Fréttablaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 51
SUNNUDAGUR 9. júlí 2006 15
FASTEIGNIR
Eignarlóðir til sölu
við Þingvallavatn!
Hóll fasteignasala kynnir:
Höfum í einkasölu 10 eignarlóðir fyrir frístundahús á frábærum stað við
Hestvík við Þingvallavatn. Skipulag hefur verið samþykkt og eru lóðirnar
byggingarhæfar strax. Lóðirnar eru staðsettar í stórkostlegu landslagi
með miklum karakter.
Heimilt er að byggja allt að 150 fm hús á lóð auk 25 fm gestahúss.
Óviðjafnanlegt útsýni er yfir Þingvallavatn.
Öllum lóðunum fylgir réttur til að geyma báta í fjörunni við Hestvík.
tákn um traust
Margrét Sölvadóttir hjá Fasteignasölunni Hóli sýnir
öllum áhugasömum lóðirnar í dag, sunnudag 9. júlí
frá kl. 14-17. Þegar þú ert kominn á staðinn hafðu
þá samband við Margréti í gsm 693-4490.
Allir velkomnir !
Lóðir við Illagil
Alls er um að ræða 10 lóðir við Illagil.
Þær standa hátt og hafa mikið útsýni. Eru
frá 6000 til 7900 fm.
Lóðirnar eru afmarkaðar og merktar með
númerum svo auðvelt er að sjá hverja lóð
fyrir sig.
Sýningahelgar eru:
Sunnudagur 9 og 16 júlí 2006
frá kl 14 til 17.
Margrét Sölvadóttir hjá Fasteignasölunni
Hóli sýnir lóðirnar. Þegar þú ert kominn á
staðinn hafðu þá samband við Margréti í
gsm 693-4490.
Allir velkomnir !
Vegalengd um 35 km frá
Reykjavík (Nesjavallaleið)
Ef ekið er frá Reykjavík eftir Suðurlands-
vegi, er beygt til vinstri inn á Nesjavallaveg
við Geitháls (vegskilti að Hafravatni)
og síðar ekið meðfram hitaveituröri yfir
heiðina að vegamótum Grafningsvegar.
Þar er aftur beygt til vinstri og ekið eftir
Grafningsvegi í áttina að Heiðarbæ, alls um
3 km að afleggjara til hægri að Illagili.
Vegalengd um 40 km frá
Reykjavík
Ef ekið er frá Reykjavík eftir Vesturlands-
vegi er ekið í átt til Þingvalla yfir Mos-
fellsheiði þar til komið er að Grafnings-
vegi. Þar er beygt til hægri og ekið í áttina
að Nesjum og Nesjavöllum, alls tæpa 7
km þar til komið er að afleggjara til vinstri
að Illagili.
Nánari upplýsingar um svæðið, m.a. svör við algengum spurningum, skilyrði um sölufyrirkomulag, sýnishorn af
kaupsamningnum og fleiri myndir af svæðinu er að finna á heimasíðu Hóls; holl.is. Kíktu við á www.holl.is