Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 16
16 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
DÝRALÍF Vísindamenn telja að búið
sé að útrýma svörtum nashyrning-
um í Vestur-Afríku, en margar
tegundir nashyrninga standa ákaf-
lega höllum fæti vegna aðgerða
veiðiþjófa. Þetta kemur fram á
fréttavef breska ríkisútvarpsins,
BBC.
Í leiðangri dýraverndunarsam-
takanna IUCN fyrr á þessu ári til
seinustu þekktu heimkynna nas-
hyrninganna í Vestur-Afríku, í
Kamerún, fundu leiðangursmenn
engin merki um lifandi dýr, en
hins vegar fjölmörg ummerki
eftir veiðiþjófa, hefur BBC eftir
Richard Emslie, talsmanni IUCN.
Árið 2002 töldu sérfræðingar
að eingöngu tíu svartir nashyrn-
ingar væru enn á lífi í Kamerún,
en þeir voru dreifðir yfir stórt
svæði sem gerði skepnunum erf-
iðara fyrir að eignast afkvæmi.
Seinustu 150 ár hefur nashyrn-
ingum fækkað mjög í Afríku
vegna veiðiþjófnaðar. Hefur hvít-
um nashyrningum í Norður-Afr-
íku verið nær útrýmt, en talið er
að eingöngu fjögur dýr séu eftir af
þeim stofni.
Hins vegar hafa varnaraðgerð-
ir yfirvalda á síðustu árum gegn
veiðiþjófum í Austur- og Suður-
Afríku lánast vel, og þar fjölgar
bæði hvítum og svörtum nashyrn-
ingum. Sérstaklega hefur tekist
vel til með hvíta nashyrninga í
Suður-Afríku, en þeim hefur fjölg-
að úr 30 dýrum árið 1895 í nær
15.000 dýr nú. - smk
Vísindamenn telja að búið sé að útrýma svörtum nashyrningum í Vestur-Afríku:
Óttast um afdrif nashyrninga
SVARTUR NASHYRNINGUR Óttast er að
veiðiþjófar hafi útrýmt svörtum vestur-
afrískum nashyrningum.NORDICPHOTOS/AFP
FLUGA OG FIÐRILDI Býfluga og kónga-
fiðrildi sitja hér saman í sátt og samlyndi
og gæða sér á hunangi blómsins. Myndin
var tekin í New Jersey í Bandaríkjunum í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍSRAEL-PALESTÍNA „Við mótmælum
framferði Ísraelshers sem bitnar á
hinum almenna íbúa, körlum,
konum og ekki síst börnunum, sem
reyna alltént að vera úti við leik, að
minnsta kosti á meðan sprengjun-
um rignir ekki,“ segir Sveinn
Rúnar Hauksson, formaður félags-
ins Ísland-Palestína, sem heldur
mótmælafund á Austurvelli klukk-
an 17.30 í dag.
Ísraelsher réðist nýverið inn á
Gaza-svæðið í þeim yfirlýsta til-
gangi að frelsa hermann, sem
skæruliðar handtóku 25. júní.
Síðan hefur einn ísraelskur her-
maður og 60 Palestínumenn fallið,
þar af fjölmörg börn og unglingar.
Auk þess hafa nær tvö hundruð
Palestínubúar særst.
„Ísraelsher hefur rofið sam-
gönguæðar og er svo með fárán-
legar yfirlýsingar um að það eigi
að hindra skæruliðahópa í að kom-
ast leiðar sinnar. Þeir sprengdu
eina orkuver Gaza-strandarinnar
sem sá 700 þúsund óbreyttum Pal-
estínumönnum fyrir rafmagni og
komu svo með þá fráleitu skýringu
að þeir hefðu gert þetta svo skæru-
liðar sæju ekki til verka þegar þeir
flyttu herflaugar. En slíkir hópar
gera slíkt auðvitað í skjóli myrk-
urs,“ segir Sveinn Rúnar.
„Þetta er bara málatilbúningur,
þetta gengur allt út á einhver öfug-
mæli og hrein ósannindi þegar þeir
halda því fram að aðgerðirnar eigi
ekki að beinast gegn óbreyttum
borgurum, eins og sendiherra Ísra-
els á Íslandi hélt fram á dögunum,“
bætir Sveinn Rúnar við og vitnar í
viðtal Fréttablaðsins við Miryam
Shomrat, sendiherra, sem birtist í
síðasta mánuði.
Málið er sérlega alvarlegt þegar
tillit er tekið til þess að vatnsdælur
flestra íbúa eru knúðar áfram af
rafmagni, sem nú er ófáanlegt á
stórum hluta Gaza-strandarinnar.
Sveinn Rúnar, sem er læknir,
hefur einnig miklar áhyggjur af
eyðileggingu skolpræsa á svæðinu,
því slíkt býður bara hættunni heim,
og segir hann börn nú í mikilli
smitsjúkdómahættu.
„Það er um líf og dauða að tefla,
það verður að rjúfa þessa einangr-
un sem Ísraelsstjórn hefur tekist
að koma palestínsku þjóðinni í á
herteknu svæðunum,“ segir Sveinn
Rúnar. smk@frettabladid.is
Félagið Ísland-Palestína mótmælir framferði Ísraelshers á Austurvelli:
Þjóðarhreinsun í uppsiglingu
BARN BORIÐ TIL GRAFAR Palestínskur faðir ungabarns, sem lést af sárum sínum í þessari
viku eftir árás Ísraelshers, ber barnið til grafar í Rafah í Palestínu á þriðjudag.
NORDICPHOTOS/AFP
HAGSTOFAN Gistinóttum á hótelum í
maímánuði fjölgaði um 17 prósent á
milli ára og átti fjölgunin sér stað í
öllum landshlutum.
Gistinóttum fjölgaði hlutfalls-
lega mest á Austurlandi eða um 24
prósent. Á höfuðborgarsvæðinu
nam aukningin rúmu 21 prósenti. Á
Suðurnesjum, Vestfjörðum og Vest-
urlandi fjölgaði gistinóttum um níu
prósent. Á Suðurlandi var aukning-
in fjögur prósent og um þrjú pró-
sent á Norðurlandi. Fjölgunina má
að öllu leyti rekja til útlendinga sem
voru um 23 prósentum fleiri. gisti-
nóttum Íslendinga fækkaði. - sdg
Gistinætur í maímánuði:
17 prósentum
fleiri en í fyrra
FANGELSISMÁL Í könnun sem gerð
var meðal fanga á Litla-Hrauni
kemur fram að meirihluti þeirra
er óánægður með lækna- og tann-
læknaþjónustu fangelsisins og all-
margir með sálfræðiþjónustuna.
Þetta kemur fram í Tímamótum,
fréttablaði fanga á Litla-Hrauni.
Þar kemur einnig fram að bið eftir
viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni
getur verið nokkrir dagar. Í könn-
uninni kom fram að margir fangar
töldu framkomu lækna og hjúkr-
unarfólks oft á tíðum dónalega og
niðurlægjandi. Þá óska fangar
eftir auknu stöðugildi geðlæknis
við fangelsið sem gæti dregið úr
geðlyfjanotkun fanga. - hs
Fangar vilja styttri biðtíma:
Segja bið eftir
lækni of langa
50-70% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Nýtt kortatímabil
Blússur 1500kr. 4990kr.
Toppar 1500kr. 6990kr.
Gallabuxur 2000kr. 6990kr.
Hörbuxur 2000kr. 4990kr.
KRINGLUNNI
Met hjá Norrænu Norræna kom til
Seyðisfjarðar í morgun eins og hennar
er von og vísa á fimmtudögum. Ferðin
markar tímamót því farþegar hafa aldrei
verið fleiri, en 1.176 farþegar komu með
skipinu og um 370 farartæki.
FERÐAÞJÓNUSTA