Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 2

Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 2
2 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR INDLAND, AP Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háanna- tíma í Mumbai (Bombay) á Ind- landi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestun- um, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. Enginn hryðjuverkahópur hefur lýst ábyrgðinni á hendur sér. Talsmenn tveggja herskárra hópa í Kasmír-héraði neituðu aðild að sprengjunum og fordæmdu þær. Talsmenn Indlandsstjórnar létu hafa eftir sér í gær að sprengjurnar væru of þróaðar fyrir Kasmír-hópana, og töldu lík- legra að um öfgasinnaða múslima- hópa væri að ræða. Forsætisráðherra Indlands, Manmohan Singh, lýsti því yfir í gær að „enginn myndi knésetja Indland,“ og hvatti landa sína til að sýna samstöðu. Unnið var hörðum höndum að viðgerðum og þrifum og voru sam- göngur komnar í nokkurn veginn samt lag í gærdag, þó færri íbúar nýttu sér lestirnar en venjulega. Öryggisgæsla hefur verið hert til muna í öllum borgum Indlands. Sextán milljónir manna búa í Mumbai. - smk Eftirmálar hryðjuverkanna í Mumbai á Indlandi sem urðu 200 að bana: Enginn hefur lýst yfir ábyrgð LESTIN VÖKTUÐ Öryggisgæsla hefur verið hert til muna í öllum borgum Indlands. Myndin er tekin í Kalkútta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 DÓMSMÁL Tæplega fertugur Lithái má búast við rúmum tveggja ára fangelsisdómi, verði hann sak- felldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning á rétt um 1,8 kíló- um af fljótandi amfetamíni í tveimur hvítvínsflöskum. Ákæru- valdið krefst þess einnig að 44 ára Lithái, sem er búsettur hér á landi, verði sakfelldur. Hann er ákærður fyrir að hafa átt að taka við efnun- um hér á landi. Þeir neita báðir sök. Jakob Kristinsson lyfjafræð- ingur vitnaði í málinu í gær og sagði að hann hefði aldrei séð amf- etamín í fljótandi formi áður. Efnið væri mjög hreint, eða 77 prósent í annarri flöskunni og 89 prósent í hinni. Hann teldi að hægt væri að taka það í fljótandi formi þótt hætta væri á ofneyslu. Auk brennisteinssýru væri hægt að nota etanól til að koma amfetam- íninu í fast form. Sá sem náðist með flöskurnar sagði fyrir réttinum að hann hefði haldið að áfengi væri í þeim. Hann staðfesti að hann hefði einnig komið með tvær flöskur í desem- ber og afhent þær þá hinum ákærða í málinu. Hann hefði ekki vitað hver ætti að fá flöskurnar í síðari ferðinni, en fengið boð um að þær yrðu sóttar á gististað hans. Sveinn Andri Sveinsson, verj- andi mannsins sem búsettur er hér, sagði að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sanna neitt á skjól- stæðing sinn: „Í kenningum lög- reglunnar er ekki heil brú.“ Sveinn krafðist sýknu, en lögreglan komst á spor skjólstæðings Sveins, þar sem hann hafði greitt far hins frá landinu í desember með kredit- korti. Við húsleit á heimili skjólstæð- ings Sveins fann lögreglan upp- skrift af amfetamíni í föstu formi og etanól, ásamt tveimur e-töflum. Uppskriftina sagðist sá ákærði hafa sótt fyrir vin sin og ekki vitað að væri fyrir amfetamínfram- leiðslu. Etanólið sagðist hann nota í bakstra við bakverkjum og töfl- urnar sagðist hann hafa fundið á gólfi skemmtistaðar, tekið upp og gleymt. Hann hefði borgað farið fyrir félaga sinn af greiðasemi þar sem hann ætti krítarkort og gæti því fengið hagstæðara verð á netinu. Hann hefði fengið endur- greitt í peningum. Ákæruvaldið telur að óþekktur vitorðsmaður í Litháen hafi starf- að með ákærðu mönnunum. Lög- reglan fann hann ekki. Hún fann heldur aldrei þá menn sem hinir ákærðu nefndu til sögunnar við vitnaleiðslur og taldi það ekki reynandi. Það gagnrýndu verjend- urnir en Daði Kristjánsson, full- trúi ákæruvaldsins, sagði að óglögg göng ættu ekki að fría mennina sök. gag@frettabladid.is Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. HLÉ Á STRÖNGUM RÉTTARHÖLDUM Í HÉRAÐSDÓMI Sveinn Andri Sveinsson fyrir utan dómssalinn í gær. Hann er verjandi Litháans sem búsettur er hér. Litháinn snýr baki í myndavélina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FYRIR DÓMARA Litháinn sem handtekinn var í Leifsstöð 4. febrúar kom fyrir dómara í héraðsdómi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HEILBRIGÐISMÁL Lyfjakostnaður Landspítalans hækkar um sextíu til sjötíu milljónir, einungis vegna gengisbreytinga á þessu ári, ef reiknað er með að gengi helstu gjaldmiðla haldist óbreytt út árið. Þetta er mat Valgerðar Bjarnadótt- ur, sviðsstjóra innkaupa- og vöru- stjórnunarsviðs Landspítalans. Lyfjakostnaður Landspítalans er um 2,7 milljarðar króna á ári eða tæp tíu prósent af heildarrekstrar- kostnaði sjúkrahússins. Stærstur hluti þessara lyfja eru ný og dýr lyf sem aðeins eru gefin innan sjúkra- hússins, sem stendur straum af kostnaði þeirra að fullu. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, segir að allt sem er beintengt genginu eins og lyf, hjúkrunarvörur og tækjavörur skýri þann halla sem fimm mánaða uppgjörið sýni og að lyfin séu þar veigamest. Magnús býst við að sex mánaða uppgjör á rekstri sjúkra- hússins muni þó ekki sýna mikið hærri tölur. „Stjórnvöldum er vel kunnugt um þennan vanda og það er heilbrigðisyfirvalda að gera eitt- hvað í því. það felst ekki í því að byggja hús heldur er það rekstur- inn sem skiptir mestu máli.“ Rekstrarhalli samkvæmt fimm mánaða uppgjöri er um tvö hundr- uð milljónir króna. Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar alþingis, segir að fjárhagsstaða Landspítal- ans hafi ekki verið rædd innan nefndarinnar nýlega. „En það er ljóst að ríkisfyrirtæki verða, hvort sem þeim líkar það betur eða verr, að fara að fjárlögum.“ - shá Rekstrarvandi Landspítala - háskólasjúkrahúss magnast vegna gengisbreytinga: Lyf hækka um tugi milljóna LANDSPÍTALINN Gengisbreytingar eiga stærstan þátt í 200 milljóna króna halla á fimm mánaða uppgjöri. SIGLINGAR Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tók í gær á móti breskum skútukörlum á Bessastöðum. Sigldu þeir hingað til lands á tíu skútum til að minnast þess að í sumar eru liðin 150 ár frá því að Dufferin lávarður sigldi til Íslands á skútu. Var Ísland fyrsti áfangastaður Dufferins á siglingu hans um Atlantshaf árið 1856, en hann sigldi einnig til Jan Mayen og Noregs. Síðar skrifaði hann bók um ferðir sínar á norðurslóðum. Viðstödd móttökuna í dag var lafði Dufferin, síðasti núlifandi afkomandi lávarðarins. - öhö Forseti Íslands: Tók á móti skútukörlum SAMÚÐ Forsætis- og utanríkisráðu- neyti Íslands hafa sent indversk- um stjórnvöldum samúðarkveðj- ur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sendi forsætisráðherra Indlands, dr. Manmohan Singh, kveðjur og Valgerður Sverris- dóttir sendi sama manni, sem einnig gegnir stöðu utanríkisráð- herra, sína kveðju. Í bréfi sínu fordæmir Valgerð- ur árásirnar og ítrekar stuðning íslenskra stjórnvalda við barátt- una gegn alþjóðlegri hryðju- verkastarfsemi. - sh Hryðjuverkin í Mumbai: Ráðherrar votta samúð SPURNING DAGSINS Sveinn, er blóðugt að missa þessa fermetra? „Ég held þvert á móti að heilbrigðisyfir- völdum muni renna blóðið til skyldunnar og leysa þennan vanda með glæsibrag.“ Starfsmenn Blóðbankans eru ósáttir við að fá ekki allt húsið að Snorrabraut 60 til afnota , heldur missa um 150 fermetra til fram- kvæmdanefndar um nýtt sjúkrahús með Alfreð Þorsteinsson í fararbroddi. Sveinn Guðmunds- son er yfirlæknir Blóðbankans. FJÁRSVIK Gæsluvarðhald yfir kon- unni sem grunuð er um aðild að fjárdrættinum hjá Trygginga- stofnun og syni hennar rann út í gær. Jón H. B. Snorrason, yfir- maður efnahagsbrotadeildar rík- islögreglustjóra, segir að ekki hafi þótt nauðsyn til að krefjast lengra gæsluvarðhalds. Rannsókn málsins miðar vel og hafa á þriðja tug einstaklinga verið yfirheyrðir vegna málsins. Konan er talin hafa dregið að sér 75 milljónir króna. - æþe Fjárdráttur í Tryggingastofnun: Mæðgin laus úr varðhaldi Á BESSASTÖÐUM Lafði Dufferin afhendir hér mynd af Dufferin lávarði sem tekin var í ferð hans hingað til lands árið 1856. ÞÝSKALAND, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í gær til Þýskalands í boði Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Bush verður í Þýskalandi þangað til á morgun, en þá heldur hann til Rússlands á leiðtogafund G8. Í Þýskalandi fer Bush á heima- slóðir Merkel við strönd Eystra- salts, þar sem áður var Austur- Þýskaland. „Mér finnst það alltaf merki um mikla gestrisni þegar einhver býður manni að koma á heimaslóð- ir sínar,“ sagði Bush. - gb Bush-hjónin til Þýskalands: Á heimaslóðir kanslarans FORSETAHJÓNIN George og Laura Bush eru í heimsókn í Þýskalandi. TEXAS Aron Pálmi Ágústsson, sem hefur afplánað betrunarvist í Texas seinustu níu árin, var næstum handtekinn á þriðjudag eftir að hafa lent á hand- tökulista vegna mistaka í tölvukerfi lögreglu. Aron sendi stuðningsnefnd sinni á Íslandi SMS boð um að lögreglan væri komin að heimili hans. Skil- orðsfulltrúinn fullvissaði hann síðan um að um mistök væri að ræða og kom í kjölfarið í veg fyrir handtökuna. - sdg Aron Pálmi í Texas: Lenti óvart á handtökulista ARON PÁLMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.