Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.07.2006, Blaðsíða 18
 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR18 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Varhugaverð þróun „Einkavæðing veltur á fjölmörgum grundvallarþáttum. Ég er ekki andvígur einkavæðingu sem slíkri, en ég óttast einkavæðingu þegar hennar er krafist á hugmyndafræðilegum forsendum, burtséð frá hagkvæmni eða nauðsyn,“ segir Jürgen Buxbaum, framkvæmda- stjóri Evrópudeildar PSI, Alþjóðasam- taka starfsmanna í almannaþjónustu, en hann var hér á dögunum í boði BSRB. „Það ætti að skoða hvert einka- væðingarferli í grunninn, áður en af stað er farið. Sérstaklega þarf að gjalda varhug við einkavæðingu almanna- þjónustu sem hefur hingað til verið í umsjá ríkisins. Við höfum reynslu af þessu frá Berlín, þar sem vatnsveita borgarinnar var að hálfu leyti einkavædd. Enginn deilir um það í Þýskalandi að afleiðing þessa hefur verið sú að fjárfesting í endurnýjun og þróun vatnsveitunnar sjálfrar hefur minnkað um helming, starfsfólki hefur verið fækkað og laun þeirra starfsmanna sem eftir sitja eru lægri en áður að meðaltali. Síðast en ekki síst hefur smásöluverð til neyt- enda hækkað. Þetta er óhrekjanleg staðreynd frá Þýskalandi. Því veit ég að einkavæðing er alls engin töfralausn.“ SJÓNARHÓLL EINKAVÆÐING ALMANNAÞJÓNUSTU JÜRGEN BUXBAUM Tortímandaspjall „Við ræddum sameiginlegan áhuga okkar á að nýta jarð- hita í veröldinni og framtíð vetnissamfélagsins.“ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON FORSETI SPJALLAÐI VIÐ ARNOLD SCHWARZENEGGER Í HVÍTA HÚSINU Á MÁNUDAGSKVÖLD. MORGUNBLAÐIÐ, 12. JÚLÍ. Kemur á óvart „Það kemur mér á óvart að Jónína skuli gera þetta með þessum hraða í ljósi þess að fyrir liggur samkvæmt könnunum og mælingum Gallup að ég hef gríðarlega sterka stöðu í flokknum og sem ráðherra.“ GUÐNI ÁGÚSTSSON SEGIST VERA HISSA Á FRAMBOÐI JÓNÍNU BJARTMARZ TIL VARAFORMANNS FRAMSÓKNARFLOKKSINS. FRÉTTA- BLAÐIÐ, 12. JÚLÍ. Útleiga á bókum dregst saman um sjö prósent yfir sumartímann. Spennubæk- ur, svokallaðir reyfarar, eru aldrei vinsælli en á sumrin og börn eru dugleg að leigja bækur í sumarfríinu. Landsbókasafn stendur fyr- ir lestrarmaraþoni í sumar. „Helsta breytingin á lestrarvenj- um landans yfir sumartímann er að fólk les þá frekar reyfara og spennusögur, fræðibækurnar nán- ast rykfalla á sama tíma í hillum safnsins,“ segir Ingibjörg Rögn- valdsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landsbókasafni Íslands. „Sumarið er tími reyfaranna.“ Starfsfólk bókasafna finnur áþreifanlega fyrir breyttu áhuga- mynstri. „Við þurfum lítið að sinna upplýsingaþjónustu, það er lítið um að fólk leiti til okkar yfir sum- artímann í leit að heimildum fyrir ritgerðarsmíð,“ segir Ingibjörg. Vinsælustu bækurnar um þessar mundir eru, að sögn Ingibjargar, íslensku spennusögurnar sem komu út um jólin síðustu og eru margar hverjar komnar í kilju nú. Aðspurð um hver íslensku höfund- anna sé vinsælastur á svar hennar ekki að koma á óvart. „Það er nú bara þannig að Arnaldur er vin- sælastur í sumarbústaðinn,“ segir Ingibjörg og brosir. Hún segir starfsfólk verða vart við að fólk fái lánaðar margar spennubækur í einu til að hafa með sér upp í sum- arbústaðinn. „Það er fátt betra en að sitja í sólinni með góðan reyf- ara og hafa það huggulegt. Svo ef að rignir er hægt að leggjast undir teppi og sökkva sér í lesturinn og hlusta á regnið,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að börn séu dugleg að fá lánaðar bækur yfir sumartímann. „Bókin stendur allt- af fyrir sínu og krakkarnir eru jafn dugleg að fá lánaðar bækur á sumrin og aðra mánuði ársins. Veðrið hér, það sem af er sumri, hefur líka ekki boðið upp á marga daga til þess að leika sér í sólinni.“ segir Ingibjörg. Að sögn Ingibjargar eru tón- listardiskar og hljóðbækur líka vinsælar á sumrin. „Ætli fólk sé ekki að fá lánað eitthvað til að hlusta á í bílnum á leiðinni út á land.“ Borgarbókasafn stendur fyrir lestrarmaraþoni fyrir fólk á öllum aldri í sumar. „Þegar fólk skilar bók, fyllir það út umsögn um bók- ina á eyðublað sem er í formi fóts. Svo verður dregin út ein löpp á uppskeruhátíð Borgarbókasafns- ins á Menningarnóttinni í Reykja- vík þann 19. ágúst næstkomandi og eru veglegir vinningar í boði,“ segir Ingibjörg. ægir@frettabladid.is Sumarið er tími reyfara „Við erum í þessum hefðbundnu sumarverkefnum, varðandi umhirðu og ásýnd sveitarfé- lagsins. Hér hefur verið mjög gott veður og mikill straumur af ferðamönnum til okkar. Það má segja að Austurland sé í tísku í dag og það er mikið af fólki sem kemur hingað til að skoða framkvæmdirnar hérna. Þá er einnig mikið af fólki sem hefur áhuga á að flytja hingað og kemur til að kynna sér svæðið með það í huga. Hér er mikið af störfum og gott að búa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljóts- dalshéraðs. „Við vorum að gera samning við golfklúbbinn um uppbyggingu á gólfvellinum í Ekkjufelli og þá var verið að taka fyrstu skólfustunguna að nýju húsnæði sem verður bæði íbúðarhús fyrir eldri borgara en einnig þjónustumið- stöð.“ Eiríkur er á faralds- fæti í sumar því hann er nýlega kominn frá þýskalandi þar sem hann fylgdist með heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu. „Ég sá leik Brasilíu og Gana í Dortmund og það var mikil upplifun. Svo var ég staddur í París þegar Frakkar unnu Brasilíumenn. Stemningin var gríðarleg þar.“ Í lok mánaðarins fer Eiríkur til Indlands þar sem hann mun dvelja í tvær vikur á Evrópumóti Round table. „Það er hópur héðan að austan sem er að fara á þetta mót. Það er dáltið sérstakt að vera að fara á Evrópumót á Indlandi.“ Eiríkur segir að þó lítið sé að gera í skrifstofustörfum sé nóg að gera í sumar. „Andinn í bænum er góður og veðrið er búið að vera frábært. Það er búið að vera mikið að gera hjá fólki við alla þessa upp- byggingu og við horfum brosandi og jákvæð fram á veginn.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EIRÍKUR BJÖRN BJÖRGVINSSON BÆJARSTJÓRI FLJÓTSDALSHÉRAÐS Mikil uppbygging á Austurlandi Montana-tjaldvagnar á sérstöku sumartilboði Tjaldvagnar á tilboði – NÚNA! Montana Compact m. fortjaldi 10" dekk Stærð 3,25 m Heildarþyngd 395 kg Verð 529.000 Montana Easy Camp 10" dekk Stærð 3,30 m Heildarþyngd 395 kg Verð 479.000 Montana Easy Camp 13" dekk/höggdeyfar Stærð 3,25 m Heildarþyngd 645 kg Verð 529.000 H im in n o g h a f/ S ÍA Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is INGIBJÖRG RÖGNVALDSDÓTTIR Verkefnastjóri hjá Landsbókasafni Íslands. Á BÓKASAFNINU Fólk les frekar reyfara og spennusögur á sumrin samkvæmt Ingibjörgu Rögnvaldsdóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands. Starfsfólk bókasafna finnur áþreifan- lega fyrir breyttum áherslum á þjónustu á sumrin. Minni þörf er á upplýsingaþjónustu fyrir fólk sem er til dæmis að semja ritgerðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.