Fréttablaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 61
staðinn. „Það geta allir fengið
pláss í tónlistariðnaðinum, sama
hversu glataðir þeir eru. Sjáðu til
dæmis útvarpsstöðina, FM 957.
Tónlistin sem þar er spiluð er
algjör viðbjóður.“ Aðspurður um
það hvort hann þurfi einstaka
sinnum að sinna dyntum viðskipta-
vina sinna, segir hann sögu af
bandi sem hann „umbaði“ sam-
fleytt í sjö ár. „Ég man alltaf eftir
því að einn meðlimur þeirrar
sveitar vildi alltaf láta slétta á sér
hárið. Þá vildu meðlimir hljóm-
sveitarinnar Mínuss alltaf fá
bleikan klósettpappír og plastpoka
á alla túra sem þeir fóru á“.
Sjálfur segist hann helst til sér-
vitur þegar kemur að samferða-
mönnum í flugi. „Já, ég fer ekki í
flug með poppstjörnum. Hver man
ekki eftir dauða umboðsmannsins
hans Buddy Holly.“
Kröfðust sjávarútsýnis
að nóttu til
Páll Eyjólfsson, eða Palli Papi eins
og hann er kallaður af þeim sem
til þekkja í bransanum, starfar
ekki aðeins fyrir hljómsveitir
heldur er í hljómsveit sjálfur. „Ég
er í hljómsveitinni Paparnir, en sá
þann tækifærisglugga opnast
fyrir um tíu árum að taka að mér
umboðsvinnu fyrir sveitina. Það
var þó ekki fyrr en árið 1999 sem
ég hellti mér út í umboðsstarfið og
hef sinnt því síðan.“ Páll er
umboðsmaður rokkkóngsins
Bubba Morthens en samstarf
þeirra hefur varað á fjórða ár. „Ég
rek einnig fyrirtækið Prime ehf.
sem hefur fjölda listamanna á
sínum snærum og gengur ótrú-
lega vel.“
Páll undirstrikar að starfið er
mjög skemmtilegt og gefandi
„Maður er með ákaflega lifandi
fólk í kringum sig og litríkt. Eins
og með alla vinnu þá er galdurinn
aðallega fólginn í að vera í vinn-
unni. Sú geta er oft ótrúlega van-
metin“, segir Páll kíminn. Það sem
gerir starfið spennandi að sögn
Páls er hversu mikil samskipti það
býður upp á við annað fólk. „Mín
vinna felst aðallega í því að kom-
ast að sameiginlegri niðurstöðu
með fólki og oft getur það verið
ansi gaman.“
Aðspurður um hvort hann þurfi
að hlúa að sérlyndi kúnnanna svar-
ar hann hikandi. „Hmm, nei, ef
frá er talið símtal sem ég fékk um
miðja nótt fyrir allmörgum árum.
Þá hafði skrifstofan sent lífsglaða
hljómsveit norður yfir heiðar. Eitt-
hvað voru menn illa fyrir kallaðir
eftir mikla skemmtan eða vel fyrir
kallaðir, allt eftir því hvernig á
það er litið. Að minnsta kosti þá
var röddin í tóni viðmælanda míns
mjög alvarlegur og mér tjáð að
útsýnið af hótelherbergunum væri
ekki það sem menn hefðu búist
við. Það er að segja það vantaði
sjávarútsýni. Hvað menn ætluðu
sér með sjávarútsýni um miðja
nótt í vetrarmyrkrinu, hef ég
engar skýringar á.“
Páll vill þó ekki kenna sig við
neina duttlunga, segist altént ekki
hafa rekist á neina slíka í sínu fari
ennþá.“
GRÍMUR ATLASON „Fleiri kollegar mínir ættu að skella sér í Kennaraháskólann og læra
þroskaþjálfun.“ FRETTABLAÐIÐPJETUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SUNNUDAGUR 9. júlí 2006 21
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
REYKJAVÍK
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
Icelandair hefur verið,
er og verður dyggur
stuðningsaðili íslenska
landsliðsins í fótbolta í
harðri keppni á meðal
stórþjóða heimsins.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
3
2
4
6
0
6
/2
0
0
6
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Postulín, glös og hnífapör
– fyrir brúðhjón og betri veitingahús
R
V
62
10
Opn
una
rtím
i
í ve
rslu
n RV
:
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:0
0
Laug
arda
ga f
rá
kl. 1
0:00
til 1
4:00