝR
TVÖFALDUR G
EISLADISKUR
KR. 1.999,
-
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�������������� �������� ��������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ������������������
������������� �������� ���������
������������� �������� ���������
������������������������ ���������
�������������� �������� ���������
Kl. 15.00
Á tónlistarhátíðinni IsNord í Borg-
arnesi er athyglisverð dagskrá alla
helgina. Í dag verða tónleikar í
Surtshelli þar sem Bára Grímsdótt-
ir, Diddi fiðla og Steindór Andersen
flytja rímur og leika á gömul hljóð-
færi í óvenjulegum tónleikasal.
> Ekki missa af...
tónlistarhátíðinni Reykjavík Trópík á
háskólaplaninu um helgina. Í dag leika
meðal annars Skátar, Úlpa, Kimono, Jeff
Who, Leaves og Supergrass.
Björtum dögum í Hafnarfirði. Frá-
bærlega fjölbreytt dagskrá fyrir alla
aldurshópa, tónlist, danslist, myndlist og
menning út um allan bæ.
óperu í Þjóðleikhúsinu. Galdraskyttan
eftir Weber er ógleymanlegt sjónarspil.
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Kirkjubæjarklaustur
3. júní.
Miðasala í síma 487-4840 til
kl. 13:00 síðan í 897-1987
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Nú stendur yfir yfirlitssýn-
ing á ljósmyndum Andrésar
Kolbeinssonar í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur í Grófar-
húsi.
Andrés er sjálfmenntaður ljós-
myndari og hafði ljósmyndun að
öðru aðalstarfi um árabil ásamt
því að leika á óbó, bæði með
Útvarpshljómsveitinni og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Hann segist
hafa lært fyrstu handtökin þegar
hann eignaðist litla 35 mm Kodak-
myndavél þegar hann var í tón-
listarnámi á Englandi en síðan var
hann duglegur að safna að sér
upplýsingum, reyndi til dæmis að
fylgjast vel með tímaritum og
annarri útgáfu tengdri ljósmynd-
um.
Á sýningunni eru myndir sem
Andrés tók á árunum 1952-1965
og birta þær óvenjulega sýn á
Reykjavík þar sem augað velur
fegurð og hreinleika borgarinnar
sem þá var í örum vexti. Þorps-
bragurinn hverfur og borgin birt-
ist áhorfandanum ægifögur og
stílhrein.
Um verk Andrésar er sagt að
hann hafi afar gott auga fyrir
myndbyggingu og næma form-
skynjun. Þótt ótrúlegt sé þá notaði
hann aldrei ljósmæli við tökur og
flassið einungis ef brýna nauðsyn
bar til enda þykir honum langbest
að taka myndir í dagsbirtu.
Andrés segist ef til vill hafa
forðast óreiðuna ósjálfrátt. Á
þessum tíma var borgin ákaflega
óþrifaleg á köflum og að ganga í
gegnum ákveðið gelgjuskeið því
þorpið var að breytast í stórborg.
„Þegar ég fór út í þetta að taka
ljósmyndir þá hafði ég svo fjöl-
breytt val og borgarmyndir urðu
hluti af því. Ég tók töluvert af
myndum af listamönnum og verk-
um þeirra, svo tók ég myndir fyrir
leikhúsin og svo fyrir Hörð
Ágústsson og tímaritið Birting.
Það var kannski helst í því sam-
bandi að ég tók svona borgar-
myndir. Hörður gagnrýndi hvað
arkitektunum væru mislagðar
hendur, að það ægði saman alls
konar stílum sem hann sætti sig
ekki við,“ segir Andrés.
Andrés tók myndir af bygging-
um í ört stækkandi borginni en
myndir hans vitna einnig um
atvinnulífið, horfna starfshætti og
í fórum hans eru líka myndir af
mörgum þekktum listamönnum
og öðrum goðsögnum. „Það ægir
öllu saman, hér er til dæmis Guð-
mundur á Mokka að skenkja kaffi
og Ásmundur Sveinsson mynd-
höggvari úti í garði.“ Andrés
þekkti vel til listakonunnar Bar-
böru Árnason og í gegnum þann
kunningsskap var hann fenginn til
að mynda fjölda listamanna og
verk þeirra, þar á meðal Gunnlaug
Scheving, Jón Engilberts, Nínu
Tryggvadóttur og Þorvald Skúla-
son.
Andrés tók einnig myndir af
listakonunni Rósku, bæði ljós-
myndir og stuttmynd. „Það kom
þannig til að bræðurnir Gestur og
Kristján Þorgrímssynir sem komu
mikið við sögu við að reisa og reka
Austurbæjarbíó ákváðu að gera
tilraun með að taka stuttmynd
sem eins konar kynningu fyrir
þennan kaffibar sem var niðri á
jarðhæðinni. í tilefni af því tók ég
16 mm kvikmynd af þessu þar
sem Róska var í aðalhlutverki.
Þegar verkinu var lokið fórum við
niður til þess að fá okkur ein-
hverja hressingu og Róska fékk
sér ís.“ Stuttmyndin var ekki
tekin til sýninga en ljósmyndin
lifir.
RÓSKA BORÐAR ÍS Á AUSTURBAR Tíðarandaljósmyndir Andrésar Kolbeinssonar eru til sýnis
í Grófarhúsi. MYND/ANDRÉS KOLBEINSSON
Fágaða Reykjavík fortíðarinnar