Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2006, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 20.06.2006, Qupperneq 47
Nýjustu fregnir herma að söngkonan Britney Spears hafi áhuga á því að eignast barn sitt í Namibíu. Hug- myndin er ekki ýkja frum- leg þar sem leikkonan Ang- elia Jolie fór nýlega sérstaklega til landsins til að fæða dóttur sína og Brads Pitt. Yfirvöld í land- inu eru að sjálfsögðu ánægð með þessar fréttir en segja þó að ekkert sé ákveðið í þessum efnum. Britney væntir nú annars barns síns en faðirinn er eigin- maðurinn Kevin Federline. Líklegt þykir að Britney horfi til Namibíu sem hugs- anlegs fæðingarstaðar þar sem hún óskar eftir friði frá ágengum ljósmyndur- um en álagið hefur verið mikið á þeim hjónum und- anfarið og ljósmyndarar hafa elt þau hvert fótmál. ■ [UMFJÖLLUN] TÓNLIST Það hefur aldeilis lifnað yfir Neil Young að komast svona nálægt dauðanum á síðasta ári. Nú nýtir maðurinn hverja mínútu í að sinna tónlistarköllun sinni og pungar núna út annarri plötu sinni á sex mánuðum. Hann skiptir algjörlega um gír og er öll platan gagnrýni hans á utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem og á George W. Bush Banda- ríkjaforseta. Loksins, hugsar maður eiginlega, öskrar einhver skynsöm rödd friðarópi innan úr byssuhlaupi þessa gráðuga lands. Ekki að mér finnist við Íslending- ar eitthvað skárri, við megum aldrei gleyma því að þeir sem hafa þegar misst líf sitt í innrás Banda- ríkjanna á Írak og Afganistan hafa einnig gert það í okkar nafni. Sjaldan hefur jafn þung ákvörðun verið tekin fyrir þjóðina af jafn fáum mönnum. Vonum bara að Halldór og Davíð geti sofið á nótt- unni. Það er alveg frábært að loksins skuli koma heil plata gegn innrás- inni á Írak, en það hlýtur að teljast frekar súrt samt að það skuli vera gamall hippi sem lætur verða af því, en ekki einhver ungur og efni- legur tónlistarmaður sem hefur meiri tengingu við yngri kynslóðir. Já, tímarnir hafa svo sannarlega breyst frá tímum Víetnam-stríðs- ins, þar sem listamenn voru varla teknir alvarlega nema þeir væru harðir andstæðingar stríðsins. Í dag þorir engin popp- eða rokk- stjarna að taka afstöðu gegn stríði opinberlega með verkum sínum. Eða þá bara að þeim sé alveg skít- sama. Eins lengi og menn fá sinn skammt af kynlífi, kampavíni og kavíar. Neil Young er skemmtilega hrár hér. Mun meira svo en á síð- ustu plötu, Praire Wind. Hljóm- gæðin hér eru jafn léleg og svo oft áður og greinilegt að hér hefur bara verið stillt upp sæmilegum græjum, talið í og spilað. Hljóm- gæði og vandaður flutningur er greinilega eitthvað sem skiptir Neil ekki höfuðmáli. Frekar legg- ur hann allan metnað sinn í laga- og textasmíðar. Það er líka langt síðan hann hefur verið svona áhrifamikill á því sviði. Beittir og grímulausir textar á borð við Let´s Impeach The President eiga eftir að teljast til klassískra verka hans í framtíðinni. Þar bætir hann einn- ig við upptökum úr ræðum Bush og bendir þannig á áhrifamikinn hátt á gífurlegt ósamræmi í mál- flutningi hans í gegnum tíðina. Í sama lagi spyr hann hlustendur hvort viðbrögð ríkisstjórnarinnar hefðu verið önnur ef al-Kaída hefði sprengt upp stíflurnar sem brustu í hvirfilbylnum sem olli flóðinu á New Orleans. Honum er greinilega mikið niðri fyrir og er augljóslega stað- ráðinn í því að nýta þann tíma sem hann á eftir í það að reyna koma friðsælum boðskapi sínum á fram- færi. Ekki skemmir að lögin eru ekkert síðri en hans þekktustu verk. Okkur vantar fleira svona fólk í tónlist í dag. Frábær plata frá Neil Young, hans áhrifamesta plata síðan Tonight´s the Night kom út árið 1975. Birgir Örn Steinarsson Lengi lifi Neil Young! NEIL YOUNG: LIVING WITH WAR Niðurstaða: Neil Young skilar af sér sinni bestu plötu í 30 ár. Gamli hippinn þorir að segja hug sinn og fyrir vikið fáum við plötu sem hefur áhrif og skiptir máli. Living With War á án efa eftir að verða talin til hans mikilvæg- ustu verka. Ron Wood, gítarleikari The Rolling Stones, hefur skráð sig í áfengis- meðferð í London. Þrátt fyrir það mun hann spila með hljómsveit sinni í væntanlegri tónleikaferð um Evrópu sem hefst 11. júlí í Róm. Wood, sem er 59 ára, hefur lengi átt við áfengisvandamál að stríða. Síðast fór hann í meðferð fyrir sex árum. Að sögn upplýsingafulltrúa hans þurfti hann nauðsynlega á hvíld að halda og ákva ð því að fara í meðferð. Ekki er langt síðan Keith Richards, hinn gítarleikari Stones, gekkst undir heilaskurðaðgerð eftir að hafa fallið úr pálmatré á Fiji-eyjum. Þar var hann einmitt í fríi með Woods og eiginkonum þeirra beggja. Í kjölfarið var tón- leikaferð Stones um Evrópu frestað en hún átti upphaflega að hefjast í Barcelona þann 27. maí. ■ Ron Wood í meðferð ROLLING STONES Ron Wood, til vinstri, hefur skráð sig í áfengismeðferð í London. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Britney með áhuga á Namibíu BRITNEY SPEARS Krabbameins- félagsins Sumarhappdrætti Útdráttur 17. júní 2006 Bifrei› e›a grei›sla upp í íbú›, 1.000.000 kr. Úttekt hjá fer›askrifstofu e›a verslun, 100.000 kr. Vinningar B ir t án á b yr g ð ar Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga 28. júní nk. 456 461 515 1930 2647 2950 2970 3109 4038 4290 5121 5471 5660 6477 8382 8490 9525 9849 11072 11512 11640 12187 12857 13441 15052 15133 15571 15818 18207 18548 20584 21031 23022 23444 23917 24796 24954 25086 25427 25637 26822 28124 28642 29721 30963 31271 32228 32390 32426 34256 35311 35615 35922 36828 37150 37704 38514 38694 39121 40652 42826 43750 43859 44507 44695 46778 47335 48876 50806 50999 53643 54019 55756 55951 57806 58808 60800 62594 62698 62780 62811 63011 64467 66087 66954 67033 67642 67870 67963 68475 69729 70597 71556 72023 72637 72984 74732 75067 75074 75605 75634 75658 76040 76839 78380 78827 78983 79001 79878 80157 80229 80368 82394 84201 84915 85627 86283 88466 89594 90385 91433 91609 93156 96424 96971 97683 97822 97832 99321 100606 100625 101012 101694 101842 101990 102494 102787 104127 104307 105492 106165 107040 108044 110758 111038 113447 113910 114851 115359 115612 115960 117371 118390 118682 118924 119132 119215 119295 119305 120167 121571 122439 122603 123255 123971 124861 125303 126210 126420 126676 Handhafar vinningsmi›a framvísi fleim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Krabbameinsfélagi› flakkar landsmönnum veittan stu›ning www.krabb.is Toyota RAV4 4WD GX sjálfskiptur, 3.290.000 kr. 57048 56251

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.