Fréttablaðið - 03.06.2006, Page 84
3. júní 2006 LAUGARDAGUR52
utlit@frettabladid.is
Hver kannast ekki við það að
vera berfættur í skóm í rign-
ingu og roki og koma heim með
frosnar lappir eftir að hafa
farið aðeins of bjartsýnn út um
morguninn. Við Íslendingar
getum því miður ekki verið of
frjálslyndir í skóvali og ef við
ætlum að fara í sandölum út þá
liggur við að við þurfum að horfa
á veðurfréttirnar kvöldið áður og
taka með okkur sokka og aukaskó
til öryggis.
Auðvitað lætur þjóðin í norðri
nokkra dropa eða smávind ekki
slá sig út af laginu og því eru búð-
irnar fullar af fallegum skóm
fyrir sumarið. Gaman er
að sjá hversu mikið er
til af litríkum
skófatnaði og
því tilvalið að
setja svörtu
skóna í geymslu
fram á haust og
missa sig aðeins í
litagleðinni. Einnig er flott
að vera í skemmtilegum sokk-
um við hælaskónna og svörtu
sokkabuxurnar enda setur það
mjög flottan tískusvip á dress-
ið. Sagt er að skórnir séu
punkturinn yfir i-ið í heildar-
útlitinu og því ekki amalegt að
hafa úr mörgu að velja.
alfrun@frettabladid.is
Spáir þú mikið í tískuna? Já, ég geri það upp að
vissu marki en reyni að elta ekki alla tísku-
strauma vegna þess að ég er ekki Svíi. Sænskir
strákar eru þekktir fyrir að vera alltof trendí
týpur.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Ég er
með frekar fjölbreyttan fatastíl. Get verið bæði í
þröngum og víðum gallabuxum. Get verið
pínu merkjafrík.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Tiger Jeans er uppáhalds fatamerkið
mitt og hönnuðurinn er Hedi Slimane
fyrir Dior homme.
Flottustu litirnir? Hermannagrænn
og dökkblár eru málið þessa stundina.
Hverju ertu veikust/veikastur fyrir?
Jökkum, kaupi alltof mikið af jökkum...
fer að verða vandamál.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Tiger
Jeans gallaskyrtu í Kultur Menn.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna?
Þröngar, stuttar buxur og litríkir sokkar.
Einnig er ég mjög hrifinn af axla-
bandatískunni.
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir
sumarið? Mér vantar svo sem ekk-
ert en væri til í Dior-axlabönd.
Uppáhaldsverslun? Kúltur Menn,
Gallerí Sautján og All Saints.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði?
Ekki spyrja.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Diesel style
lab-skónna minna sem ég er alltaf í og acne-bláu
gallabuxurnar mínar.
Uppáhaldsflík? Ullarpeysa sem ég prjónaði á sjálfan
mig í skólanum. Mikið afrek.
Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Tókýó, þar
geturður fengið allt sem hugurinn girnist.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Klossaðar
mokkasínur í Bónusskóm á Hverfisgötu. Frábær búð
en ég var ekki í miklu stuði þegar ég keypti þá. Fóru í
ruslið eftir eina notkun.
SMEKKURINN MINN: HALLDÓR ÓSKARSSON AÐSTOÐARVERSLUNARSTJÓRI Í GALLERÍI SAUTJÁN
Reynir að elta ekki alla tískustrauma
KLOSSAÐIR HÆLAR OG BRÚNT LEÐUR
Þessir skemmtilegu skór eru í nýjum stíl
með klumphæl og lokaðir að framan.
Mjög fallegir á fæti og henta vel við pils
og buxur. Fást í GS skóm í Kringlunni.
MEÐ JAPÖNSKU MUNSTRI
Þessir ballerínuskór eru frá Diesel og eru úr
satíni. Henta vel bæði hverdags og spari og
eru með eindæmum þægilegir.
FYLLTUR HÆLL Þessir fallegu hælaskór eru
með munstruðum fylltum hæl sem gerir
það að verkum að það er þægilegra að
ganga á þeim en skóm með venjulegum
hælum. Fást í GS skóm í Kringlunni.
Marglitt sumar
í skótískunni
BLEIKIR STRIGASKÓR Þessir fallegu bleiku skór eru
frá mótórhjólamerkinu Kawasaki og fást í versluninni
Focus í Kringlunni. Ódýrir og til í mörgum litum.
NEONGRÆNT Þessir eru einnig frá
Kawasaki og skemmtilegir við hvaða tilefni
sem er. Fást í Focus í Kringlunni.
HERKÚLES Á HÆLUM
Þessir skór minna helst
á skó sem Rómverjar
notuðu nema þeir eru í
nútímalegri búningi.
Alexander McQueen
notaði svona skó
í sýningu sinni
fyrir vor/sumar
2006. Fást í
Focus í Kringlunni.
KLASSÍSKIR OG GÓÐIR
Converse-skór hafa reynst
vel og eiga flestir eitt par af
slíkum inni í skáp. Ef ekki þá er
þetta góð fjárfesting sem ég mæli með.
Þeir fást í Focus, Retró og Deres.
FRÉTTABLAÐIÐ / HÖRÐUR
Mikið lifandis ósköp hefur verið erfitt að klæða sig þessa dagana. Hið
dæmigerða íslenska veðurfar hefur verið að gera mér, tískustelpunni,
lífið leitt. Ég er búin að vera í stökustu vandræðum á hverjum einasta
morgni. Er annað hvort að kafna úr hita eða með gæsahúð á hálsinum af
kulda. Ekki skrítið að hálf þjóðin sé veik um þessar mundir enda hita-
mismunur einn helsti valdur veikinda. Helst mundi ég vilja nota nýju
sandalana mína og hlýrabolina en það er rosalegt mál að þurfa að reyna
að nýta sumarfötin eins og maður getur með alls kyns blöndum.
Ég nota vettlinga og trefla aldrei jafn mikið og á sumrin enda til-
heyra útilegur og alls konar útivist hækkandi sól en gönguferðir á fjöll,
bátsferðir og sumarbústaðaferðir bjóða upp á aðeins öðruvísi fataval en
venjulega. Það reyndist mér því þrautinni þyngra um daginn þegar ég
var á leiðinni til Vestmanneyja. Ég leit inn í stóra fataskápinn sem virt-
ist ekki hafa upp á neitt annað að bjóða en þröngar gallabuxur, leð-
urjakka og kjóla. Þegar yfir lauk var ég í fimm hettupeysum, næl-
onsokkabuxum og gallabuxum utanyfir þeim. Svo dró ég fram einhverja
gamla vindjakka sem voru rykfallnir inn í geymslu. Ekkert sérstaklega
smart en mér varð að minnsta kosti ekki kalt á meðan ég sprangaði um
kletta Heimaeyjar. Þarf að skoða útvistarfatnaðinn sem er í boði til þess
að geta verið smart í sveitinni.
Samt sem áður finnst mér ekkert sérstaklega flott að vera í flíspeysu
og buxum í stíl. Eitt sniðugt trix er að vera í síðerma bol undir blóma-
kjólnum og fallegum ullarsokkabuxum undir pilsinu. Hnepptar peysur
eru einnig ómissandi á sumrin og best er að eiga eina í hverjum lit sem
ganga við allt. Sem betur fer eru íslensku ullarpeysurnar ennþá í tísku
síðan síðasta sumar þannig að fólk þarf ekkert endilega að standa með
frosið bros uppi á fjallstindi og koma niður með blöðrubólgu. Ég er því
búin að setja það næst á dagskrá að kaupa mér flott útvistarföt.
Smart í sveitinni
MÓÐUR VIKUNNAR
> ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN
> Lancome Resurface Peel
er lúxus andlitsmeðferð með glycolic
sýru sem þú getur notað heima hjá þér
til að fá áferðarfallegri og jafnari húð.
LANCOME
SKÓLÍNAN FRÁ CHLOE Tréhælar
og fylltir botnar voru augsýnilega nýjasta
nýtt samkvæmt flestum hátískuhönnuð-
unum.
NAUÐSYNLEGT VIÐ KJÓLINN Fallegir hvítir
sandalar gera leggina brúna og gera fötin
fallegri. Frettabladid/netið
ZAC POSEN Brúnir leðursandalar sem eru
bundnir upp ökklann eru fallegir og hent-
ugir. Þessir eru frá Zac Posen en svipaða er
hægt að fá í skóverslunum hérlendis.