Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 38
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR8
Leðurblöku-
bókahilla með
snögum fyrir föt
eða lykla.
MYND/VÖLUSKRÍN
Verslunin Völuskrín á Lauga-
vegi 116 selur leikföng fyrir
börn á aldrinum 0-99 ára.
Völuskrín er fyrir ýmsar sakir
frábrugðin öðrum leikja- og leik-
fangaverslunum hérlendis.
Í fyrsta lagi fer ekki mikið fyrir
hefðbundnum plastleikföngum í
búðinni, heldur er þar að finna
gott úrval vandaðara tréleikfanga
sem njóta mikilla vinsælda. Margt
fleira er boði fyrir börn, svo sem
rúmföt, handklæði, tuskudýr og
spiladósir.
Í öðru lagi eru þar seldar ýmsar
gerðir leikja og spila handa börn-
um jafnt sem fullorðnum, svo sem
tafl, púsluspil, rúllettur, póker og
spilastokkar, sum hver með ein-
dæmum vönduð, þannig að allir
ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Eins og áður sagði er vöruúrval
í Völuskrín einstaklega gott, þar
sem 1.400 vörutegundir eru í boði.
Varan er flutt inn frá sjö löndum
en hver hlutur valinn af kostgæfni
og með það í huga að bjóða neyt-
endum upp á sterka, vandaða og
endingargóða vöru. - rve
Í Völuskríni má meðals annars finna taflborð og -menn í hæsta gæðaflokki.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Ef togað
er í spottann á
þessari skemmtilegu
maríubjöllu kemur
spegill í ljós.
MYND/VÖLUSKRÍN
Sterk og vönduð leikföng
Gigamic, stórskemmtilegt spil fyrir tvo til fjóra leikmenn. Auðu hliðar kubbanna eru látnar
snúa upp en markmiðið er að velta upp sama tákninu fimm sinnum í röð.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Með þessum hæðarmæli fylgja
þrjár klemmur til að merkja
hæð barnsins, sem
kemur sér til dæmis vel
ef fleiri en eitt barn er
á heimilinu eða til að
mæla vöxt barns á
ákveðnu tímabili.
MYND/VÖLUSKRÍN
Þetta skemmtilega leik-
fangateppi fæst í
versluninni.
MYND/VÖLUSKRÍN
Band til að þræða hluti á,
tilvalið til að þjálfa fínhreyf-
ingar barna.
MYND/VÖLUSKRÍN
Fatahengi fyrir
börn (og full-
orðna).
MYND/VÖLUSKRÍN
Vorum að taka inn nýja sendingu af
baðkörum innréttingum og hand-
klæðaofnum, mikið úrval, gott verð.
Eigum einnig rafmagnshandklæðaofna.