Fréttablaðið - 20.06.2006, Qupperneq 50
20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR34
MidnightSun Open golfmótið verður haldið á Selsvelli
við Flúðir, föstudagskvöldið 23. júní n.k.
Teiggjafir. Ræst verður af öllum teigum kl. 20.00.
Kvöldverður og verðlaunaafhending í mótslok.
Glæsilegur Altamar (Sundance Spas) nuddpottur frá Tengi ehf. með
hljómflutningstækjum í verðlaun fyrir þann kylfing sem fyrstur fer holu
í höggi á 1. braut.
Skráning og nánari upplýsingar á www.golf.is
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Vélorf
Alvöru orf
á góðu verði
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 12.06.2006
2,8%
FÓTBOLTI Deila Sinisa Kekic við
Grindavík er ekki á enda og hefur
tekið nýja og óvænta stefnu. Hinn
öflugi formaður knattspyrnudeild-
arinnar, Jónas Þórhallsson, hefur
stigið fram fyrir skjöldu og biðlað
til Kekic um að biðjast afsökunar
á hegðun sinni svo hægt verði að
grafa málið og horfa fram á veg-
inn. Ef Kekic gerir það ekki má
allt eins búast við því að hann
þurfi að fylgjast með mótinu úr
stúkunni því Grindavík er búið að
skella fimm milljóna króna verð-
miða á hann. Þá upphæð mun ekk-
ert félag á Íslandi greiða fyrir
leikmann sem er að verða 37 ára,
reykir eins og strompur og er þar
utan án samnings eftir tímabilið.
„Ég biðla bara til Kela að hann
biðjist afsökunar á sínum hlut í
málinu. Það væri stórmennsku-
legt af honum og hann yrði maður
að meiri á eftir. Ef hann gerir það
munum við jarða málið og horfa
fram á veginn,“ sagði Jónas sem
er svekktur yfir því hvernig málið
hefur þróast. „Það hefur enginn
gert neitt á hans hlut. Hann ætti
að gefa Sigurði meira tíma í stað
þess að svekkja sig strax. Það er
enginn annar í leikmannahópi
félagsins sem er ósáttur við starfs-
aðferðir Sigurðar. Það er gleði og
gaman hjá strákunum. Mig grunar
að þetta hafi eitthvað með það að
gera að Sigurður tók fyrirliða-
bandið af Kela á sínum tíma. Ég
ætla ekki að fullyrða það en mig
grunar það.“
Verðmiðinn á Kekic hefur vakið
mikla athygli en Jónas staðfestir
að félagið sé vissulega að biðja um
5 milljónir króna fyrir Kekic.
Grindavík er búið að fá allt upp í
þriggja milljóna króna tilboð en
því var hafnað.
„Peningar eru afstæðir. Þetta
er besti leikmaður landsins og
hann er fyllilega hverrar krónu
virði enda stórkostlegur leikmað-
ur. Það vita öll lið hvað þau fá með
þessum leikmanni. Það er mikill
áhugi á honum og síminn stoppaði
ekki hjá mér síðastliðinn föstu-
dag. Menn fóru allt upp í þrjár
milljónir. Við settum fimm millj-
ónir á hann og við munum skoða
málið frekar ef Kekic kemur ekki
til baka. Við viljum fá hann til
baka og ég trúi því að hann komi
aftur. Hann hefur enga ástæðu til
að yfirgefa félagið og það yrði
leiðinlegur endir á stórkostlegum
ferli leikmannsins í Grindavík. Ég
vona fyrir hönd allra að málið
leysist,“ sagði Jónas Þórhallsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur. henry@frettabladid.is
Biðlar til Sinisa Kekic
Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, hefur ekki gefið
upp alla von um að Sinisa Kekic spili áfram með liðinu. Ef Kekic stígi fram og
biðjist afsökunar muni Grindvíkingar gleyma málinu.
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA Sinisa Kekic og Jónas Þórhallsson skrifa hér undir samning fyrir
nokkrum mánuðum síðan en þá lék allt í lyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
G-riðill:
TÓGÓ-SVISS 0-2
0-1 Sebastian Frei(16.), 0-2 Tranquilo Barnetta
(88.).
SÁDI ARABÍA-ÚKRAÍNA 0-4
0-1 Andrej Rusol (4.), 0-2 Sergei Rebrov (37.), 0-3
Andriy Shevchenko (47.), 0-4 Maxim Kalinishenko
(84.)
STAÐAN
SVISS 2 1 1 0 2-0 4
SUÐUR KÓREA 2 1 1 0 3-2 4
FRAKKLAND 2 0 2 0 1-1 2
TÓGÓ 2 0 0 2 1-4 0
H-riðill:
SPÁNN-TÚNIS 3-1
0-1 Mhnari Jaohour (8.), 1-1 Raul (71.), 2-1 Fern-
ando Torres (77.), 1-3 Fernando Torres, víti (90.).
STAÐAN
SPÁNN 2 2 0 0 7-1 6
ÚKRAÍNA 2 1 0 1 4-4 3
TÚNIS 2 0 1 1 3-5 1
SÁDI ARABÍA 2 0 1 1 2-6 1
LEIKIR MORGUNDAGSINS:
A-riðill:
EKVADOR-ÞÝSKALAND
KOSTA RÍKA-PÓLLAND
STAÐAN
EKVADOR 2 2 0 0 5-0 6
ÞÝSKALAND 2 2 0 0 5-2 6
PÓLLAND 2 0 0 2 0-3 0
KOSTA RÍKA 2 0 0 2 2-7 0
B-riðill:
PARAGVÆ-TRINIDAD OG TÓBAGÓ
ENGLAND-SVÍÞJÓÐ
STAÐAN
ENGLAND 2 2 0 0 3-0 6
SVÍÞJÓÐ 2 1 1 0 1-0 4
T & T 2 0 1 1 0-2 1
PARAGVÆ 2 0 0 2 0-2 0
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Úkraínumenn áttu ekki í
erfiðleikum með slappt lið Sádi-
Arabíu í gær og unnu öruggan 4-0
sigur. Það tók þá ekki langan tíma
að ná forystunni en þá skoraði And-
riy Rusol eftir hornspyrnu sem
markvörðurinn Mabrouk Zaid gaf.
Zaid gerði síðan önnur mistök
þegar hann rann þegar Serhiy
Rebrov átti skot af löngu færi og
inn fór boltinn.
Maxim Kainichenko lagði upp
þriðja markið fyrir Andriy Shev-
chenko og skoraði síðan sjálfur það
fjórða. Vonir Úkraínu um að kom-
ast áfram hafa því vaknað á ný eftir
að liðið tapaði stórt fyrir Spánverj-
um í sínum fyrsta leik.
„Þetta var nokkurs konar ösku-
buskuævintýri nema graskerið
breyttist í fallegan þjálfara og
dýrin í stórkostlega hesta. Við viss-
um að við þurftum á sigri að halda
og náðum því. Síðasta umferðin
verður geysispennandi en við
höfum mikið sjálfstraust og trúum
því sem við erum að gera. Við
munum halda áfram að spila okkar
leik og vonandi skilar það okkur
hagstæðum úrslitum,“ sagði Oleg
Blokhin, þjálfari úkraínska liðsins,
hæstánægður eftir leikinn. - egm
H-riðillinn í Þýskalandi:
Stórsigur hjá Úkraína
gegn lánlausum Aröbum
INNLIFUN Shevchenko faðmar hér aðstoðarmann Blokhins þjálfara. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI „Við vorum ansi óheppnir
með dómgæsluna. Allir sem sáu
leikinn vita að við áttum að fá
víti,“ sagði Otto Pfister, þjálfari
Tógó, eftir að liðið tapaði 0-2 fyrir
Sviss í G-riðli heimsmeistara-
keppninnar. „Sigur Sviss var
vissulega sanngjarn en ég hef trú
á því að mínir menn hafi gert sitt
besta. Það var þó ekki nóg og við
getum ekki verið ánægðir með
mótið af okkar hálfu þó að leik-
menn hafi lært margt.“
Alexander Frei kom Sviss yfir
eftir stundarfjórðung en svo vildu
leikmenn Tógó fá dæmda víta-
spyrnu þegar brotið var á Emm-
anuel Adebayor, leikmanni Arsen-
al, innan teigs. Ekkert var dæmt
og var það Tranquillo Barnetta
sem innsiglaði sigur Sviss.
Sviss og Suður-Kórea mætast í
úrslitaleik um efsta sætið síðar í
vikunni. Frakkar eru í þriðja sæti
með tvö og verða að sigra Tógó til
að komast áfram en ljóst er að
Tógó á ekki möguleika á að komast
áfram í keppninni. - egm
Sviss í efsta sæti G-riðils:
HM draumur
Tógó er búinn
SVEKKTUR Emanuel Adebayor vildi fá víta-
spyrnu í leiknum. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Það kom flestum í opna
skjöldu þegar Túnis komst yfir
gegn Spáni á áttundu mínútu en
það var Joahar Mnari sem skoraði
eftir góðan undirbúning Ziads Jaz-
iri. Iker Casillas varði fyrra skot
Mnari sem náði síðan frákastinu og
skoraði. Ljóst var að breytinga var
þörf hjá spænska liðinu og komu
þeir Raul og Cesc Fabregas inn á
sem varamenn í hálfleik. Það skil-
aði sér í 3-1 sigri en Fernando Tor-
res, leikmaður Atletico Madrid,
skoraði tvö mörk Spánverja og
Raul eitt.
Biðin eftir jöfnunarmarkinu var
löng en það kom ekki fyrr en á 71.
mínútu þegar varamaðurinn Raul
skoraði en þetta var hans fyrsta
mark síðan 19. október þegar hann
skoraði í Meistaradeild Evrópu
gegn Rosenborg. Þetta var það sem
Spánn þurfti á að halda og liðið
komst loks í rétta gírinn. Fimm
mínútum síðar hafði það náð for-
ystunni þegar Torres lék á mark-
vörð Túnisa eftir góða sendingu
Cesc Fabregas.
Síðasta markið kom síðan undir
blálokin en þá skoraði Torres úr
vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálf-
ur en dómurinn var mjög umdeild-
ur. Hann var besti maður vallarins
ásamt hinum unga Fabregas en
segja má að innkoma hans hafi
breytt leiknum fyrir Spánverja
sem hafa nú tryggt sér sigur í
riðlinum þrátt fyrir að eiga einn
leik eftir. Sá leikur er gegn Sádi-
Arabíu. Á lokakaflanum náði
spænska liðið að sýna sitt rétta and-
lit en leikmenn Túnis eru vafalítið
svekktir yfir því að ná ekki að
minnsta kosti stigi úr leiknum. - egm
Spánn vann Túnis 3-1 í H-riðli í gær og tryggði sér þar með sæti áfram:
Torres skoraði tvö mörk fyrir Spánverja
SKORAÐI TVÖ Fernando Torres skoraði tvö
mörk fyrir Spán þegar liðið vann 3-1 sigur
gegn Túnis.NORDICPHOTOS/AFP