Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 33
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 3
Hátískusýningarnar fyrir vetur-
inn 2006-7 fóru fram í París í síð-
ustu viku með tilheyrandi fjaðra-
foki í orðsins fyllstu merkingu,
þar sem fjaðrir eru oft fylgifisk-
ar hátískunnar. Haute couture-
tískuhúsin, sem aðeins framleiða
eftir pöntunum skipta á milli sín
um tvö hundruð viðskiptavinum.
Og þó að tískuhúsunum hafi jafnt
og þétt fækkað virðist sköpunar-
gleðin enn lifa hjá þeim fáu sem
eftir eru. Almennt er hægt að
segja um sýningarnar að stíllinn
og hönnunin yngist. Þetta á til
dæmis við um hönnun Karls
Lagerfeld hjá Chanel þar sem
fljótt á litið virðist ekki svo mikill
munur á hátískunni og fjölda-
framleiddu tískulínunni sem seld
er í búðunum. Það væri hægt að
spyrja hvers vegna viðskiptavin-
ur ætti að kaupa dragt á 30.000
evrur þegar hægt er að fá eina á
4.000? Samt sem áður gengur
hátískuhús Chanel mjög vel. Karl
Lagerfeld heldur áfram að skapa
hreinar línur og um leið að yngja
upp ímynd tískuhússins. Hann
notar mikið gallaefni og skósíðir
kvöldkjólar voru ekki áberandi.
Hins vegar var útsaumur frá
Lesage í hávegum hafður til að
skreyta hin einföldu form. Eftir
hina glæsilegu sýningu í Grand
Palais fyrir sumarið 2006, með
tugum fyrirsæta, var það einfald-
ari umgjörð sem gaf tóninn á St.
Cloud-flötinni í útjaðri Parísar í
Boulogne-skógi. Tónlistin gerð af
Michel Gaubert aðal „dj“ tísku-
heimsins.
Christian Lacroix virðist
blómstra eftir að hann skildi við
LVMH (Louis Vuitton Moey-
Hennesey-lúxussamsteypuna)
fyrir tveimur árum. Lacroix er
frjáls og það sést á hönnun hans
sem enn líkist búningum undir
áfrifum spænsku „renaissance-
stefnunnar“.
Önnur sýning sem líktist leik-
sýningu var hjá Dior þar sem
John Galliano sótti í miðaldir með
áhrifum frá fjórða áratug 20.
aldar. En hönnun Gallianos er
nánast ómögulegt að nota, svo ýkt
er hún. Hugsanlega er hver kjóll
endurhannaður fyrir viðskipta-
vinina því ekki get ég ímyndað
mér að þessir kjólar sjáist á Ósk-
arsverðlaunahátíðinni eða kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Ein fallegasta hátískusýningin
var tvímælalaust hjá tískuhúsi
Jean-Paul Gaultier, þar sem fór
saman glæsileiki og draumkennd
veröld þar sem fyrirsæturnar
báru nöfn ævintýraprinsessa og
hins vegar tískuhönnun sem vel
er hægt að nota. Gaultier hefur
kannski séð úrslit heimsmeist-
arakeppninnar fyrir því franski
haninn, tákn Frakklands, hefur
verið notaður í jakka. Einnig
notar hann loðfeldi í kápur, kjólar
eru úr sléttflaueli og lífstykki
útsaumuð með kristöllum.
Tískuhönnuðurnir eiga þó
flestir sammerkt að leita jafn-
vægis milli draums og veruleika,
þess sem er hátíska og hins sem
er nothæft.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Hanafjaðrir og útsaumur í hátísku
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - AKUREYRI: Glerárgata 32
Bakpokar
15-70 l,
verð frá 1.900 kr.
Svefnpokar
fyrir allar aðstæður
verð frá 7.900 kr.
Tjöld
2ja - 6 manna
verð frá 4.900 kr.
Gönguskór
margar gerðir
Pottþétt
útilega
Peysur 1.990
kr.10.990kr.
Kjólar 1.990
kr.14.990kr.
50-70% afsláttur
af öllum útsöluvörum.
Kringlunni
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI