Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 89
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 57
FRIDAY 2 JUNE 2006 / FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2006:
09:30-19:00 Team Events and Mixed Doubles. Liðakeppni og tvenndarkeppni.
SATURDAY 3 JUNE 2006 / LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006:
09:00-17:00 Team Events, Singles and Doubles Liðakeppni, einliða- og tvíliðaleikur.
16:45-18:00 Semi-final and Final: Mixed Doubles. Undanúrslit og úrslit í tvenndarkeppni.
SUNDAY 4 JUNE 2006 / SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006:
10:00-10:45 Semi-final: Men’s and Women’s Doubles. Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna.
10:45-11:30 Semi-final: Men’s and Women’s Singles. Undanúrslit í einliðaleik karla og kvenna.
11:30-12:15 Final: Men’s and Women’s Doubles. Úrslit í tvíliðaleik karla og kvenna.
12:15-13:50 Final: Men’s and Women’s Singles. Úrslit í einliðaleik karla og kvenna.
13:00-14:00 Winners Ceremony. Verðlaunaafhending.
Norður Evrópumótið
í borðtennis 2006
TBR ÍÞRÓTTAHÚSINU við GNOÐARVOG
2006 North European Table Tennis Championships
Reykjavík, Iceland, 2-4 June TBR SPORT CENTER – GNODARVOGUR 1
Gudmundur E. Stephensen
North European Table Tennis Champion 2004.
What happens 2006 ?
Tekst Guðmundi að verja titla sína?
FÓTBOLTI Í hádeginu í gær var
dregið í fjórðu umferð VISA-
bikars karla í knattspyrnu. Tvo
grannaslagi ber hæst í umferðinni
en KA og Þór mætast á Akureyri
og ÍR og Leiknir í Breiðholtinu.
Úrvalsdeildarfélögin koma inn í
pottinn í næstu umferð, sextán
liða úrslitunum.
FJÓRÐA UMFERÐIN:
14. JÚNÍ: FJARÐARBYGGÐ - SINDRI
15. JÚNÍ: ÍR - LEIKNIR
15. JÚNÍ: AFTURELDING - NJARÐVÍK
15. JÚNÍ: ÞRÓTTUR R. - HK
16. JÚNÍ: KA- ÞÓR
16. JÚNÍ: HAUKAR - FRAM
VISA-bikar karla:
Grannaslagi
ber hæst
BIKARMEISTARARNIR Valsmenn eru
núverandi bikarmeistarar, en þeir koma inn
í næstu umferð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NBA Þjóðverjinn Dirk Nowitzki,
sem stundum er kallaður Nick, var
allt í öllu í liði Dallas sem vann
öruggan sigur á Phoenix í fimmta
leik liðanna í úrslitaeinvígi
Vesturdeildarinnar 117-101 og tók
þar með 3-2 forystu.
„Ég sagði strákunum bara að nú
væri kominn tími til að bretta upp
ermarnar. Þegar Phoenix náði
forskotinu í þriðja leikhlutanum fór
ég að sjá frábært tímabil okkar fjara
út í huganum og ég gat ekki látið það
gerast,“ sagði Nowitzki af sinni
alkunnu hógværð.
50 stig Nowitzki voru persónulegt
met hjá honum í úrslitakeppni og
félagsmet hjá Dallas, en aðeins einn
annar, Kobe Bryant, hefur skorað 50
stig í úrslitakeppninni í ár og það var
einnig gegn Phoenix - reyndar eftir
framlengdan leik.
Tim Thomas var besti maður
Phoenix í leiknum og skoraði 26 stig.
- hþh
NBA körfuboltinn:
Dirk Nowitzki
skoraði 50 stig
NOWITZKI Fannst ekki leiðinlegt að sjá 50.
stigið detta niður í körfuna í fyrrinótt.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Wayne Rooney hefur
tekið mikilvægt skref í átt að bata
fyrir HM í sumar en hann tók þátt
í æfingu enska liðsins í gær. Hann
hljóp mikið og sparkaði í bolta, en
það er í fyrsta sinn sem hann gerir
það síðan hann braut bein í fætinum
á sér í lok aprílmánaðar.
„Hann hefur verið að vinna
með læknum Manchester United
alla vikuna. Hann er að verða
góður, en við verðum að bíða og
sjá,“ sagði aðstoðarþjálfarinn
Steve McClaren, og tilvonandi
landsliðsþjálfari. Rooney fer í
ítarlega læknisskoðun þann 7. júní
og mun það skera úr um hvort
hann geti spilað á mótinu.
„Vonandi sýnir skoðunin fram
á að allt sé í góðu. Það býr mikið
sjálfstraust í stráknum og við
munum gera allt sem við getum til
að hann geti spilað,“ sagði Sven
Göran-Eriksson um Rooney, en
ekki er búist við því að hann geti
spilað með í riðlakeppninni. - hþh
Wayne Rooney:
Byrjaður að
sparka í bolta
FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, segir að
Didier Drogba sé ekki á förum frá
félaginu eins og orðrómur hefur
verið um.
„Margir eru að tala um að
Andriy kæmi inn og Drogba færi
en það var aldrei, aldrei áætlunin.
Þeir eru tveir framherjar með
mjög mismunandi eiginleika,“
sagði Mourinho.
„Andriy er hraður með boltann
á tánum, frábærar hreyfingar og
með auga fyrir spili, hann er
frábær leikmaður. Didier er sterkur,
kraftmikill, baráttuhundur og
frábær í að skapa öðrum pláss.
Þeir gætu því náð vel saman
frammi,“ bætti Mourinho við. - hþh
Jose Mourinho:
Drogba er ekki
á förumFÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englendinga, mun
að öllum líkindum snúa aftur í leik-
kerfið 4-4-2 í síðasta æfingaleik
enska landsliðsins fyrir HM sem
verður gegn Jamaika í dag. Peter
Crouch skoraði gegn Ungverjalandi
í vikunni eftir að hafa komið inn
sem varamaður og verður líklegast
í byrjunarliðinu og mun verða við
hlið Michael Owen í fremstu víg-
línu.
„Við munum breyta leik okkar
töluvert frá því á þriðjudaginn,“
sagði Eriksson á blaðamannafundi
í gær. Jamie Carragher mun taka
stöðu Gary Neville í hægri bak-
verðinum þar sem Neville á við
smávægileg meiðsli að stríða en
hann verður þó sem betur fer fyrir
England orðinn leikfær í fyrsta
leik riðlakeppninnar. „Hann hefði
alveg getað spilað gegn Jamaika,
meiðsli hans eru það smávægileg.
Við tökum hins vegar enga áhættu,“
sagði Eriksson.
„Í þessum tveimur landsleikjum
fyrir keppnina sjálfa prufum við
tvær ólíkar leikaðferðir, við
munum líklega notast við þær
báðar á HM,“ sagði Eriksson. David
Beckham, fyrirliði enska landsliðs-
ins segir að leikmönnum liðsins
líki betur við leikaðferðina 4-4-2.
Gaman verður að sjá hvort
Crouch verði á skotskónum í leiknum
í dag og bjóði jafnvel aftur upp á
vélmennadansinn sem vakti mikla
lukku gegn Ungverjum. Síðan
Crouch tók dansinn hefur hann oft
og tíðum fengið beiðnir um að
endurtaka dansinn og gert það fús-
lega. Búist er við því að þessi dans
verði sá heitasti á skemmtistöðum
Englands og jafnvel víðar um
þessa helgi. - egm
Mun Peter Crouch endurtaka vélmennadansinn magnaða gegn Jamaika?:
Peter Crouch verður í byrjunarliðinu
CROUCH Heillar stúlkurnar upp úr skónum
með vélmennadansinum. NORDICPHOTOS/AFP