Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 13
SPÁNN, AP Tugir manna slösuðust í
sjötta nautahlaupinu af átta á San
Fermin-hátíðinni í Pamplona á
Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd
nautin engan í gegn og eingöngu
einn maður slasaðist illa þegar
nautin tröðkuðu á honum. Hann
var lagður inn á sjúkrahús með
nokkuð alvarlega bak- og höfuð-
áverka, en var þó ekki í lífshættu.
Hlaupið stóð í tvær og hálfa mín-
útu.
Bandaríkjamaður, sem slasað-
ist mikið á fyrsta degi hátíðarinn-
ar, þegar fimm ungum kúm var
sleppt lausum á nautaatsvelli
meðal fjölda fólks, liggur enn
þungt haldinn á gjörgæslu.
Þrettán manns hafa farist í
nautahlaupinu síðan árið 1924.
- smk
Enn fleiri slasast í nautahlaupinu í Pamplona:
Einn þungt haldinn
á gjörgæsludeild
NAUTAHLAUP Tugir manna slösuðust lítil-
lega í nautahlaupinu í Pamplona í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Til hamingju Ítalía !
Moschino tekur þátt í gleðinni og gefur þeim viðskiptavinum
sem kaupa tvo hluti í Moschino Friends herra línuni þennann
flotta HM leður fótbolta
FRAKKLAND, AP Stjórnvöld sex
heimsvelda ákváðu í gær að
senda Íran aftur fyrir Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna, sem
hugsanlega gæti fyrirskipað
refsiaðgerðir. Ástæðan er sú að
heimsveldin telja Írana ekki hafa
sýnt neina alvöru í samningavið-
ræðum varðandi auðgun þeirra á
úrani.
Utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna, Frakklands, Bretlands,
Rússlands, Kína og Þýskalands
funduðu um málið í París í gær,
en þeir hafa verið að reyna að fá
Írana til að samþykkja pakkatil-
boð af viðskiptasamningum í
skiptum fyrir að hætta auðgun á
úrani. Íranar hafa aftur á móti
sagt að of mikið í tilboðinu virki
tvímælis. - smk
Kjarnorkuáætlun Írana:
Aftur fyrir öryggisráð SÞ
FUNDAÐ UM ÍRAN Philippe Douste-Blazy,
utanríkisráðherra Frakklands, t.h., og Cond-
oleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, á fundi í París í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP