Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 18
 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Svona erum við 550 322 20 00 20 04 19 96 346 Áhyggjur af kríuvarpi Kríuvarp hefur misfarist á Íslandi annað árið í röð vegna skorts á sandsílum. Guðmundur A. Guðmundsson, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur nokkrar áhyggjur en segir þó að þótt einstök ár bregðist þá þurfi það ekki endilega að hafa skelfilegar afleiðing- ar þar sem krían er langlífur fugl. Hversu margar kríur koma til landsins á ári hverju? Þær eru taldar í hundruðum þús- unda og yfirleitt er talað um 250 til 500 þúsund pör. Ísland er með helstu varpstöðum kríunnar, sem verpir víða umhverfis norðurhvel jarðar, en ég þekki það nú ekki svo vel hversu stór hluti allra kría verpir hér á landi. Hvar eru stærstu vörp á landinu? Stærstu vörpin eru sunnan- og vest- anlands, til dæmis á Rifi, Reykjanestá og í Vík í Mýrdal. Við sjávarsíðuna á suður- og vesturlandi étur krían mikið til sandsíli en fyrir norðan og austan er minna um þau og þar étur hún þá eitthvað annað. Hvaðan kemur krían til Íslands? Við getum rakið ferðir hennar til Suður-Afríku. Þaðan hverfur hún í desember og okkur grunar að einhverjar fari til Suðurskautslands- ins. Krían er sá farfugl sem ferðast lengstu vegalengdina, eða 14 til 15 þúsund kílómetra hvora leið, sem er hátt í hálfa leiðina umhverfis hnöttinn. SPURT & SVARAÐ KRÍAN GUÐMUNDUR A. GUÐMUNDSSON Kvenréttindadagurinn 19. júní var haldinn hátíðlegur í gær og því er ekki úr vegi að skoða eitt þeirra félaga sem berjast fyrir bættri og breyttri stöðu kvenþjóðarinnar á Íslandi, Femínistafélag Íslands. Hvað er Femínistafélagið? Femínistafélagið kallar sig „umræðuvettvang og baráttutæki íslenskra femínista“. Félagið er frjáls og óháður vettvangur sem hefur það að markmiði að efla gagnrýna og femíníska umræðu á öllum sviðum þjóðlífsins. Á heimasíðu félagsins eru aðalmarkmið þess talin upp. Helstu baráttumálin eru að vinna að jafnrétti kynjanna, styrkja þátttöku kvenna í opinberu lífi, fjölmiðlum og stjórnmálum og vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis. Þar má nefna klámvæðinguna, ágengar, lítilsvirðandi auglýsingar, ofbeldi, mansal og vændi. Einnig vill félagið stuðla að samfélagi sem tekur mið af mismunandi hags- munum og sjónarmiðum karla og kvenna svo sem í atvinnu- og mennta- málum, stjórnmálum, menningu og á vettvangi einkalífsins. Hvernig starfar Femínistafélagið? Femínistafélagið vinnur í nokkrum starfshópum, sem hafa mismunandi starfsvið. Meðal þeirra hópa sem eru starfræktir er atvinnu- og stjórnmálahópur, sem einbeitir sér að vinnustaðn- um, launamisrétti og þrýstingi á stjórnmálaflokka. Karlahópur vinnur að því að kynna femínisma fyrir karlmönnum og staðalímyndahópur vinnur gegn þeim hugmyndum sem uppi eru í þjóðfélaginu um eðli og hlutverk kynjanna. Loks má nefna Unga femínista, sem beita sér sérstaklega fyrir vitundarvakningu um kvenfrelsi hjá yngri kynslóðunum. > Útbreiðsla dagblaða á 1.000 íbúa Heimild: Hagstofa Íslands ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L YF 33 18 7 0 6/ 20 06 www.lyfja.is „Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“ Acidophilus Mjólkursýrugerlar fyrir börn og fullorðna. Fyrir heilbrigða meltingu, ekki síst á ferðalögum erlendis. PGX - Drykkjarblanda Bylting í þyngdarstjórnun. Misstu fituna - ekki vöðvamassa eða vökva. tilboð 1.985,- kr. Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási EAS fitubrennslutvenna CLA + EVERLEAN aðeins FBL-GREINING: FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS Vilja samfélag án kynjamisréttis Framtíðarlandið, félag áhugafólks um framtíð Ís- lands, var stofnað í Austur- bæ á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Ellefu hundruð manns hafa nú þegar skráð sig í félagið sem hugsað er sem þverpólitískt afl. Afskipti af kosningabaráttu næsta vetrar eru ekki útilokuð. Byrjað var að skrá félaga í sam- tökin í gegnum netið, stofndaginn 17. júní. Að sögn Birkis Björnsson- ar gagnagrunnssérfræðings, sem er einn þeirra sem skipa níu manna bráðabirgðastjórn félagsins til að byrja með, hefur skráningin farið vel af stað og hafa nú rúmlega ell- efu hundruð manns skráð sig í félagið. „Við finnum fyrir gríðar- legum áhuga á félaginu og fólk er í hvívetna að koma upp að okkur til að lýsa yfir ánægju sinni með stofnun félagsins, því þetta sé löngu tímabær rödd í umræðunni.“ segir Birkir. Hann segir að nú sé verið að ákveða næstu skref og undirbúa haustið, en þá er fyrir- hugað að halda stórt þing þar sem stjórn félagsins verður kosin. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að Framtíðarlandið verði þver- pólitískt, það innihaldi fólk úr öllum áttum, flokkum og stéttum mannlífsins sem geti haft áhrif til breytinga. „Félagið er fyrst og fremst hugsað sem vettvangur fyrir góðar hugmyndir. Okkur finnst íslensk stjórnvöld ekki hafa verið ýkja frumleg í mótun Íslands framtíðarinnar fyrir okkur og börnin okkar,“ segir Ósk Vilhjálms- dóttir, listakona og ferðamála- frömuður, sem einnig á sæti í bráðabirgðastjórn félagsins. „Okkur finnst landið standa á það miklum tímamótum að umræðan verði að vera meira áberandi. Fólk gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því að við erum nota aldagamlar hugmyndir og lausnir á efnahags- málunum og Ísland er að breytast í orkuparadís fyrir stórfyrirtæki. Með því þarf að leggja undir land og stefna ört vaxandi atvinnu- greinum eins og ferðaþjónustu í voða.“ Félagið segir í yfirlýsingu sinni að Íslandi hafi verið stefnt í eina átt, þar sem farsæld og fjölbreytni í atvinnulífi hafi verið sett til hlið- ar fyrir stóriðju, þenslu og eyði- leggingu náttúruverðmæta. Félag- ið telur að með samtakamætti geti fólk haft raunveruleg áhrif svo sveigt verði af leið áður en það verði um seinan. Markmið félagsins er að virkja fólk sem vill að Ísland verði mann- vænt, vistvænt, skapandi og skemmtilegt land, eins og segir í yfirlýsingunni. Félagið ætlar sér, að sögn Óskar, að vera vettvangur fyrir alla þá sem eru í vafa um að framtíðaráform stjórnvalda séu landi og þjóð fyrir bestu. Ósk segir enn fremur að félagið sé ekki á móti stóriðju, það sé ekki hlutverk þess eða tilætlun, heldur frekar að setja fram aðrar hug- myndir sem sjaldan séu uppi á borðinu og í umræðunni. „Við vilj- um ekki gera út á að vera á móti hlutum. Við viljum frekar hjálpa til við að móta framtíð landsins með frumlegum hugmyndum í efnahagsmálunum. Okkur finnst hins vegar afar varhugavert að hafa öll eggin í sömu körfunni,“ segir Ósk. Félagið útilokar ekki að skipta sér af kosningabaráttunni á næsta ári. Þar komi vel til greina að krefja stjórnmálaflokkana um svör og stefnu í hinum ýmsu hita- málum. „Það er klárt mál að við tökum stöðuna í haust. Við ætlum að skerpa umræðuna og styðja stjórnvöld til góðra verka og það er alveg ljóst í mínum huga að við ætlum að gera það sem gera þarf,“ segir Ósk. Fundurinn, sem var haldinn í Austurbæ eins og áður sagði, var vel sóttur og komust færri að en vildu að sögn Óskar. „Það var orðið troðfullt á hádegi og um hundrað manns stóðu fram í and- dyri og reyndu að fylgjast með, því að ekki var pláss fyrir fleiri í salnum.“ Bráðabirgðastjórn Framtíðar- landsins skipa þau Andri Snær Magnason rithöfundur, Birkir Björnsson gagnagrunnssérfræð- ingur, Irma Erlingsdóttir lista- kona, María Ellingsen leikkona, Ósk Vilhjálmsdóttir, listakona og fararstjóri, Reynir Harðarson, framkvæmdastjóri CCP, Rögn- valdur J. Sæmundsson, dósent og forstöðumaður Rannsóknarmið- stöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum, Sigríður Þorgeirsdóttir, heimspekingur og dósent við Háskóla Íslands, og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, doktor í grasafræðum. aegir@frettabladid.is Vettvangur nýrra hugmynda VEL SÓTTUR STOFNFUNDUR Bekkurinn var þétt setinn í Austurbæ við stofnun Framtíðarlandsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.