Fréttablaðið - 20.06.2006, Side 24

Fréttablaðið - 20.06.2006, Side 24
 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR4 Í Danmörku eru tvær opinber- ar kynlífshjálparstofur. Langir biðlistar og mikil aðsókn benda til þess að fólk leiti sér meira hjálpar vegna vanda- mála í rúminu en áður fyrr. Aðsókn á kynlífshjálpardeild rík- issjúkrahússins í Danmörku hefur aukist úr tvö þúsund viðtalstímum í þrjú þúsund viðtalstíma á ári. Á annarri nýrri stofu, sem var opnuð til að mæta þörfum landans, er hundrað manna biðlisti eftir við- talstíma og tekur það átta til níu mánuði að komast að. Samkvæmt kynlífssérfræðing- um eru það engin smávandamál sem hrjá þá sem leita sér aðstoðar. Fólk hefur, í mörgum tilfellum, beðið með að leita sér aðstoðar í lengri tíma vegna vandamála sinna sem hafa haft mikil áhrif á kynlífið og samband þeirra. Opn- ari umræða um kynlíf og ástar- sambönd hefur orðið til þess að fólk þorir frekar að ræða vanda- mál sín og leita lausna við þeim. Einnig á það auðveldara með að leita sér aðstoðar hjá sérfræðing- um sem starfa innan sjúkrahús- anna vegna traustsins sem borið er til opinberra stofnanna. Það er því mikil þörf fyrir það í Danmörku að opna fleiri kynlífs- hjálparstofur svo komið sé til móts við langa biðlista og mikinn áhuga Dananna til þess að ræða vanda- mál sín. Talið er að með fleiri stof- um muni fleiri leita sér aðstoðar, þar sem Danir eru greinilega farn- ir að líta á kynlífið sem eitthvað sem hægt er að fá sérfræðiaðstoð með til þess að bæta það. Heimildir fengnar úr MetroX- press - ebg Danir ræða vanda- mál í kynlífinu Sífellt fleiri leita sér aðstoðar vegna kynlífsvandamála. Ekki eru öll sætindi óholl. Þegar þörfin fyrir sætindi sverfur að þarf ekki að grípa í súkkulaði. Öll þau sætindi sem móðir náttúra hefur gefið okkur eru afskaplega holl og líka góð. Ávextir eru næringarríkir og góðir ensíma- og andoxunarefna- gjafar. Þeir styrkja ofnæmiskerf- ið og auka orkuna. Dæmi um góm- sæta ávexti eru bláber, brómber, hindber, jarðarber, vatnsmelónur, epli, apríkósur, kirsuber, vínber, ferskjur, perur, plómur og rúsín- ur. Sætuefni sem óhætt er að nota stöku sinnum sem nasl eða í mats- eld eru síróp úr brúnum hrísgrjón- um, hrísgrjóna og haframalt, hun- ang, hrásykur, þynntur eplasafi, þynntur greipsafi og hreint hlyns- íróp. Úr bókinni Þú ert það sem þú borðar. Holl sætindi Hindber eru holl, góð og sæt. Anna Rún Kristjánsdóttir, nemandi á Íþróttafræðasetri Kennaraháskóla Íslands að Laugarvatni, er einkaþjálfari í Laugardalslaug í sumar. Anna Rún var á fyrsta ári í íþrótta- kennaraháskólanum á Laugar- vatni í vetur og í framhaldi af því fékk hún þá hugmynd að sam- ræma sund og einkaþjálfun. „Ég vissi að Hreyfing væri að bjóða frítt í sund og mér datt í hug hvort það vantaði ekki einkaþjálfara í sundið sem væri svona tilbreyting frá einkaþjálfuninni sem er í saln- um,“ segir hún. Anna Rún þekkir sundið vel því hún byrjaði sjálf að æfa sund þegar hún var átta ára og var í landsliðinu í sundi um tíma. „Ég æfði sund í tíu ár og var í landslið- inu í sex ár. Ég hef líka þjálfað sund áður og svo sá ég um íþrótta- iðkun á leikskóla þar sem ég var að vinna,“ segir hún. Einkaþjálfunin hjá Önnu Rún fer að mestu fram í Laugardals- lauginni. „Þjálfunin fer þannig fram að ég tek fólk í sal og svo er ég með það í sundi að minnsta kosti einu sinni í viku. Fólk getur valið um það hvort að sundið er aðalhluti þjálfunarinnar eða auka- hluti. Ef sundið er aðalhluti þá er það þrisvar sinnum í viku, en ann- ars svona einu sinni til tvisvar sinnum í viku. Sundið er fyrir alla og ég er bæði með byrjendur og lengra komna.“ Sundeinkaþjálfuninni hefur verið vel tekið að sögn Önnu Rúnar. „Þetta hefur gengið mjög vel og margir hafa verið að spyrja um þetta og koma í tíma.“ Anna Rún verður einkaþjálfari út sumarið en haust fer hún aftur að Laugarvatni og heldur áfram námi sínu þar. emilia@frettabladid.is Góð tilbreyting frá einkaþjálfun inni í sal Anna Rún er með fólk í einkaþjálfun í Laugardalslaug. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Fitusog án skurðaðgerðar • Á aðeins 10 dögum færðu árangur sem jafnast á við fitusog • Húðin stinnist og appelsínuhúðin hverfur • Þú ert mæld,magi rass og læri, fyrir og eftir • Öflugasta cellómeðferð hingað til sem stittir biðtímann um margar vikur • 6 mismunandi aðferðir notaðar á þig til að skila sem mestum árangri • 100% ánægja þegar meðferðinni er lokið... Verð: 37.400,- Ef þú pantar strax í dag Minna Mál grenningarmeðferðina færðu hana á tilboðsverði kr: 21.900,- Hringdu núna, síminn er: 577 7007 Kínastofan • Stórhöf›i 17 • 110 Rvk • Birta Björnsdóttir fatahönnuður og Jón Páll listamaður í 100 ára gömlu húsi við Miðstræti • Uppskrift af austurlensku partítjaldi og allt sem þig vantar til að gera garðinn frægan • Rautt og bleikt þema • Listrænt fúnkíshús við Vatnsenda • Ofursvöl piparsveinaíbúð í 101 Reykjavík TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ Í ÁSKRIFT MEÐ 30% AFSLÆTTI Á AÐEINS 489 KR. EINTAKIÐ OG FÁÐU VEGLEGA GJÖF Í KAUPBÆTI GLÆNÝTT VEGGFÓÐUR ER KOMIÐ ÚT ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.