Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 12
12 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR FINNLAND Stöðugt fleiri farþegar kjósa að fljúga með finnska flug- félaginu Finnair en tekjurnar fara minnkandi. Ástæðan er sú að sam- keppnin er hörð og olían verður stöðugt dýrari, að sögn Dagens Industri. Finnair flýgur til margra Asíu- landa og hefur eftirspurnin farið vaxandi á þeim flugleiðum, fjöldi farþega jókst um 24 prósent í júní og flutningagetan um tæp tuttugu prósent. Straumur og FL Group eiga yfir tuttugu prósent í félag- inu á móti 55 prósentum finnska ríkisins og öðrum fjárfestum. - ghs Hið íslenska Finnair: Asíuflugið er mest vaxandi TÉKKLAND, AP Bandarískir sérfræð- ingar munu ferðast til Tékklands í næstu viku í þeim tilgan-gi að leita að hugsanlegri staðsetningu fyrir bandaríska herstöð, þar sem lang- drægar eldflaugar yrðu geymdar. Þessum eldflaugum yrði ætlað að verja Evrópu gegn hugsanleg- um árásum frá Mið-Austurlöndum, að sögn talsmanns varnarmála- ráðuneytis Tékklands í gær. Finni sérfræðingarnir heppilega staðsetningu, mun tékkneska ríkis- stjórnin ákveða hvort leyfa beri bandaríska herstöð í Tékklandi, að sögn talsmannsins.Þegar hafa sér- fræðingar Bandaríkjahers farið í svipaða ferð til Póllands. - smk Bandarískir sérfræðingar: Vilja herstöð í Tékklandi KÆNUGARÐUR, AP Slagsmál brutust út á þinginu í Úkraínu í gær þegar Viktor Júsjenko forseti var beðinn um að tilnefna helsta andstæðing sinn, Viktor Janúkovitsj, í embætti forsætisráðherra. Andstæðingar Júsjenkos hafa boðað víðtækar mótmælaaðgerðir til þess að hindra að hann komist til valda á ný. Fyrir utan þinghúsið hafa nú hópar mótmælenda sett upp tjaldbúðir og búa sig undir langa baráttu, ekki ósvipað „app- elsínugulu“ byltingunni haustið 2004 þegar Júsjenko fór í forystu fyrir andstæðingum Janúkovitsj, sem þá var forseti. Allt frá þingkosningunum í mars síðastliðnum hafa flokkarnir á þingi átt í mestu vandræðum með að koma sér saman um starfhæfa meirihlutastjórn. Héraðaflokkur- inn, sem er flokkur Janúkovitsj, náði í síðustu viku samkomulagi um stjórnarmyndun við tvo flokka, Kommúnistaflokkinn og Sósíalista- flokkinn, en sá síðarnefndi hafði áður lofað þátttöku í „appelsínu- gulri“ stjórn með Okkar Úkraínu, sem er flokkur Júsjenkos, og Flokki Júlíu Tímosjenko, sem átti að verða forsætisráðherra í þeirri stjórn. Helsta ágreiningsefnið snýst um það hvort Úkraína eigi að halla sér meir að Rússlandi, eins og Janúko- vitsj fyrrverandi forseti vill, eða sækjast eftir nánari tengslum við Evrópusambandið og Nató eins og Júsjenko forseti stefnir að. Í austanverðri Úkraínu, þar sem iðnvæðing er mikil, hallast menn frekar að Rússlandi, enda tala flest- ir íbúar austurhlutans rússnesku. Í vesturhluta landsins talar fólk hins vegar úkraínsku og vill nánari tengsl við Evrópu til þess að vega upp á móti sögulega sterkum áhrif- um frá Rússlandi. - gb GRIPINN HÁLSTAKI Til stympinga kom á Úkraínuþingi í gær vegna deilna um stjórnarmynd- un. Enginn meiddist þó alvarlega en einn þingmanna hlaut blóðnasir.FRÉTTABLAÐIÐ/AP Andstæðingar Júsjenkos búa sig undir nýja byltingu í Úkraínu: Slagsmál brutust út á Úkraínuþingi LÍFEYRISSJÓÐIR „Okkur þykir Líf- eyrissjóður verslunarmanna oft á tíðum hafa beitt sér með sérkenni- legum hætti gegn þessum félög- um,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group. Hann segir að Baugur og FL Group séu nú að kanna umhverfið og skoða þá möguleika sem séu fyrir hendi. „Við teljum ekki sjálfgefið að starfsmenn þessara félaga þurfi að vera í Lífeyrissjóði verslunar- manna. Hagsmunir fyrirtækja og starfsmanna fara saman og okkur þykir óeðlilegt ef lífeyrissjóður er beinlínis að beita sér gegn hags- munum launagreiðanda félags- manna sinna. Við höfum aldrei ætlað okkur að stofna lífeyrissjóð til að ráðskast með peninga starfs- manna okkar. Þeir sem eiga aðild að sjóðnum eiga peningana og um lífeyrissjóði gilda skýr lög,“ segir Skarphéðinn. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir að mestu skipti að lífeyrissjóðir séu hagkvæmir og geti tryggt ákveðna fagmennsku í stjórnun. „Það voru margir fyrirtækja- sjóðir starfandi á árum áður sem hurfu, fyrst og fremst vegna þess hversu litlir þeir voru og óhag- kvæmir í rekstri.“ Þá segir Vilhjálmur einnig að sérstakir lífeyrissjóðir fyrirtækja gætu skapað flækjur við samruna og breytingar á fyrirtækjunum. - öhö FL Group og Baugur telja Lífeyrissjóð verslunarmanna beita sér gegn félögunum: Eðlilegt að kanna umhverfið VILHJÁLMUR EGILSSON SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSONKÆLIR SIG NIÐUR Mótmælendur gegn nýju samsteypustjórninni í Úkraínu hafa sett upp tjaldbúðir á aðaltorgi Kænu- garðs. Mikill hiti er í borginni og þessi kona ákvað að kæla sig aðeins niður í gosbrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bílvelta tafði umferð Tafir urðu á umferð á Suðurlandsvegi í gær eftir að bíll valt við Lómagnúp á Skeiðarársandi. Ekki urðu nein alvarleg slys á fólki við óhappið. Eðlileg umferð var komin á að nýju á sjötta tímanum. LÖGREGLUFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.