Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 22
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Náttúra Íslands er sá þáttur
sem erlendir ferðamenn
segja jákvæðastan við dvöl
í landinu. Næst á eftir nefna
þeir fólkið, afþreyinguna,
ferðaþjónustuna og menn-
inguna. Verðlagið er hins
vegar neikvæðasti þáttur
Íslandsdvalar og veðrið
kemur þar á eftir.
Í nýrri greinargerð Bjarna Reynars-
sonar, landfræðings og leiðsögu-
manns, um þróun í ferðavenjum
erlendra ferðamanna síðustu miss-
eri eru dregnar saman niðurstöður
úr fjölda fyrirliggjandi kannana og
tölfræðisafna. Meðal þess sem
fram kemur er að fjölgun ferða-
manna hefur verið mun hraðari en
fjölgun landsmanna og vöxtur bíla-
umferðar síðasta áratuginn. Hefur
fjölgunin numið sex til átta pró-
sentum árlega síðustu tíu til fimmt-
án árin, en á síðasta ári komu 424
þúsund erlendir ferðamenn til
landsins. Yfirgnæfandi meirihluti
kom flugleiðina og lenti á Kefla-
víkurflugvelli
en mesta fjölg-
un á komum
ferðamanna er
með skemmti-
ferðaskipum.
Í greinar-
gerð Bjarna
kemur fram að
ferðaþjónusta
sé sú atvinnu-
grein sem er í
hvað örustum
vexti á Íslandi
en árið 2004
aflaði greinin
um tólf pró-
senta af gjald-
eyristekjum
þjóðarinnar. Áætlað er að störf í
greininni séu um sjö þúsund og
árið 2004 var hlutur hennar í lands-
framleiðslu rúm fimm prósent.
Ferða- og dvalarkostnaður
erlendra ferðamanna er að jafnaði
hundrað þúsund krónur á gest en
þeir sem koma hingað á eigin
vegum eyða um þrettán þúsund
krónum á dag. Þeir sem koma í
pakkaferðir eyða um sjö þúsund
krónum á degi hverjum. Algengast
er að ferðamenn dvelji hér í sjö til
tíu daga yfir sumartímann eða í
þrjá til fimm daga yfir veturinn.
Næstum allir erlendir ferða-
menn sem hingað koma dvelja um
lengri eða skemmri tíma í Reykja-
vík. Gullfoss og Geysir eru eftir
sem áður vinsælasti viðkomustaður
ferðamanna utan höfuðborgarinn-
ar en talið er að um þrjú hundruð
þúsund útlendingar hafi komið að
Geysi á síð-
asta ári.
Álíka fjöldi
heimsótti
Bláa lónið.
Aðrir helstu
viðkomu-
staðir eru
Mývatn,
Þingvellir,
Akureyri og
Skaftafell.
Þá leggur
um helming-
ur erlendra ferðamanna leið sína
inn á einhvern hluta hálendisins.
Áður var vikið að mikilli fjölgun
siglinga skemmtiferðaskipa til
landsins og er viðbúið að sú þróun
haldi áfram. Árið 1991 komu sautján
þúsund farþegar til landsins með
skemmtiferðaskipum en nú eru
þeir um áttatíu þúsund. Í þessu
ljósi telur skýrsluhöfundur mikil-
vægt að hafnaraðstaða þar sem
stóru skemmtiferðaskipin leggjast
að verði bætt, sem og aðkoma hóp-
ferðabíla að hafnarsvæðum, enda
fer mikill fjöldi farþega í styttri
skoðunarferðir með rútum.
Athyglisvert er að heldur
hefur dregið úr notkun erlendra
ferðamanna á innanlandsflugi og
eru talin sóknarfæri fyrir flug-
félögin og aðra til að auka þátt
sinn á ný.
Um fimmtungur erlendra ferða-
manna hefur komið til landsins
áður og fjórir af hverjum fimm
segjast áhugasamir um að koma
hingað fljótlega á ný.
Líkt og áður sagði er hátt verð-
lag það sem flestir erlendir ferða-
menn nefna sem neikvæðasta þátt
Íslandsheimsóknar. Langt á eftir
koma veðrið, ferðaþjónustan, slæm
upplifun og samgöngur. „Ekki
getur ferðaþjónustan breytt veður-
farinu, en hún getur reynt að hafa
áhrif á verðlags- og samgöngu-
yfirvöld til umbóta í þeim þáttum,
sem og að skoða hvað í ferða-
þjónustunni helst er kvartað yfir,“
segir í skýrslu Bjarna Reynarssonar.
Eru það orð að sönnu.
Svona erum við
12
79
8
61
5
Í fréttum af lestarslysinu hræðilega á Indlandi hefur
borgin sem slysið átti sér stað í verið kölluð mis-
munandi nöfnum eftir fjölmiðlum. Ástæðan er sú
að á Vesturlöndum er hún þekkt sem Bombay, en
innfæddir kalla hana Mumbai.
Hvernig fékk borgin nafn sitt?
Nafnið Mumbai er dregið af Mumba sem er
nafn gyðju í hindúasið. Orðið þýðir „móðir“ á
Marathi-máli. Á 16. öld nefndu Portúgalar borgina
Bom Bahia, eða „góði flóinn,“ sem seinna varð
Bombaim, sem er enn notað á portúgölsku. Þegar
nýlenduyfirráð Breta hófust var nafnið enskað sem
Bombay, en var þó eftir sem áður Mumbai á Marathi-
og Gujarati-málum og Bambai á Hindí-máli.
Árið 1995 breytti þjóðernisflokkur Hindúa
nafninu í Mumbai formlega, af þeirri ástæðu að
Bombay væri nýlendunafn og bjögun á upphaflega
nafni borgarinnar.
Hvaða aðrar borgir hafa skipt um nöfn á
nýliðnum tímum?
Margar þekktar borgir hafa skipt um nafn, oftast
vegna pólitískra eða trúarlegra ástæðna. Meðal
þeirra er til dæmis höfuðborg Noregs, Osló, sem
eyddist í eldi 1624. Hún var þá endurbyggð af Kristj-
áni fjórða, Noregskonungi,
og hlaut nafnið Kristjanía,
sem hún hélt fram til
ársins 1925. Nú heitir hún
aftur Osló.
Hin mikilfenglega
höfuðborg Býzans
veldisins, Konstantínópel,
féll í hendur Ottóman
veldis múslima í kjölfar
falls heimsveldisins árið
1453. Fyrir tíð Konstantíns
keisara hafði hún heitið
Byzantium. Árið 1923 var hún svo nefnd Istanbul af
tyrkneskum stjórnvöldum.
Margar borgir voru endurnefndar í Sovétríkj-
unum sálugu. St. Pétursborg fékk nafn sitt árið
1991 en á tímum kommúnismans hafði hún heitið
Leningrad, en Petrograd þar áður, í minningu keis-
arans Péturs mikla. Sú borg sem nú heitir Volgograd
hét Stalingrad á sovéttímanum, en hét áður
Tsaritsyn, til heiðurs keisurum. Kommúnistunum
var mikið í mun að afmá sögu keisaranna, en nú
hefur það þótt eftirsóknarvert að hvítþvo Rússland
af sovéskum vísunum.
Árið 1975, í kjölfar Víetnamstríðsins, var stærsta
borg Víetnam, Saigon, endurnefnd Ho Chi Minh
borg. Þó er Saigon enn notað víða. Chemnitz er
250 þúsund manna borg í Þýskalandi sem áður var
í Austur-Þýskalandi, en á tímum Berlínarmúrsins
hét hún Karl Marx Stadt, til heiðurs höfundar
kommúnismans.
FBL-GREINING: NAFNABREYTINGAR Á BORGUM
Bombay var nýlendunafn Mumbai
Starfsfólk IGS á Keflavíkurflugvelli er
óánægt með kjör sín og hefur hótað
því að leggja niður störf. Gunnar
Olsen er framkvæmdastjóri IGS.
Fyrir hvað stendur IGS?
IGS stendur fyrir Icelandair Ground
Services. Það er samt í sjálfu sér
bara vörumerkið, fyrirtækið er
skráð sem Flugþjónustan Keflavíkur-
flugvelli ehf. Hjá IGS starfa um sex
hundruð manns yfir sumartímann.
Hvað gerir fyrirtækið?
Ein rekstrareiningin sér um að inn-
rita farþega, hlaða flugvélar, hreinsa
vélarnar og annað slíkt. Önnur er
flugeldhúsið sem framleiðir matinn
í vélarnar og sú þriðja sér um rekstur
veitingastaðanna í flugstöðinni.
Fjórða einingin er fraktmiðstöðin
þar sem tekið er við fraktinni og
slíkt.
Hvaða afleiðingar mundi verkfall
hafa?
Ef enginn er að innrita er það nokkuð
ljóst að farþegar geta ekki innritað
sig í flug. Farangurinn myndi ekki
skila sér í vélarnar og svo framvegis.
En þetta eru bara spekúlasjónir sem
ég held að sé ekki tímabært að fara
mikið út í.
SPURT OG SVARAÐ
IGS Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Fólk kæmist
ekki í flug
Verðið og veðrið neikvæðust
KOMUR SKEMMTI-
FERÐASKIPA
1996 49
1997 48
1998 47
1999 38
2000 48
2001 53
2002 60
2003 70
2004 81
2005 92
ÞJÓÐERNI
FERÐAMANNA
(Raðað eftir fjölda)
Bretar
Bandaríkjamenn
Þjóðverjar
Danir
Norðmenn
Svíar
Frakkar
Hollendingar
Ítalir
Finnar
Svisslendingar
Japanir
Spánverjar
Kanadamenn
ERLENDIR FERÐAMENN Mikill vöxtur
hefur orðið í ferðaþjónustunni á umliðnum
árum og benda spár til þess að um ein
milljón erlendra ferðamanna komi til
Íslands eftir tíu til fimmtán ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SÖGUBROT
(Úr greinargerð Bjarna Reynarssonar)
Á seinni hluta 18. aldar fóru útlendir ferðamenn að koma til Íslands sér til skemmtunar. Þetta
voru iðulega þekktir landkönnuðir og fræðimenn, aðallega breskir aðalsmenn, sem þekktu
til náttúru Íslands og bókmenningar. Einna fyrstir voru Joseph Banks,
árið 1772, og John Stanley árið 1789. Fjöldi erlendra ferðamanna jókst
hægum skrefum á 19. öld og þar sem ekki voru til ferðaskrifstofur tóku
menntaðir menn eins og Jón Hjaltalín landlæknir og Geir Zoega útgerðar-
maður að sér að leiðbeina þessum ferðalöngum. Á seinni hluta aldarinnar
voru komin nokkur veitinga- og gistihús í Reykjavík en úti á landi var gist
í tjöldum eða á bóndabæjum.
Í byrjun 20. aldar voru reknar tvær ferðaskrifstofur í Reykjavík. Ekki var
fjöldi erlendra ferðamanna mikill á fyrstu áratugum 20. aldar og höfðu
heimskreppan og tvær heimsstyrjaldir mjög hamlandi áhrif. Fyrstu
skemmtiferðaskipin komu hingað til lands 1938-1939 en í stríðinu tók fyrir allar slíkar ferðir.
Fljótlega eftir seinni heimsstyrjöldina rofnaði einangrun landsins með reglubundnu áætlunar-
flugi og frumkvöðlar í ferðaþjónustu, Guðmundur Jónasson og Úlfar Jacobsen, fóru að bjóða
upp á skipulagðar rútuferðir um hálendi Íslands. Á fimmta áratugnum komu um fjögur þúsund
erlendir ferðamenn að meðaltali á ári og jókst fjöldinn smám saman og var kominn upp í þrett-
án þúsund manns um 1960. Síðan þá hefur fjöldi erlendra ferðamanna vaxið hratt.
ÚLFAR JACOBSEN
Við viljum vekja athygli ykkar á því að starfsemi Lagna og leigu Nýherja hefur verið skipt upp og er nú rekin undir nýjum
nöfnum á tveimur stöðum:
��������������������������������������������������
��������������������
������������������������������������������������������ �������������������������������������
Með auknu rými og betri aðstöðu munum við kappkosta að bjóða upp á enn betri þjónustu en áður.
Verið velkomin.
Nýherji
> Nýskráningar nýrra bifreiða fyrri hluta árs 2006
Heimild: www.us.is
Honda Hummer Hyundai