Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 39
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006
Afmælisútsala
í Unika
Í DAG HELDUR VERSLUNIN UNIKA
UPP Á FIMM ÁRA AFMÆLI SITT.
Verslunin Unika í Fákafeni 9 heldur
upp á fimm ára afmæli sitt í dag.
Verslunin verður lokuð í dag en
opnar klukkan 17.00 með afmælis-
útsölu.
Starfsmenn verslunarinnar
bjóða gestum og gangandi upp
á ljúfa tónlist á útsölunni sem og
eitthvað fyrir bragðlaukana.
Mjög góður afsláttur verður á
útsölunni og sérstakur afmælisaf-
sláttur verður veittur af nýrri vöru.
Verslunin er með fjölbreytt úrval af
húsgögnum, gjafa- og heimilisvöru
ásamt miklu úrvali af ljósakrónum
og lömpum þannig að margir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi.
Verslunin er opin til klukkan 23
í kvöld. - lkg
Margt fallegt er að finna í versluninni
Unika. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það er ekki flókið að breyta
einföldum blómapotti í sann-
kallað listaverk.
Mósaíkblómapottar eru fallegir
fyrir heimilið og það er gaman að
breyta einföldum blómapotti í ein-
stakan grip. Í verslunum er hægt
að kaupa fallegar flísar sem
gaman er að nota en eins má nota
gamalt leirtau og brjóta það niður
í litla hluta. Svo er bara að hefjast
handa.
1. Veldu góðan leirpott. Keramik-
pottar duga einnig en það er ekki
hægt að nota plastpott.
2. Hannaðu munstrið með því að
leggja flísarnar niður fyrir fram-
an þig. Ákveddu hvernig flísarnar
eiga að raðast áður en þú byrjar að
festa þær á pottinn.
3. Festu flísarnar eða brotin á pott-
inn með flísalími. Best er að festa
nokkrar í einu og leyfa líminu að
þorna.
4. Berðu fúguna á pottinn og gættu
þess að hún smjúgi vel inn í gluf-
urnar á milli flísanna. Farðu vel
yfir allar brúnir og passaðu að
botninn sé sléttur.
5. Þurrkaðu
fúguna af
mósaíkflís-
unum með
rökum klút.
6. Leyfðu fúg-
unni að þorna
og jafna sig í að
minnsta kosti eina
viku áður en þú
setur eitthvað í pott-
inn.
Mósaík á blómapottinn
Endurkoma dósa-
pressurnar
Vegna fjölda áskorana hefur versl-
unin Pfaff-Borgarljós, Grensásvegi
13, hafið aftur sölu á dósapressunni
vinsælu. Pressan er hönnuð fyrir
áldósir og hefur það umfram aðrar
pressur hér á markaði að geta
einnig tekið stærri dósir. Með einu
auðveldu handtaki pressast hver
dós niður í tæpa 2,5 cm þannig að
allt að 80 prósent geymslurýmis
geta sparast með notkun pressunn-
ar. Við það má bæta að lítið fer fyrir
dósapressunni, sem er upplögð
í sumarbústaðinn, bílskúrinn,
geymsluna og bátinn.
Munstrið getur verið alls konar og
það er um að gera að prófa sig áfram
með liti og lögun flísanna.