Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 20

Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 20
 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Ný borgarstjórn í höfuðstaðnum og ný ríkisstjórn í sömu vikunni, ég hugsa að það gerist ekki oft, kannski hefur það aldrei gerst fyrr, en það skiptir ekki svo miklu máli að ég leggi á mig rannsóknir til að komast að því. Framsóknar- flokkurinn sem minnkar stöðugt er með lykilhlutverk í báðum þess- um stjórnum, skiptir engu að einu sigrarnir sem flokkurinn hefur unnið undanfarið eru á skoðana- könnunum. Formaður fjölskyldunefndar ríkisstjórnarinnar er kominn í áhrifastöðu í borginni og hefur nú tækifæri til að hrinda áhugamál- um sínum í framkvæmd, sem kunnugt er telur hann skólabún- inga þá aðgerð sem helst muni gagnast íslenskum fjölskyldum í lífsins ólgusjó. Sá vaski maður sagði í blaði nú um helgina að hann hefði hætt í stjórnmálum hefði hann ekki komist að í borginni, mér finnst það bera vott um mikla óþolinmæði og lítið úthald. Hann virðist líka frekar fúll út í Jónínu Bjartmarz af því að hún hefur mætt í vinnuna undanfarin þrjú ár og hann því ekki setið sem vara- maður hennar á þingi. Eru ungir framsóknarmenn þeirrar skoðun- ar að fólk eigi skrópa í vinnunni svo varamenn komist á þing? Sjálfstæðiskonur eru harmi slegnar vegna þess að karlarnir sem sömdu um ríkisstjórnarsam- starfið víluðu og díluðu umhverf- isráðuneytið á milli flokka. Sjálf- stæðiskona sem átti mikið ógert, að eigin sögn, missti ráðherra- embætti og framsóknarkona tók við. Leikkonurnar í þessum þætti stjórnarmyndunarinnar kepptust við að segja okkur að umhverfis- ráðuneytið væri svo sannarlega mikilvægt jafnvel þótt önnur þeirra hætti að stjórna því og hin tæki við. Það er mikill óþarfi fyrir umhverfisráðherra að tyggja ofan í þjóðina að umhverfisráðuneytið sé mikilvægt, þjóðin veit það. Hús- fyllir í Austurbæ á stofnfundi Framtíðarlandsins sýndi að fleir- um en fráfarandi eða verðandi umhverfisráðherrum er annt um umhverfismál. Kannski eru samt skiptar skoðanir um hvað umhverf- isráðherrar eiga að leggja mesta áherslu á. Akstur bifhjóla utan vega er vissulega áhyggjuefni, stóriðjustefna ríkisstjórnarinnar er umhverfinu hins vegar miklum mun hættulegri. Gaman væri að hafa umhverfisráðherra sem fatt- aði það. Nú er ár fram að alþingiskosn- ingum, því varla er við öðru að búast en að ríkisstjórnin þrauki til næsta sumars fyrst hún komst í gegnum síðasta klúður forsætis- ráðherrans fráfarandi. Hann virð- ist frekar illa tengdur maðurinn sá, undrun konu ætlaði engan enda að taka í þeirri framvindu, en nú eru allir komnir í stóla og þá er ríkisstjórninni örugglega ekkert að vanbúnaði að glíma við efna- hagsmálin og þau svörtu ský sem eru á þeim himni. Þingmenn hafa næsta vetur til að laga eftirlaunaskandalinn. Frambjóðendur við síðustu kosn- ingar höfðu enga hugmynd um þá miklu launahækkun sem beið þingmanna og ráðherra á kjör- tímabilinu. Því verður varla séð að nokkuð sé því til fyrirstöðu að kippa hneykslinu úr sambandi og byrja aftur þar sem frá var horfið. Þeir sem komnir eru á eftirlaun og hafa því fengið fúlgur greiddar samkvæmt ósómanum geta prísað sig sæla fyrir að hafa grætt í því happdrætti, en eiga engan rétt á að halda áfram að skipta með sér ránsfengnum. Ef hægt er að hækka laun þing- manna og ráðherra með lögum, þá er líka hægt að lækka laun þeirra með lögum. Það er ekki flóknara en það. Dragist þetta fram yfir kosningar geta þau sem þá bjóða sig fram haldið því fram að súper- kjörin hafi haft áhrif á framboð þeirra og hafa kannski eitthvað til síns máls. Þess vegna skiptir meg- inmáli að snúa ofan af þessu fyrir kosningar. Verði það ekki gert finnst mér augljóst að kosið verði um launakjörin. Formaður Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur hefur lagt fram tillögu um að þingmenn og ráð- herrar leggi sitt til nýrrar þjóðar- sáttar um laun í landinu með því að gefa eftir eftirlaunin en að hvor hópur fái í staðinn 30 prósenta og 70 prósenta kauphækkun. Ég er búin að lesa þetta oft og þessi er tillagan. Ég skil reyndar ekki alveg hvert framlag þessa hóps launþega yrði til sáttar um launin, nema að við eigum öll að fá 30 pró- senta eða 70 prósenta launahækk- un. Samkvæmt lógikkinni virðist mér að þeir sem lægri hafa launin ættu að fá 30 prósenta launahækk- un og þeir sem hærri hafa þau 70 prósenta. Ég verð að segja eins og er að ég er ekki bara hissa á þess- ari tillögu verkalýðsforingjans, ég er alveg gáttuð. Um eftirlaunaósóma Í DAG Í TILEFNI NÝRRA STJÓRNA VALGERÐUR BJARNADÓTTIR Þeir sem komnir eru á eftir- laun og hafa því fengið fúlgur greiddar samkvæmt ósóman- um geta prísað sig sæla fyrir að hafa grætt í því happdrætti, en eiga engan rétt á að halda áfram að skipta með sér ráns- fengnum. Mikil umskipti hafa orðið á Austurlandi á undanförnum misserum og um þessar mundir er æ skýrar að koma í ljós hvaða áhrif stórframkvæmdirnar hafa á þróun og mannlíf þéttbýlisstaðanna eystra. Þar rísa til að mynda margra hæða íbúðarhús á mörgum stöðum, ýmis þjónustustarfsemi hefur stóreflst og nýjar opinberar byggingar hafa risið eða eru að rísa. Þá hafa orðið miklar breytingar á samgöngum, en því miður hafa strandsiglingar svo til lagst af til þessa landsvæðis eins og annarra hér á landi og álag á þjóðvegina því aukist mjög, ekki síst tímabundið frá Reyðarfirði og að Kárahnjúkum. Í sam- bandi við virkjanaframkvæmdirnar hefði átt að nota tækifærið og styrkja eða gera nýja brú yfir Löginn á milli Egilsstaða og Fellabæjar og endurnýja síðan veginn vestan við Lagarfljót. Allt þetta hefði að vísu kostað mikla fjármuni en það hefði komið til góða síðar, því leiðin um Hallormsstaðaskóg er þegar orðin of fjölfarin og ekki boðlegt að beina slíkri þungaumferð þar um, eins og á sér stað í dag. Mestu flutningarnir á aðföngum til Kárahnjúkavirkjunar taka brátt enda, en þangað verður engu að síður mikil umferð í framtíðinni, sem þyrfti í meira mæli að fara vestan við fljótið. Það er töluvert mikill munur á stórvinnusvæðunum tveimur, Kárahnjúkum og Reyðarfirði. Á fyrrnefnda staðnum keppast menn við að koma stíflunni miklu upp og í rétta hæð og þar er mikið jarðrask en niðri á Reyðarfirði keppast menn hins vegar við að reisa mörg hundruð metra kerskála fyrir veturinn, auk annarra bygginga á staðnum. Á Kárahnjúkum verður farið að fylla í Hálslón síðsumars og þar fara framkvæmdir að ná hámarki. Innan nokkurra missera verða þar aðeins örfáir starfsmenn, þegar Hálslón hefur náð fullri hæð og verður að flatarmáli á stærð við Löginn. Það er því auðvitað af og frá að halda því fram að með Hálslóni sé verið að sökkva hálendi Íslands. Tilkoma lónsins hefur vakið marga af værum blundi í umhverfismálum, og auðvitað eiga menn að hafa rétt til að hafa sína skoðun á þessum stórframkvæmdum og hafa í frammi mótmæli á staðnum. Ofbeldi og skemmdar- verk eru hins vegar ekki til framdráttar málstað þeirra sem ekki eru sáttir við framkvæmdina. Stöðvarhúsið sjálft í Fljótsdal er að mestu sprengt inn í fjallið skammt innan við Valþjófsstað. Þaðan liggja svo háspennulín- urnar áleiðis niður á Reyðarfjörð og verða þar áberandi í lands- laginu. Um leið og fólki fækkar við Kárahnjúka og hinir fjölmörgu erlendu starfmenn sem nú eru á Reyðarfirði fara til síns heima, fjölgar þar í starfsliði Alcoa. Nú þegar geta menn vel gert sér grein fyrir umfangi álversins á Reyðarfirði og hvernig það muni líta út í raunveruleikanum. Þetta gerist þrátt fyrir að Skipulagsstofnun hafi ekki skilað áliti sínu á umhverfisáhrifum álversins og þess varla að vænta fyrr en kerskálinn mikli er kominn undir þak. Álit stofnunarinnar hefði með réttu auðvit- að átt að liggja fyrir áður en framkvæmdir hófust, en þetta sýnir með öðru hraðann á þessu verki. Væntanlega verður öðru- vísi að þessum þætti mála staðið á Bakka norðan við Húsavík. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Stórframkvæmdirnar hafa sín áhrif. Umskipti á Austurlandi Frá borginni Í byrjun apríl var Eiríkur Hjálmars- son, sem hafði verið aðstoðarmaður Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra, ráðinn í nýtt starf sem upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavík- ur. Var þá ljóst að Steinunn Valdís yrði ekki borgarstjóri eftir að hafa tapað fyrir Degi B. Eggertssyni í prófkjöri Samfylkingarinnar. Var Eiríkur tekinn fram fyrir fyrrverandi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, Helga Pétursson, sem einnig sóttist eftir stöðunni. Þurfti Alfreð Þorsteinsson, þá stjórnarformaður OR, að láta í minni pok- ann fyrir samfylking- arfólki. Ekki er ljóst hvað verður um Eirík núna þegar Guðlaugur Þór Þórðarsson og Björn Ingi Hrafnsson taka við stjórn Orkuveitunnar. Úr forsætisráðuneytinu Steingrímur S. Ólafsson, sem verið hefur upplýsingafulltrúi í forsætis- ráðuneytinu, fór í frí um það leyti sem Halldór Ásgrímsson hætti sem forsæt- isráðherra. Var ferðalagið skipulagt með löngum fyrirvara. Hins vegar veit Steingrímur ekki hvert framhaldið verður þegar hann snýr aftur til starfa. Líklegt er að Geir H. Haarde forsætis- ráðherra finni annan mann í starfið ef hann ræður einhvern í það á annað borð. Staða Steingríms var ekki til í ráðuneytinu fyrir tíma Halldórs. Í félagsmálaráðuneytið Nýir ráðherrar eru nú í óða önn að ráða pólitíska aðstoðarmenn sína. Eru aðstoðarmenn ráðherra með hæstlaunuðu starfsmönnum ráðuneyta – koma fast á hæla ráðuneytisstjór- anna sjálfra sem hafa í grunnlaun um 655 þúsund krónur. Það er því eftir sæmilegum launum að slægjast auk ýmissa fríðinda sem fylgja störfum í ráðuneytum. Er því haldið fram að Magnús Stefánsson félags- málaráðherra hafi rætt við Guð- mund Pál Jónsson, fyrrverandi bæjarstjóra á Akranesi, um að aðstoða sig í starfi. Er Magnús þá að hugsa nokkra leiki fram í tímann því um leið geti hann styrkt stöðu sína á Vesturlandi fyrir næsta prófkjör. bjorgvin@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.