Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 10
10 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli yfir-
standandi fiskveiðiárs var kominn
í 1.110.764 lestir 30. júní síðastlið-
inn en á sama tíma í fyrra var
aflinn 1.590.193 lestir. Aflinn er
því tæplega 480 þúsund lestum
minni, samanborið við síðasta
fiskveiðiár. Minni afli uppsjávar-
tegunda, og þá einkum loðnu, skýrir
að mestu þennan samdrátt.
Heildarmagn botnfiskafla er svip-
að á milli ára en meira hefur veiðst
af úthafskarfa en í fyrra en minna
af þorski og ýsu.
Heildaraflinn í júní var 133.615
lestir samkvæmt bráðabirgða-
tölum Fiskistofu. Það er um það
bil 22 þúsund lesta minni afli en í
júní í fyrra þegar aflinn var
155.385 lestir. Samdrátturinn á
milli ára skýrist af minni síldar-
og kolmunnaafla en afli á norsk-
íslensku síldinni dróst saman um
sautján þúsund tonn. Botnfisk-
aflinn í júní var 39.267 lestir, 9.844
lestum minni en í júní í fyrra. Þar
munar mikið um 2.628 tonna sam-
drátt í þorskafla. Ýsu- og ufsaafli
jókst hinsvegar nokkuð en mest
aukning var í veiði á úthafskarfa
sem fór úr 3.544 lestum í júnímán-
uði í fyrra í 8.787 lestir í ár.
Hagstofa Íslands greinir frá að
aflaverðmæti síðasta árs var svipað
og árið 2004 eða tæpir 68 milljarðar
króna. Stærstum hluta fiskaflans
var landað og úr honum unnið á
Austurlandi en úr verðmætasta
aflanum var helst unnið á höfuð-
borgarsvæðinu. Þorskur var helst
unninn í salt árið 2005 og ýsa fryst
að mestu leyti í landi. Síld er fryst
í síauknum mæli, annað hvort á
landi eða á sjó.
svavar@frettabladid.is
Hagstæðustu kaupin
Hinn eini sanni íslenski DALA FETA nú fáanlegur
á TVENNUTILBOÐI
í næstu verslun.
Einnig með tómötum og olífum!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
33
40
7
0
7/
20
06
www.lyfja.is
„Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“
Weleda - lífrænar snyrtivörur
Mælanleg minnkun á cellolite á húðinni á 28
dögum. Niðurstaða úr faglegri rannsókn.*Kids
Hágæða húð- og hárvörur fyrir börn.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki
Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
NeoStrata sólarvörn SPF 29
Ilmefnalaus og vatnsþolin sólarvörn gegn UVA
og UVB geislum. Heldur sólarvarnarstuðlinum
SPF 29 eftir allt að 40 mínútur í vatni.
Má bera á börn frá 6 mánaða aldri. * Gildir á meðan birgðir endast.
2.728,- kr.*
Cellolite olía með nuddbursta
Verð áður 3.410 kr.
verð nú
2.163,- kr.*
Cellolite olía
Verð áður 2.704 kr.
verð nú
BJÖRG Í BÚ Fiskafli á Íslandsmiðum dregst saman á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/SVÞ
Afli dregst mikið
saman á milli ára
Heildarafli þessa fiskveiðiárs er um hálfri millj-
ón lestum minni en á sama tíma í fyrra.
AFLAHEIMILDASTAÐA
30. JÚNÍ 2006
Tegund Aflamark alls Afli Eftirstöðvar
Þorskur 167.870 147.271 20.599
Ýsa 90.347 69.746 20.601
Karfi 61.505 47.585 13.920
Langa 4.230 4.039 191
Keila 3.410 3.778 -368
Steinbítur 12.019 12.201 -182
Grálúða 16.143 9.978 6.165
Sumargotssíld 110.924 103.029 7.895
Loðna 194.027 193.538 489
Humar (skott) 564 489 75
Aflamarksstaða almanaksárstegundanna
kolmunna, úthafskarfa og norsk-íslensku
síldarinnar, er ekki meðtalin.
Enn meira úrval af margskonar gjafavöru
sem prýðir heimilið
Gjafavara
Onde
matar – og kaffistell
Franskt gæða postulín
ÞJÓFNAÐUR „Það hefur enginn haft
samband við mig ennþá,“ segir Nói
Benediktsson, sem lenti í því á
laugardaginn að hluta búslóðar
hans var stolið á meðan hann stóð í
flutningum úr íbúð sinni. Fjallað
var um málið í Fréttablaðinu í gær.
„Ég vona að það kvikni á perunni
hjá einhverjum þegar hann les um
þetta, en það hefur ekkert spurst til
hlutanna ennþá.“ Meðal þeirra
hluta sem hurfu voru tveir stólar,
sófaborð, bókahilla og borðtölva.
Þeir sem telja sig vita um málið eru
beðnir um að hafa samband við
lögregluna. - sþs
Búslóðaþjófnaður í Breiðholti:
Enginn haft
samband enn
BORGARMÁL Borgarstjórn Reykja-
víkur hefur efnt til átaks til hreins-
unar borgarinnar og stendur það í
sumar og næstu tvö sumur. Var
átakið kynnt á fundi með íbúum í
Breiðholti í gærkvöldi en fer form-
lega af stað með hreinsunardegi í
Breiðholti laugardaginn 22. júlí.
„Við ætlum að hreinsa til í öllum
hverfum borgarinnar og byrjum á
Breiðholtinu, þar sem fimmtungur
borgarbúa býr. Þar ætlum við að
fegra hverfið eins mikið og mögu-
legt er á einum degi, með því að fá
Breiðhyltinga í lið með okkur. Allir
sem vettlingi geta valdið taka
upp hanskann og hreinsa til,“
segir Gísli Marteinn Baldursson,
formaður umhverfisráðs Reykja-
víkurborgar. Sams konar átak
verður gert í öllum hverfum borg-
arinnar. Í átakinu er lögð áhersla á
að virkja almenning og fyrirtæki
til þess að hreinsa og hugsa vel um
umhverfi sitt.
„Við ætlum að tyrfa knatt-
spyrnuvelli, skipta um grindverk,
hreinsa veggjakrot, skipta út göml-
um leiktækjum og svo mætti lengi
telja. Við borgarfulltrúarnir og
borgarstjóri verðum þarna og
tökum til hendinni. Breiðholtið er
yndislegt hverfi sem því miður
hefur ekki fengið næga athygli
undanfarin ár,“ segir Gísli og bætir
við að auk þessa átaks sé mikið lagt
upp úr hreinsun allrar borgarinnar
í sumar. - öhö
Borgarstjórn Reykjavíkur efnir til hreinsunarátaks:
Íbúarnir taki upp hanskann
VINNUSKÓLAKRAKKAR Hafa snyrt borgina í
sumar og fá nú að líkindum mikinn liðsauka.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
R
Ö
N
N