Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 25

Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 25
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 25 Enn meiri lækkun 50-70% afsláttur Greiningardeild Landsbankans reiknar með að hagnaður Glitnis og KB banka af verðbótum á öðrum ársfjórðungi hafi numið samanlagt rúmum sex milljörðum króna eða þremur milljörðum á hvorn banka. Vísitala neysluverðs hækkaði um 3,8 prósent á öðrum ársfjórð- ungi. Glitnir býst við góðum vexti í vaxtatekjum Landsbankans á nýliðnum fjórðungi vegna hárrar verðbólgu og lækkunar á gengi krónunnar. - eþa Bankar græða á verðbólgunni Atvinnulausum fjölgaði um 5.900 í Bretlandi í síðasta mánuði og eru þeir sem eru án vinnu í landinu tæplega 957 þúsund talsins. Atvinnuleysi í Bretlandi mælist nú 5,4 prósent og hefur ekki verið meira síðan á vordögum árið 2000, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar. Þá hefur atvinnulausum fjölg- að um 93.000 frá sama tíma í fyrra. Fjármálasérfræðingar segja upplýsingar um atvinnuleysi í landinu slá á ótta manna um aukna verðbólgu í landinu og búast því við óbreyttum stýrivöxtum út árið. - jab Mikið atvinnu- leysi í Bretlandi FRÁ BRETLANDI Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira í Bretlandi síðastliðin sex ár. MYND/REUTERS Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá fyrri mánuði og mælist verðbólgan nú 8,4 prósent. Þetta er nokkuð minni hækkun en greiningar- deildir við- skiptabankanna þriggja bjuggust við en spá þeirra hljóðaði allt frá 0,55 til 0,70 prósenta hækkunar vísi- tölu neyslu- verðs. Hefði hæsta spá bankanna gengið eftir hefði verðbólgan mælst 8,7 prósent. Greiningardeild KB banka hafði spáð 0,4 prósenta hækk- un en taldi líkur á 0,55 prósenta hækkun í endurskoðaðri spá sinni á föstudag í síðustu viku og 8,5 pró- senta verðbólgu á ársgrundvelli. Ingvar Arnarson, sérfræðingur hjá greiningardeild Glitnis, segir spáskekkjuna skýrast að stærstum hluta af meiri útsöluáhrifum en reiknað hafi verið með. Þá hafi verð á nýjum bílum, húsgögnum og fleiru reynst óbreytt milli mánaða. Kostn- aður við íbúðakaup jókst hins vegar talsvert eða um 1,5 prósent, bæði vegna verð- og vaxtahækkunar. Ingvar sagði ennfremur að þegar komi að útsölulokum megi búast við verulegri hækkun vísitölunnar eða jafnvel yfir eins prósents hækkun í byrjun september. Lækkun á íbúða- verði á haustmánuðum geti þó vegið á móti og dregið úr verðbólgunni. Deildin spáir um níu prósenta verðbólgu í árslok en býst við að verðbólga minnki verulega á næsta ári þegar úr þenslunni dregur í efnahagslífinu. - jab Útsölur lækkuðu verðbólguna Framkvæmdastjórn Evrópusambands- ins (ESB) hefur sektað bandaríska hugbúnaðarrisann Microsoft um 280,5 milljónir evra, jafnvirði 26,9 milljarða íslenskra króna, fyrir að framfylgja ekki samkeppnislögum. Málið snýr að sölu á Windows-stýri- kerfi Microsoft í Evrópu en ESB komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að hugbúnaðarrisanum bæri að gefa samkeppnisaðilum sínum í álfunni upplýsingar um innviði stýrikerfis- ins svo þeir geti búið til hugbúnað sem vinnur betur með stýrikerfinu. Stjórnendur Microsoft segja fyrirtækið hafa brugðist við ákvæðum ESB með viðunandi hætti. Framkvæmdastjórn ESB er á öðru máli og greindi forsvarsmönnum Microsoft frá því í desember á síðasta ári að fyrirtækið myndi verða sektað um tvær milljónir evra, jafnvirði rúmlega 191 milljón íslenskra króna, á dag verði það ekki við ákvæðum sambandsins. Þá komst ESB jafnframt að þeirri nið- urstöðu fyrir tveimur árum að Micros- oft bæri að skilja spilarann Windows Media Player frá stýrikerfinu og sektaði fyrirtækið um 47,6 milljarða íslenskra króna. - jab ESB sektar Microsoft BILL GATES, STOFNANDI MICROSOFT MYND/REUTERS INGVAR ARNARSON HJÁ GLITNI Fiskafli dróst saman um fjórtán prósent í júní miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt bráðabirgðatöl- um Fiskistofu. Heildarafli í mán- uðinum var tæplega 134 þúsund tonn. Samdrátturinn skýrist af minni síld- og kolmunnaveiði en í fyrra. Botnfiskafli jókst lítillega þrátt fyrir samdrátt í þorskafla. Fram kemur í Morgunkornum Glitnis að aflaverðmæti hafi lík- lega ekki dregist mikið saman milli ára í ljósi mikilla hækkana á heimsmarkaðsverði sjávarafurða. -jsk Fiskafli minnkar SAMDRÁTTUR Í FISKAFLA SKÝRIST AF MINNI SÍLD- OG KOLMUNNAVEIÐUM. SPÁR BANKANNA Banki Hækkun KB banki* 0,55% Glitnir 0,7% Landsbankinn 0,7% Verðbólguhækkun 0,46% *Greiningardeild KB banka spáði 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverð en taldi líkur á 0,55 prósenta hækkun í endurskoðaðri spá sinni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.