Fréttablaðið - 20.06.2006, Side 22
[ ]
Línuskautar eiga vaxandi
vinsældum að fagna. Helgi
Páll Þórisson og félagar hans
hjá línuskautum.is standa fyrir
námskeiðum fyrir þá sem vilja
læra á línuskauta.
„Við höfum verið með þessi nám-
skeið undanfarin sumur og þau
hafa verið mjög vinsæl,“ segir
Helgi. „Námskeiðin eru þannig
uppbyggð að þetta er í rauninni
bara eitt skipti. Við kennum undir-
stöðuatriðin og förum yfir það
helsta á þessum eina og hálfa
klukkutíma og flestir ná ótrúlega
góðri tækni á þessum stutta tíma,“
segir Helgi og bætir því við að í
þessu eins og öðru skipti æfingin
mestu máli. „Ef þú kemur á nám-
skeið til okkar eina kvöldstund og
ert síðan duglegur að æfa þig þá er
þetta fljótt að koma. Við erum fyrst
og fremst að kenna fólki grunn-
atriðin og þegar þau eru komin er
auðvelt að prófa sig áfram sjálfur.
Þetta er auðvitað einstaklings-
bundið en ég myndi segja að það
þyrfti ekki nema svona fimm til tíu
skipti til þess að ná góðri skauta-
færni þannig að maður geti skaut-
að sér til ánægju.“
Helgi og félagar hafa aðallega
tekið að sér að halda námskeið
fyrir hópa. „Þetta hefur til dæmis
verið mjög vinsælt hjá vinahópum,
vinnustöðum eða saumaklúbbum
og við höfum líka nokkrum sinnum
fengið hópa sem eru að steggja eða
gæsa vini sína. Þetta er alltaf bara
eitt skipti en við höfum líka stund-
um verið með sérsniðin námskeið
fyrir hópa ef þess er óskað. Svo
erum við líka alltaf með opna tíma
einu sinni í viku sem er tilvalið
fyrir einstaklinga að mæta í,“ segir
Helgi og bætir því við að alltaf sé
eitthvað um að fólk skauti án þess
að læra réttu tæknina. „Það skiptir
máli að vita um þessi grunnatriði
eins og hvernig á að standa og bera
sig að til þess að forðast slys. Þótt
fólk kunni að renna sér getur líka
verið gott fyrir alla að koma á nám-
skeið og fínpússa tæknina.
Helgi segir að línuskautarnir
verði sífellt vinsælli og á von á líf-
legu sumri. „Þetta hefur aukist
jafnt og þétt undanfarin ár. Fyrst
voru það aðallega börn og ungling-
ar sem stunduðu línuskautana en
það hefur breyst smátt og smátt og
við höfum til dæmis orðið varir við
mikla aukningu í aldurshópnum 35
til 40 ára,“ segir Helgi.
Námskeiðin fara fram á plani
við Skautahöllina í Laugardalnum.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðunni: www.linu-
skautar.is.
thorgunnur@frettabladid.is
Vinsælt hjá vinahópum
og vinnufélögum
Helgi Páll segir að það sé ekki svo flókið að
læra að renna sér á línuskautum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Skemmtileg hreyfing og holl útivera eru meðal þess sem gerir línuskautana svo skemmtilega. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þótt lítið sjáist til sólar þessa dagana er engin ástæða til
þess að hlaupa í sólarbekkina. Gott úrval brúnkukrema og sólarpúðra
geta gert útlitið sumarlegra og frísklegra.
GRÆNT TE HEFUR JÁKVÆÐ ÁHRIF Á
HEILSUNA
Grænt te og svipaðar afurðir eru
mjög vinsælar um þessar mundir.
Kröftugir andoxunareiginleikar
þeirra og mikið koffíninnihald eru
helstu eiginleikarnir sem gera þær
eftirsóttar. Rannsóknir hafa marg-
sannað að jákvæð áhrif af grænu tei
á heilsuna eru mikil. Mest áberandi
eru jákvæðu fitubrennsluáhrifin hjá
efnum sem kallast katekín pólýfenól.
Seyði úr grænu tei geta ekki
aðeins aukið efnaskipti í hvíld,
heldur virðast aukahitaeiningar sem
brenndar eru vera mest megnis
líkamsfita. Vísindaleg skýring á
virkni græns tes er sú að undir-
flokkar pólýfenól-efnisins hafa þann
eiginleika að koma í veg fyrir virkni
þess ensíms í líkamanum sem
brýtur niður noradrenalín, en það
efni eykur losun fitu frá fitufrumum
og oxun þeirra í vöðvafrumum. Auk
andoxunareiginleikanna telja margir
að grænt te hafi mjög jákvæð áhrif á
ýmsa kvilla og mein.
Mikil virkni í grænu tei
Grænt te hefur verið drukkið öldum saman í Asíu. Búddamunkar eru meðal þeirra sem
drekka grænt te þegar þeir hugleiða.
KELP
Fyrir húð, hár og neglur
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn
Póstsendum
um land allt
Eftir stutta fjarveru eru
Havarti, Krydd Havarti
og Búri nú fáanlegir
í næstu verslun!
Komnir úr fríi ...
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
STJÖRNUFRÉTTIR
LÍFSTÍLL
ALVÖRU FÓLK
1
2
3
STJÖRNUFRÉTTIR
LÍFSTÍLL
ALVÖRU FÓLK
1
2
3