Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 49
ÞRIÐJUDAGUR 20. júní 2006 33 VIGNIR GUÐJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HM 2006 Í ÞÝSKALANDI Tvífararnir Sven-Göran Eriksson og Mr. Burns Ég horfði á æfingu með enska lands- liðinu í gær og fór á blaðamannafund með Sven-Göran Eriksson í kjölfarið. Sá sænski hafði sig nú ekki mikið frammi á æfingunni og hafði heldur ekki mikið að segja við okkur blaðamenn. Það sást samt greinilega á glottinu á Eriksson að honum fannst gaman að geta svarað spurningum frá sænskum blaðamönn- um á sínu móðurmáli án þess að þeir ensku, sem hann augljóslega hatar, skildu nokkur orð. Ég held að Eriksson sé hrútleiðinlegur. Hann virkar allavega þannig á mann í persónu. Svo er hann miklu minni en hann sýnist í sjónvarpinu, í raun algjör horrengla, hokinn og nördalegur. Reynd- ar fannst mér eins og ég væri að horfa á Mr. Burns úr Simpsons þegar ég horfði og hlustaði á hann svara spurningunum. Svenni og Mr. Burns eru keimlíkir á allan hátt í útliti og fasi og þegar grannt er hlustað má heyra að rödd þeirra og talmáti er ekki svo ólíkur. En annars hef ég ekkert á móti Svenna. Það er greinilegt að Steve McLaren og Sammy Lee eru aðalmennirnir hjá enska liðinu. Sammy stjórnaði æfingunni frá A-Ö og McLaren var eins og hershöfðinginn með valdið, skipaði mönnum fyrir og skammaði þegar hann taldi þörf á. Á meðan var Eriksson bara eins og hver annar áhorfandi, hélt sér að mestu til hlés og virti fyrir sér leikvanginn í Köln, sem vissulega er stórbrotið mannvirki. Eriksson virtist leiðast og ég sver að í eitt augnablik sá ég hann bora í nefið á sér. Stórum hluta æfingunnar eyddi hann síðan í að spjalla við Gerard Houllier á hliðarlín- unni, sem einhverra hluta vegna var á staðnum. Vonandi var hann ekki að fá ráð frá franska hryðjuverkamanninum fyrir leikinn í kvöld. Á blaðamannafundinum sat ég við hliðina á Chris Skudder frá Sky News fréttastöðinni. Það var svolítið skrítið að standa við hliðina á þessum manni sem hefur fært manni fréttir úr enska bolt- anum í gegnum sjónvarpið í öll þessi ár. Mátti til með að spyrja hann um sölu Eiðs Smára frá Chelsea til Barcelona. Skudder var á því að það væru frábær vistaskipti fyrir hann, spænski boltinn myndi ábyggilega henta honum vel. Þá hafði hann það á orði að fyrra bragði að Eiður Smári væri örugglega í byrjunarliði enska liðsins í dag, væri hann þaðan. Hann væri nefnilega hinn fullkomni afleysingamaður fyrir Rooney, með ekki svo ólíkan leikstíl en samt ekki í sama klassa og Rooney. Þó væri Eiður Smári vissulega nægilega góður til að búa til færin fyrir enska liðið á HM, því fyrir utan Rooney virðist enginn í enska hópnum fær um það. FÓTBOLTI Gary Neville gat ekki verið með á æfingu enska lands- liðsins í gær vegna meiðsla og hann verður því ekki með liðinu gegn Svíþjóð í kvöld í lokaleik rið- ilsins. England hefur þegar tryggt sér áfram í keppninni og ef liðið tapar ekki leiknum í kvöld vinnur það riðilinn. Jamie Carragher verður að öllum líkindum í stöðu hægri bakvarðar í kvöld. Annar leikmaður Manchester United, Wayne Rooney, er hins- vegar klár í slaginn og verður í byrjunarliðinu í kvöld. England og Svíþjóð voru saman í riðli á heims- meistaramótinu fyrir fjórum árum en þá endaði viðureign þeirra með 1-1 jafntefli. - egm Enska landsliðið: Gary Neville ekki með í dag ROONEY OG NEVILLE Annar með en hinn meiddur. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Það var óvenjulegt um að litast á mánudagsmorgninum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. Hundruð þúsunda voru saman- komin í miðbænum og skemmtu sér konunglega eftir að þeirra lið gerði 1-1 jafntefli gegn Frakklandi á heimsmeistaramótinu. Leikur- inn fór fram klukkan fjögur að nóttu til að staðartíma og var allt orðið fullt af fólki í bænum átta klukkutímum fyrir leikinn. Til að skemmta mannfjöldan- um fyrir leikinn var fjöldi útitón- leika um alla borgina og þegar Park Ji-sung skoraði jöfnunar- markið ætlaði allt um koll að keyra og flugeldum var skotið upp. Lög- reglan sá síðan um að reka fólks- fjöldann heim á leið til að hægt væri að þrífa götur Seúl. Suður- Kórea er með fjögur stig í G-riðli keppninnar. - egm Mikil gleði í Suður-Kóreu: Morgunveisla á mánudegi FÓTBOLTI Einn stuðningsmaður svissneska landsliðsins ákvað að nota tækifærið í gær og reyna að vinna fyrrverandi unnustu sína aftur á sitt band. Hann gerði flennistóran borða sem hann setti upp við stúkuna fyrir leik Sviss gegn Tógó. Á þeim borða stóð: „Antonia, þú ert minn heimsmeist- aratitill. Leyfðu mér að vinna þig aftur!“ Ekki hafa borist fréttir af því hvernig þessi afsökunarbeiðni hans virkaði á hana Antoniu en vonandi er komin sátt á milli þeirra tveggja eftir þetta. - egm Athyglisverð uppákoma: Leyfðu mér að vinna þig aftur AFSÖKUNARBEIÐNI Stuðningsmaður Sviss fór óvenjulegar leiðir. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.