Fréttablaðið - 20.06.2006, Qupperneq 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 2.54 13.29 24.04
Akureyri 1.25 13.14 1.04
Ásta Sighvats Ólafsdóttir leikkona
leggur mikla áherslu á að verða ekki
leið á því að hreyfa sig. Þess vegna
leggur hún ekki öll eggin sín í sömu
körfuna.
„Ég reyni að hafa þetta alltaf breytilegt svo
ég fái ekki leið á því sem ég er að gera,“
segir Ásta. „Mest geri ég af því að ganga en
ég hleyp stöku sinnum og hjóla.“ Ástu er illa
við að keyra sig út og segir hún að við það að
reyna of mikið á sig hætti hún að nenna að
eltast við líkamsræktina. „Ég á það til að
setja tónlist á heima hjá mér og bara dansa,
það er alveg geggjað,“ segir Ásta.
Línuskautana dregur Ásta fram á góð-
viðrisdögum og að eigin sögn tekur hún líka
mánaðatarnir í sundi og jóga. „Þetta er yfir-
leitt blanda af öllu,“ segir Ásta. „Það er svo
mikilvægt að hafa fjölbreytni því annars
verður þetta bara kvöð og þá er það ekki
þess virði. Þetta er ekki minna fyrir andann,
til að draga fram góða skapið.“
Þegar Ásta var ung æfði hún skíði og dans
en öfugt við dansinn hefur Ásta lítið komið
nálægt skíðum. „Ég hef ekki farið á skíði í
mörg ár. Ég hef alltaf verið á leiðinni en allt-
af misst af snjónum,“ segir Ásta og hlær.
Ásta borðar eins og líkaminn segir henni
að gera. „Sykur fer ekki vel í mig og ekki
heldur mjólk,“ segir Ásta. „Það var reyndar
léttir að komast að því að mjólkin færi illa í
mig. Þar kom skýring á því af hverju þurfti
að neyða mjólkina ofan í mig sem barn.“
Ásta fer einnig reglulega til næringarráð-
gjafa og hómópata og fær hjá þeim góð ráð.
„Svo hef ég verið að vinna á veitingahúsinu
Á næstu grösum og þegar ég er þar borða ég
alltaf mjög vel,“ segir Ásta.
Þessa dagana er Ásta að kenna í Foreldra-
húsi - Vímulausri æsku. Þar sér hún um leik-
listarþátt sjálfstyrkingarnámskeiðs fyrir
unglinga og segir það bæði skemmtilegt og
gefandi starf. tryggvi@frettabladid.is
Fjölbreytnin mikilvæg
Öskjuhlíðin er uppáhaldsgöngustaður Ástu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
20. júní, 171. dagur ársins
2006.
AUÐVELT AÐ LÆRA
RÉTTAN FÓTABURÐ
Línuskautar eiga vaxandi vin-
sældum að fagna. Félagar hjá
línuskautum.is standa fyrir
námskeiðum fyrir þá sem
vilja læra á skautana.
HEILSA 2
Andoxunarefnið Pólýfenól er
náttúrulegt efni sem finnst í
mörgum heilsuvörum.
Efnið getur komið í veg
fyrir hjartasjúkdóma,
fyrirbyggt krabbamein
og slegið verndarhjúpi
um frumur líkamans.
Pólýfenól er efni
sem framleiðendur
fæðubótarefna telja
sem eitt af virku
efnunum í vörum
sínum. Efnið finnst
einnig í töluverðum
mæli í rauðvínum og
koníaki.
Krabbameinsfélagið var á meðal
þeirra sem hlutu styrk úr Styrktar-
sjóði Baugs Group sem úthlutað
var fyrir úr skemmstu. 41,5
milljónum króna var úthlutað úr
sjóðnum að þessu sinni og fékk
Krabbameinsfélagið góðan styrk.
Faraldur geysar nú yfir heims-
byggðina og svo virðist sem
Englendingar fari hvað verst út
úr honum. Faraldurinn lýsir sér
þannig að í hvert skipti sem
þjóðin leikur í heimsmeistara-
keppninni í fótbolta þá virðast
gífurlega margir launþegar
hringja sig inn veika. Faraldurinn
hafði verið í rénun síðustu fjögur
ár en hefur nú gossað upp aftur
og hafa atvinnurekendur tölu-
verðar áhyggjur af honum.
ALLT HITT
[ HEILSA ]
NÝLEGA VAR OPNAÐUR VEFUR UM NÝTT HÁSKÓLASJÚKRAHÚS.
Í tilefni af opnum fundi um undirbúning og stöðu deiliskipulags
fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut, sem haldinn var
síðastliðinn fimmtudag, var opnaður nýr vefur um byggingu
sjúkrahússins. Er honum ætlað að veita upplýsingar um
undirbúning og framvindu verkefnisins. Varpað er ljósi á
starfsemina sem á að fara fram innan spítalans en markmiðið
er að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu sem er studd
öflugu kennslu- og vísindastarfi og stenst samanburð við
önnur háskólasjúkrahús. Spurningunni „Hvers vegna þarf nýtt
sjúkrahús?“ er svarað en einnig er gerð grein fyrir staðsetningu
og skipulagsmálum.
Vefslóðin er http://www.haskolasjukrahus.is.
Nýr vefur um háskólasjúkrahús
Hið nýja sjúkrahús verður glæsilegt. Þetta er ein tillagan að útliti þess.
EINKAÞJÁLFUN Í SUNDI
Góð tilbreyting frá einkaþjálfun í sal.
HEILSA 4