Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 27
Nú geta gestir í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar tengst þráðlausu neti
í flugstöðinni. Fyrst um sinn er
netaðgengi aðeins í suðurbygg-
ingu flugstöðvarinnar, eða nýju
byggingunni eins og hún er oftast
kölluð. Innan skamms verður
komið upp sendum í norðurbygg-
ingu en það er ekki hægt að svo
stöddu vegna framkvæmda í þeim
hluta stöðvarinnar.
Það er stefna Flugstöðvarinnar
að þráðlaust net verði á öllum
helstu biðsvæðum og veitinga-
svæðum flugstöðvarinnar. Netinu
er komið upp í samstarfi við TM
software. ■
Þráðlaust net
í Leifsstöð
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Þráðlaust
net er nú aðgengilegt í flugstöðinni.
Nýr fjármálavefur Vefurinn m5.is
hefur tekið til starfa, en á honum
má finna ýmislegt um hlutafé-
lög, gjaldmiðla og ýmislegt sem
ekki hefur sést áður hérlendis í
tengslum við fjármál. Fyrirtækið
Vefmiðlun ehf. rekur vefinn.
VIÐSKIPTI
Skilaréttur neytenda er mismun-
andi eftir því í hvaða verslun
varan var keypt, en verslunum
er í sjálfsvald sett hvort þær
vinna eftir leiðbeinandi verk-
lagsreglum um skilarétt sem við-
skiptaráðuneytið setti í samráði
við Neytendasamtökin og fleiri.
Reglurnar fjalla meðal annars
um rétt neytenda til að skila
ógallaðri vöru innan fjórtán daga
frá því að kaup voru gerð.
Ásamt ákvæðinu um skilarétt
eru önnur meginatriði reglanna
að gjafir eigi að vera hægt að fá
með gjafamerki svo ekki sé þörf
á að framvísa kassakvittun þegar
vöru er skilað, að inneignarnótur
skuli miðast við upprunalegt
verð vöru og að gjafabréf og inn-
eignarnótur gildi í allt að fjögur
ár frá útgáfudegi.
Skilaréttur gildir ekki um
vöru sem keypt er á útsölu nema
um annað sé sérstaklega samið,
hvort sem verslunin vinnur eftir
verklagsreglunum eða ekki.
Tuttugu og átta verslanir og
verslanakeðjur hafa tekið upp
þessar leiðbeinandi verklags-
reglur um skilarétt frá því regl-
urnar voru settar í janúar 2001.
Þær má þekkja á límmiða við
inngöngudyr sem segir að þar sé
farið eftir þessum reglum.
- sþs
Verslanir þurfa ekki að fara eftir verklagsreglum um skilarétt frekar en þær vilja:
Ráða hvort þær fylgja reglum
ÚTSALA Í FATAVERSLUN Tuttugu og átta verslanir og verslanakeðjur hafa tekið upp leiðbein-
andi verklagsreglur um skilarétt á vörum.
SITUR SEM FASTAST Sawyer Robertson
heitir þessi ungi piltur sem tók þátt í
óvenjulegri keppni á skemmtun í Laramie
í Wyoming í Bandaríkjunum í gær. Þar var
ekki keppt í því að sitja yfir ánum, heldur
að sitja sem lengst á ánum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Náttúrulækningafélag Reykjavík-
ur stendur fyrir grasaferð fyrir
félagsmenn á morgun.
„Þetta er í fimmta skipti sem
farið er í svona ferð og aðsóknin
hefur verið mjög góð. Í fyrstu
ferðinni voru í um sjötíu þátttak-
endur en síðan hefur fjöldinn
verið takmarkaður svo hver og
einn njóti sín betur,“ segir Ásthild-
ur Kristín Einarsdóttir grasalækn-
ir.
„Tilgangur ferðarinnar er sá að
leiðbeina fólki hvernig það á að
týna jurtir án þess að skemma
rætur og að geta búið sér til gott
jurtate. Margar af þessum jurtum
hafa mikinn lækningamátt.“ Ást-
hildur hefur unnið lengi með jurt-
ir en hennar fjölskylda hefur
stundað grasalækningar um aldir.
Eftir ferðina verður boðið upp
á jurtate og lífrænt brauð frá
Brauðhúsinu í Grímsbæ. Áætlað
er að ferðin taki um tvo klukku-
tíma. - öhö
Jurtir hafa
lækningamátt
ÍSLAND ‘06
9. JÚLÍ
ÞESSI EGILS GULL VARÐ TIL 9. JÚLÍ, SAMA MÁNAÐARDAG OG ÍTALIR LYFTU BIKARNUM EFTIR SIGUR SINN Á FRÖKKUM
Í VÍTASPYRNUKEPPNI Á HM 2006. HÉRNA HEIMA GERÐU VALUR OG BREIÐABLIK JAFNTEFLI Á LAUGARDALSVELLI,
FJARÐABYGGÐ SIGRAÐI SINDRA MEÐ SAMA MARKAFJÖLDA OG MAGNI SIGRAÐI LEIKNI F. Í EFSTU DEILD KVENNA SIGRAÐI
BREIÐABLIK ÞÓR/KA. KÍKTU UNDIR GULLDÓSINA ÞÍNA OG SJÁÐU HVAÐA MERKISDAG ÞINN VAR FRAMLEIDDUR ÞVÍ
FERSKLEIKINN SKIPTIR MIKLU MÁLI ÞEGAR BJÓR ER ANNARS VEGAR. EGILS GULL ER NÚ BRUGGAÐUR ÚR ÍSLENSKU BYGGI
TIL AÐ GEFA ENN BETRA BRAGÐ. NJÓTTU ÍSLENSKS FÓTBOLTA MEÐ EGILS GULLI.
KÍKTU UNDIR GULLDÓSINA OG SJÁÐU HVERSU FERSKUR ÞINN ER.LÉTTÖL
G
O
T
T
F
Ó
L
K
M
cC
A
N
N
·
3
1
3
8
1
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Ó
tr
ú
le
g
ve
rð
!!
!!