Fréttablaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 29
ATVINNA
SUNNUDAGUR 9. júlí 2006 9
Krónos ehf. var stofnað 2001 og hefur vaxið
jafnt og þétt síðan. Nú eru 10 starfsmenn hjá
fyrirtækinu sem sinna verkefnum fyrir tæplega
200 viðskiptavini. Félagið flytur í glæsilegt
húsnæði við Laugaveg 170 í júlí og verður þar í
nánu samstarfi við lögmenn og innheimtufélag.
Umsjón með ráðningum hefur Guðmunda
Ólafsdóttir (gudmunda@kronos.is) hjá
Krónos ehf. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja
um starf með því að senda umsókn á netfangið
gudmunda@kronos.is eða í pósti á Laugaveg 26,
101 Reykjavík.
Spennandi störf
hjá vaxandi fyrirtæki
������������������������������������������������������
���������������������������������������������������������
Við hjá Krónos leitum að metnaðarfullum og
kraftmiklum einstaklingum í nokkur störf hjá
félaginu. Við gerum ekki kröfu um sérstaka
menntun í eftirtalin störf, heldur skipta
reynsla af bókhaldi og skipulögð vinnubrögð
meginmáli. Jafnframt er kostur að hafa lokið
námsgráðunni „Viðurkenndur bókari“.
Verkefnastjórar
Starfið: Verkefnastjórar hafa umsjón með hópi bókara og verkefnum þeirra.
Verkefnastjórar hafa, í samráði við framkvæmdastjóra, umsjón með gerð
verkáætlana, milliuppgjöra, ársuppgjöra og skattframtala auk bókunar fjárhags,
viðskiptamanna og lánadrottna.
Bókarar
Starfið: Bókarar starfa sem þjónustufulltrúar fyrir hóp viðskiptavina Krónos ehf.
Í starfinu felst bókun fjárhags, viðskiptamanna og lánadrottna.
Launafulltrúi
Starfið: Þetta er nýtt starf þar sem viðkomandi hefur umsjón með uppbyggingu
á launasviði Krónos ehf. Hlutverk launasviðs er að hafa umsjón með launaút-
reikningum fyrir viðskiptavini Krónos ehf. ásamt almennri ráðgjöf
Innheimta / gjaldkeri
Starfið: Þetta er nýtt starf þar sem viðkomandi hefur umsjón með uppbyggingu á
innheimtu- og greiðslusviði. Hlutverk innheimtu- og greiðslusviðs er milliinnheimta
og greiðsla á hverskonar kröfum. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af
innheimtustörfum, starfi á lögmannsstofu / innheimtukerfi lögmanna IL+.
Móttökuritarar / símsvörun
Starfið: Móttaka viðskiptavina, símsvörun fyrir Krónos ehf. og samstarfsfyrirtæki,
umsjón með fundarherbergjum og ýmis tilfallandi skrifstofustörf.
Krónos ehf. - Laugavegi 26 - 101 Reykjavík
Sími 587 3200 - kronos@kronos.is - www.kronos.is
Au Pair óskast til Bretlands.
5. manna fjölskylda, sem býr í bæ í um klukkustundar aksturs-
fjarlægð frá London, óskar eftir því að ráða au-pair stúlku til
eins árs. Um er að ræða barnapössun og létt heimilsstörf.
Á heimilinu eru þrjú börn þ.a. tvö á skólaaldri. Séraðstaða er í
boði, aðgengi að bíl og möguleiki á að sækja ýmis námskeið.
Skilyrði er að umsækjendur geti hafi ð störf fyrir sumarlok, hafi
bílpróf og sé sjálfstæð, ábyrg og barngóð.
Umsóknir sendist á box@frettabladid.is: merktar
AUPAIR ÍSLAND/UK-SUMAR06.
MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRAR
ÓSKAST
Viltu koma í skemmtilega og lifandi vinnu hjá stærsta
bílaflutningafyrirtæki landsins? Okkur vantar menn
núna! Hafðu samband við Bjarna í síma: 6968258
VAKA EHF • Eldshöfða 6 • S: 5676700
AÐSTOÐARLEIKSKÓLASTJÓRI ÆGISBORG
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig
skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Leikskólinn Ægisborg, Ægisíðu 104, er fjögurra deilda skóli þar
sem dvelja 66 börn samtímis. Markmið leikskólans er að nota
nánasta umhverfi barnanna til að virkja sköpunarafl og alhliða
tjáningu þeirra.
Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun áskilin
Hæfni og reynsla í stjórnun æskileg
Sjálfstæð vinnubrögð
Færni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Umsóknarfrestur er framlengdur til 31. júlí n.k. Umsóknum fylgi yf-
irlit yfir nám og störf. Umsóknir skulu berast til Menntasviðs Reykja-
víkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík.
Upplýsingar veitir Kristjana Thorarensen leikskólastjóri í síma 551-
4810.
Einnig veita mannauðsráðgjafar á Starfsmannaþjónustu Mennta-
sviðs upplýsingar í síma 411-7000.
Nánari upplýsingar um laus störf á Menntasviði er að finna á
www.menntasvid.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI