Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 8
8 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
Ármúla 44, sími 553 2035
Eikarhúsgögn
Quba Eikarhúsgögn
borð 131.390
stóll 30.210
skenkur 153.330
skápur 178.130
sjónvarpsskápur 78.330
7 eikarlitir
Framleitt í Belgíu
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FORNLEIFAR Merkur fornleifa-
uppgröftur stendur nú yfir á Skriðu
við Lagarfljót, en þar stóð stórt
klaustur fyrr á öldum. Uppgröftur-
inn hefur staðið yfir síðan árið 2002
og er þetta því fimmta sumarið
sem þarna er grafið. Dr. Steinunn
Kristjánsdóttir fornleifafræðingur
stendur fyrir uppgreftrinum.
„Við fórum af stað með litla
könnnun árið 2000 með það mark-
mið að finna rústir klaustursins,“
segir Steinunn. „Við vissum ekki
hvar það var heldur bara að það
hefði verið klaustur á þessu svæði.
Þegar við fundum það að lokum
kom í ljós að það var nokkuð langt
frá þeim stað sem við bjuggumst
við upphaflega. Nú erum við búin
að afhjúpa um sex hundruð fer-
metra af rústunum, en það er ljóst
að það var um tólf hundruð fer-
metrar að stærð.“
Klaustrið var sérstakt að því
leyti að hönnun þess virðist hafa
fylgt alþjóðlegum reglum um upp-
byggingu klaustra á þeim tíma sem
það var stofnað, eða árið 1493.
Byggingin var ferningslaga með
klausturgarð fyrir miðju og gos-
brunni í miðjunni.
Steinunn segir að starfsemi
klaustursins hafi einnig samræmst
því sem þekktist í öðrum klaustr-
um, en þar hafi verið rekið eins
konar sjúkrahús. „Við höfum
fundið áhöld til lækninga ásamt
plöntuleifum sem benda til þess að
læknandi jurtir hafi verið ræktaðar
hérna. Svo erum við búin að grafa
upp fjörutíu grafir sem virðast
allar vera af sjúklingum sem dvalið
hafa hér.“
Athygli vekur að ummerki um
stiga hafa fundist í húsinu sem
bendir til þess að það hafi verið á
tveimur hæðum. Mjög sjaldgæft
er að torfhús hafi verið á fleiri en
einni hæð, en líkt og flest önnur
hús á þessum tíma var klaustrið
byggt úr grjóti og torfi.
Fá klaustur hafa fundist á
Íslandi, en tvö slík hafa verið grafin
upp í Viðey og á Kirkjubæjar-
klaustri. Steinunn segir staðsetn-
ingu klaustursins á Skriðu vera
mjög heppilega vegna þess að rúst-
irnar hafi verið ósnertar síðan
húsið var yfirgefið um siðaskiptin.
Staðurinn þar sem rústirnar standa
sé afskekktur nú þótt hann hafi
verið í alfaraleið þegar klaustrið
var stofnað.
Steinunn fékk fjárveitingu til
fimm ára vegna verkefnisins, og er
þetta því síðasta sumarið sem grafið
verður á því tímabili. Hún segist
þó vona að fjárveiting fáist til að
halda verkefninu áfram, enda rúst-
irnar heillegar og uppgröfturinn
langt kominn.
salvar@frettabladid.is
Fundu rústir
klaustursins
Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en
rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur
stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú
verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar.
EIN BEINAGRINDANNA SEM FUNDIST HAFA Ummerki um stiga hafa fundist í húsinu, sem er
mjög óvenjulegt fyrir torfhús. Klaustrið var um tólf hundruð fermetrar að stærð og rústirnar
mjög heillegar.
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvar voru gerðar sprengiárásir á lestarkerfi í vikunni?
2 Hvað heitir fyrrum liðsmaður Pink Floyd sem lést á dögunum?
3 Hvað heitir íslensk vinkona Robbie Williams?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
ÍSRAEL, AP Orðrómur um meinta
kynferðislega áreitni forseta
Ísraels, Moshe Katsav, tröllríður
öllum fjölmiðlum í Ísrael og gæti
tímasetningin varla verið verri
fyrir Ísraela, sem sæta nú mikl-
um alþjóðlegum ádeilum vegna
innrása á Gaza-strönd og í Líban-
on.
Tvær konur hafa komið fram í
ísraelskum fjölmiðlum og saka
Katsav um að hafa áreitt þær
kynferðislega.
Engin kæra hefur verið lögð
fram, en forsetinn, sem gegnt
hefur embættinu í sex ár, hefur
verið kallaður á fund ríkis-
saksóknara vegna málsins. - smk
Forseti Ísraels:
Sakaður um kyn-
ferðislega áreitni
HAGSTOFAN Vísitala neysluverðs í
júlí hækkaði um 0,46 prósent frá
því í júní, samkvæmt nýjum
tölum Hagstofu Íslands. Þessi
hækkun er undir væntingum
greiningaraðila, sem höfðu spáð
0,55 til 0,7 prósenta hækkun.
Stefán Úlfarsson, hagfræðingur
Alþýðusambands Íslands, segir
hugsanlegt að nýlegar aðgerðir
aðila vinnumarkaðins og ríkis-
stjórnarinnar séu hér að hafa
áhrif en of snemmt sé að fagna
sigri. „Verðbólgan er enn gríðar-
lega mikil, í 8,4 prósentum, og við
erum rétt að byrja þessa veg-
ferð.“
Meiningarmunur hefur verið á
milli ASÍ og
Seðlabankans
um hversu nei-
kvæðar verð-
bólguhorfurnar
eru að sögn
Stefáns. „Við
teljum spá
Seðlabankans
of neikvæða,
sem hafi þau
áhrif að hann
grípi til of harkalegra aðhalds-
aðgerða. Það hefur í för með sér
þyngri greiðslubyrði sem leiðir
til meiri samdráttar og harðari
lendingar hagkerfisins. Við telj-
um að við munum ná okkur á
eðlilegt ról við
lok næsta árs
og ekki þurfi að
grípa til jafn
harkalegra
aðgerða af
hálfu Seðla-
bankans, eins
og hann gerði í
seinustu vaxta-
hækkun.
Ingimundur
Friðriksson Seðlabankastjóri
segir óvarlegt að túlka eins mán-
aðar hreyfingu og þetta breyti í
engu mati bankans sem birtist í
Peningamálum í síðustu viku.
- sdg / sjá síðu 25
Vísitala neysluverðs hækkar minna en spáð hafði verið:
Of snemmt að fagna sigri
STEFÁN ÚLFARSSON INGIMUNDUR
FRIÐRIKSSON