Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 25

Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 20. júní 2006 5 Glitnir hefur heitið því að greiða 3.000 krónur fyrir hvern kílómetra sem starfsmenn fyrirtækisins hlaupa í Reykja- víkurmaraþoni. Eins og flestir hafa orðið varir við er skráning í Reykjavíkurmaraþ- on Glitnis komin á fullt. Hægt er að skrá sig í vegalengdir allt frá þremur kílómetrum og upp í fullt maraþon. Glitnir hvetur starfs- menn sína eindregið til þess að taka þátt í hlaupinu og láta þannig gott af sér leiða. Þeir starfsmenn sem ákveða að taka þátt í hlaupinu velja um leið hvaða góðgerðarfé- lag þeir styrkja því Glitnir hefur heitið því að greiða 3.000 krónur fyrir hvern kílómetra sem starfs- menn hlaupa. Nú þegar hafa á þriðja hundrað starfsmenn Glitnis skráð sig í hlaupið og þar af sex sem hyggjast hlaupa heilt maraþ- on. Bankinn mun því greiða góð- gerðarfélögum 126 þúsund krónur fyrir hvern maraþonhlaupara innan starfsliðsins. Almenningur getur einnig farið inn á heimasíðu hlaupsins og heitið peningum á hlauparana. Sérstaka athygli vekur að Bjarni Ármannson, for- stjóri Glitnis, hyggst hlaupa heilt maraþon þann 19. ágúst og hefur hann ákveðið að ágóðinn af hlaup- um sínum muni renna til verkefn- isins Blátt áfram. Hlaupa fyrir gott málefni Glitnir ætlar að borga starfsmönnum sínum 3.000 krónur fyrir hvern kílómetra sem þeir leggja að baki. Búast má við miklu fjöri á árlegri sumarhátíð CP-samtak- anna. Árleg sumarhátíð CP-samtakanna verður haldin í Reykholti í Bisk- upstungum helgina 30. júní til 2. júlí næstkomandi. CP stendur fyrir Cerebral Palsy, sem hefur verið þýtt heilalömun á íslensku. Dagskrá sumarhátíðarinnar verður fjölbreytt og skemmtileg. Á föstudeginum verður heitt í kol- unum á tjaldstæðinu fyrir þá sem vilja skella kjöti á grillið. Kvöldinu lýkur með fjöldasöng við varðeld. Á laugardeginum er margt í boði. Farið verður í sund í Reykholtslaug, kaffihlaðborð í Aratungu og börnum boðið á hest- bak. Hoppukastalar og leiktæki verða á túninu fyrir framan Ara- tungu. Að loknum kvöldverði verð- ur dansað fram eftir kvöldi. Á sunnudeginum verður komið við í Veiðisafninu á Stokkseyri. Boðið er upp á gistingu á tjald- stæði eða í svefnpokaplássi. Hægt er að skrá sig á vefnum www.cp.is. Sumarhátíð CP-samtaka Börnin geta skemmt sér í hoppukastala. Líttu í lyfjaskápinn öðru hverju og tíndu út öll þau lyf sem eru orðin of gömul og lyf sem ekki er vitað til hvers átti að nota. Losaðu þig þannig við þau að aðrir komist ekki í þau eða skilaðu þeim til lyfsalans. Gott ráð er að halda lyfjabók, skrifa hjá sér handa hverj- um lyfin er keypt og til hvaða nota. Aldrei má gefa lyf, feng- in út á lyfseðil, öðrum en þau voru ætluð. ráð } Hentu gömlum lyfjum LYF SKAL ÆTÍÐ GEYMA ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL Hjálpartækjamiðstöðin eykur þjónustu sína HJÁLPARTÆKJAMIÐSTÖÐ TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS HEFUR FENGIÐ NÝJA AÐSTÖÐU Á KRISTNESSPÍTALA Í EYJAFIRÐI. NÝJA AÐSTAÐAN Á AÐ KYNNA NOTEND- UM TÆKIN OG GEFA ÞEIM KOST Á AÐ PRÓFA ÞAU. Um er að ræða tilraunaverkefni milli TR og Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar um aðstöðu fyrir hjálpartækjamið- stöð. Vonast er til að þessi aukna þjónusta verði til hagsbóta fyrir bæði notendur og fagfólk og því eru þetta ánægjuleg tímamót fyrir hjálpar- tækjamiðstöð TR. Markmiðið með þessu tilraunaverkefni er að búa til sýningar- og prófunaraðstöðu með hjálpartæki, veita ráðgöf og meta þörf á uppbyggingu hjálpartækja- þjónustu á Akureyri. Það verða sýnishorn af ýmsum hjálpartækjum á Kristnesi og hægt er að panta sér tíma, fá heimilisat- huganir eða mæta á opið hús einu sinni í viku. Samkvæmt samningi um verkefnið á að meta framhald þjónustunnar fyrir 1. mars 2007. Heimildir fengnar af heimasíðu TR. Hjálpatækjamiðstöð TR eykur umsvif sín.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.